Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Líkur á loftmengun næstu daga: Rykbindiefni búið og ekki hægt að hreinsa götur

  • What: High levels of dust pollution are expected in the coming days in the Reykjavik area due to lack of snowfall and depleted dust binding agents.
  • Impact: Residents may experience poor air quality.
Read Full Article →

Eftir að veturinn kom með látum í október og snjókoma á höfuðborgarsvæðinu sló öll met hefur nær ekkert snjóað. Þegar það er alveg snjó- og úrkomulaust og veður stillt eins og síðustu daga eykst svifryksmengun mikið. Þó að loftgæði hafi að mestu mælst góð á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna vinds hafa mælar verið gul- og rauðglóandi síðustu daga. Aldrei þurft að nota eins mikið rykbindiefni og tvöfalt meira pantað núna Snjókoma sem spáð var í dag lét ekki sjá sig og rykbindiefni er uppurið. Aldrei hefur þurft að nota jafn mikið af því og undanfarið. „Svo kemur bara í ljós að efnið er búið og okkar birgi átti ekki meira. Það er reyndar núna í skipi á leið frá Færeyjum og á vonandi að vera komið eftir helgi. Við pöntuðum tvöfalt meira magn en við höfum gert hingað til,” segir Karl Eðvaldsson deildarstjóri reksturs og þróunar á umhverfissviði Reykjavíkurborgar. „Vonandi gerist þetta ekki aftur en þetta eru aðstæður sem við sáum ekki fyrir því miður,” segir hann. Borgin sér um að hreinsa og rykbinda innan Reykjavíkur að undanskildum stofnbrautum sem Vegagerðin sér um, en þar myndast mesta mengunin. Vegagerðin er líka að bíða eftir rykbindiefni, sömu sendingu og borgin. Ekki hægt að hreinsa götur þegar frost er en leita þurfi fleiri leiða Ekki er hægt að hreinsa götur þegar hiti er undir frostmarki. Tækjabúnaðurinn býður ekki upp á það. Karl segir borgina sjaldan hafa gert jafn mikið og í vetur, þegar veður leyfir. „En ef þetta fer að verða vani hérna á Íslandi, að fá svona þurrkatímabil og mikið logn, þá viljum við geta brugðist við,” segir Karl. „Við erum að skoða núna hvort það séu tæki eða annað erlendis, það er ekki mikið í boði, en það er kannski eitthvað sem við getum reddað okkur með í framtíðinni,” segir hann. Engin tæki til að sópa eða hreinsa götur sem hægt er að nota í frosti séu til á landinu. Þó þurfi helst að ráðast að rót vandans. Ýmislegt auki á mengun til að mynda ekki nógu gott malbik, umferð þungavinnuvéla, nagladekk og fleira til. Viðkvæmir vari sig og allir leggi sitt af mörkum þegar líkur eru á mengun Úrkomu er ekki spáð á höfuðborgarsvæðinu fram yfir helgi og búast má við hægum vindi. Því gæti mengun orðið talsverð næstu daga. Svava Svanborg Steinarsdóttir, heilbrigðisfulltrúi hjá heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur, segir mikilvægt að þau, sem eru viðkvæm fyrir mengun, reyni að halda sig inni. Allir eigi þó að vera meðvitaðir um svifryksmengun. „Þá að reyna að forðast útivist í nágrenni við stóru stofngöturnar okkar, þjóðvegina í þéttbýli, og reyna að nýta sér vistvæna ferðamáta. Ef fólk getur verið í fjarvinnu og reynt að hvíla bílinn og þannig minnka umferðarmagnið á götunum - þá er það allt jákvætt og getur hjálpað,” segir Svava. Mikil loftmengun hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu síðustu daga og það sama gæti verið uppi á teningnum næstu daga. Rykbindiefni er ekki til á landinu, ekki er hægt að hreinsa göturnar í frosti og útlit er fyrir áframhaldandi þurrk.

Share this article