Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Framkvæmdastjóri FÍB segir verktaka bera mikla ábyrgð varðandi svifryksmyndun

  • What: The director of FÍB (Icelandic Automobile Association) criticizes the Icelandic Road Administration's street cleaning practices for not meeting Nordic standards and environmental goals.
  • Impact: The director claims the current practices negatively affect public health and road safety due to dust pollution.
Read Full Article →

Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, segir í grein á vef félagsins að verklag Vegagerðarinnar við hreinsun stofnbrauta á höfuðborgarsvæðinu sé langt undir viðmiðum á hinum Norðurlöndunum og loftslags- og lýðheilsumarkmiðum stjórnvalda. Vegagerðin geri ráð fyrir hreinsun brautanna fjórum sinnum á ári. Fyrsta hreinsun hafi verið óvenjusnemma í ár enda ástandið orðið slæmt en ekki tekist að klára verkið áður en hitinn fór undir frostmark. Runólfur hvetur til hugarfars- og verklagsbreytingar þeirra opinberu aðila sem sinni gatnahreinsun þannig að tillit sé tekið til aðstæðna hverju sinni. Pólitískir fulltrúar almennings verða að tryggja fjármagn til framkvæmda í nafni lýðheilsu og öryggis vegfarenda, segir Runólfur, og spyr hver beri ábyrgð á að ekkert rykbindiefni hafi verið til í landinu vikum saman. Í borgum og bæjum á hinum Norðurlöndunum segir Runólfur verklag þannig að götur séu þrifnar allt árið um kring, nema þegar það er frost eða snjór. Þá séu götur ruddar og hálkuvarðar. Ábyrgð verktaka mikil Runólfur Ólafsson, framkvæmdastjóri FÍB, bendir jafnframt á að litlar sem engar kröfur séu gerðar til byggingaverktaka um að takmarka að ryk berist frá framkvæmdasvæðum. Þaðan berist sennilega mest jarðvegsryk yfir þéttbýlið. Í löndum Skandinavíu sé lögð áhersla á að grípa rykið áður en það fer út í andrúmsloftið með öflugum iðnaðarryksugum tengdum við tæki á byggingarsvæðum. Víða sé krafa um notkun rafdrifinna vinnutækja og að breitt skuli yfir jarðvegshrúgur. Vatnsúða sé beitt til að fella rykagnir til jarðar og við stærri framkvæmdasvæði séu sjálfvirkar þvottastöðvar til að hreinsa vörubíla áður en þeir halda út í almenna umferð. Runólfur segir ekkert slíkt gert hérlendis. Hann segir óhreinindi af vörubílum eina mestu uppsprettu ryks í borgum. Umferðin sé vissulega ein uppspretta svifryks þar, slit á malbiki vegi þungt vegna aksturs stórra bíla og nagladekkjanotkunar ásamt svarfi frá hemlum og hjólbörðum, salti og sandi auk foksands af hálendinu.

Share this article