Andúð á auðugu fólki er sögð ein ástæða þess að leigubílstjórinn Jonathan Rinderknecht kveikti gróðurelda af ráðnum hug nærri Palasides-hverfinu í Los Angeles á seinasta ári. Rinderknecht er sakaður um að hafa kveikt eldana á gamlárskvöld 2025 í fjöllunum við Palasides-hverfið. Slökkviliðsmenn héldu sig hafa kveðið þá niður en þeir blossuðu upp að nýju 7. janúar með þeim afleiðingum að tólf fórust í hverfinu og víðfeðm byggð rándýrra glæsihúsa frægs og ríks fólks gereyðilagðist. Alls týndi að minnsta kosti 31 lífi í eldunum sem geisuðu um Los Angels þennan janúarmánuð fyrir rúmu ári. Rinderknecht, sem var handtekinn á Flórída snemma í október, hefur verið ákærður og kemur fyrir dóm 8. júní. Saksóknarar lýsa hinum ákærða í dómsskjölum sem Uber-bílstjóra sem hatast við auðvaldsskipulagið og dáir Luigi Mangione , sem ákærður er fyrir morð á forstjóra tryggingafyrirtækis. Tveimur vikum áður en eldarnir kviknuðu sýnir netleitarsaga Rinderknechts setningar á borð við „fellum alla milljarðamæringana“ og slagorðið „frelsum Luigi Mangioni“. Margir lýsa Mangioni sem nútíma Hróa hetti sem berst gegn spilltu kerfi vinnandi fólki til hagsbóta. Rinderknecht, sem ólst upp í Frakklandi og bjó um tíma í Palasides, neitar öllum sakargiftum.
This article describes an intentional arson attack motivated by anti-establishment ideology, not a software vulnerability or technical exploit. The attack vector was physical ignition of wildfires targeting affluent neighborhoods, resulting in significant loss of life and property. No technical vulnerability, CVSS score, affected software versions, patch, or IT workaround is discussed.