- What: Marta María celebrates her 15th birthday with a special newspaper
- Impact: Personal story for readers
Smartland Mörtu Maríu fagnar fimmtán ára afmæli í dag með sérstöku hátíðarblaði. Marta María segir síðustu fimmtán ár hafa verið virkilega skemmtileg þó svo að það hafi oft verið erfitt. Hún hlakkar til þess á hverjum einasta degi að mæta í vinnuna. Marta María var gestur Júlíu Margrétar Einarsdóttur og Jóhanns Alfreðs Kristinssonar í Morgunkaffinu á Rás 2 þar sem hún sagði frá ævintýrinu, trúlofunarafmæli og hvernig eiginmaður hennar hefur stutt hana í gegnum erfiðan missi. „Þetta er bara þjóðarspegillinn“ Smartlandsvefurinn var opnaður á mbl.is þann 5. maí 2011 og yfir þann tíma hefur Marta María svo sannarlega orðið vitni að samfélaginu taka breytingum. Í aðdraganda afmælisins hefur hún farið í gegnum gamlar fréttir til að birta í afmælisritinu sem fylgir Morgunblaðinu í dag og er opið á vefnum. „Þetta er bara þjóðarspegillinn. Það er ótrúlegt að skoða þetta. Við erum með árið þar sem allir þurftu að eignast Omaggio-vasa og árið þar sem karlar byrjuðu að vera í primaloft-vestum og úlpum. Þetta er ótrúlega gaman. Það voru ekki til fyrirbæri eins og áhrifavaldar fyrir 15 árum, það gerist í kringum 2016. Þessi dægurmálaheimur hefur þróast ótrúlega mikið.“ Vantaði einhverja „Guggu“ til að vera með efni fyrir konur Marta María segist vera eins og leigubílstjórinn sem hefur verið í bransanum í 25 ár. Hún byrjaði hjá Séð og Heyrt árið 2001 og lærði þar að það þurfi alltaf að finna fréttavinkilinn, sama hvert umfjöllunarefnið er. Um tíma var hún ritstjóri tímaritsins Veggfóðurs en árið 2008 var hún að vinna á Fréttablaðinu þegar henni og fleirum var sagt upp eftir efnahagshrunið. „Ég þurfti að vinna uppsagnarfrestinn og vera í vinnunni í þrjá mánuði þegar búið var að reka mig. Ég hugsaði með mér hvernig ég ætti að gera þetta. Ég ætlaði bara að gefa allt í botn og sýna þeim af hverju allir væru að missa.“ Hún segir engin glæst atvinnutækifæri hafa beðið sín eftir uppsagnarfrestinn þar sem enginn var að ráða. „Þá kemur Björn Ingi Hrafnsson að máli við mig og segir mér að hann og einhverjir dúddar séu að stofna vefmiðil, Pressan.is, og vantaði einhverja svona Guggu til að vera með svona stelpu/konu-efni.“ Hún hafi slegið til og vefurinn fór í loftið í lok febrúar 2009. „Þetta gekk bara ótrúlega vel og sló í gegn.“ Þarna hafði hún verið í tvö ár þegar henni bauðst að fara yfir á mbl.is og halda úti sams konar miðlun. Þýðir ekki að hika heldur dúndra í loftið Áður en Smartlandið fór í loftið var Marta María búin að undirbúa sig vel, skrifa fjölda greina til að birta en strax fyrsta daginn fékk hún fregnir af því að söngkonan Anna Mjöll Ólafsdóttir, sem býr í Bandaríkjunum, hefði gifst 92 ára gömlum bílasala, Cal Worthington. „Ég skrifa frétt um þetta og þarna fyrsta daginn vissu allir hvaða fyrirbæri þetta væri sem héti Smartland Mörtu Maríu.“ „Svo er þetta bara svolítið eins og spretthlaup. Maður bara mætir í vinnuna og byrjar að hlaupa.“ Fyrstu árin þurfti Marta María oft að leggja tölvuna frá sér og sækja strákana sína og svo á kvöldin þegar þeir voru sofnaðir hélt hún áfram að vinna og oft fram á nótt. „Þannig bara gekk þetta upp. Það þarf bara að bretta upp ermar og vinna.“ Hún segir að í þessari vefmiðlabyltingu sé mikilvægt að grípa gæsina strax. „Það þarf bara að skrifa og dúndra í loftið.“ „Ég hef alveg klúðrað fullt af málum“ Fólk er oft upp með sér þegar fjallað er um það í Smartlandi Mörtu Maríu en hún hefur einnig lent í því að fólk verði ósátt. „Alveg margoft. Fyrstu árin var ég kannski í svolítilli forðun, þegar einhver var að hringja í mig og var óánægður.“ Þá hafi hún oft og tíðum ekki svarað símanum en sé búin að læra það núorðið að það sé mikilvægt að taka öll símtöl. „Tala við fólk og vera ekki í hundsun gagnvart fólki. Ég sé það líka alveg núna, þegar maður er að þvælast um í ritstjórnarkerfinu, að ég hef alveg klúðrað fullt af málum og það er eitthvað þarna sem er illa unnið.“ Hún segir að í grunninn snúist þetta starf um mannleg samskipti og þess vegna sé mikilvægt að taka samtalið. „Oft þarf fólk bara að blása, það þarf að fá viðurkenningu og þarf að fá að maður hlusti.“ Oftast sé hægt að leysa vandamálin með samtali. Á seinni árum hefur þó farið minna fyrir því að fólk sé ósátt með umfjöllun. „Það eru miklu minni leiðindi. Það er kannski líka af því að ég hef þroskast og svo er ég með starfsfólk sem er miklu klárara en ég. Það getur verið svo mikill óhemjugangur í sjálfri mér þannig ég reyni að minnka það og vera kannski sanngjarnari.“ „Fólk má bara kenna mér um hluti“ Stundum vilji fólk ekki viðurkenna að það hafi sjálft haft samband við Mörtu Maríu varðandi fréttir um sig og jafnvel sent inn myndir. Síðan deilir það kannski greininni á eigin miðlun með hneykslunartón. „Við vinnum bara með fólki. Fólk má bara kenna mér um hluti, ég virði það alveg,“ segir hún. Það hafi þó verið meira um þetta fyrstu árin heldur en í dag. Undanfarin ár hefur Marta fundið mikinn meðbyr. Fannst að þau yrðu að trúlofast Þann 15. maí áttu Marta María og eiginmaður hennar, Páll Winkel, tíu ára trúlofunarafmæli en það bar að með óvenjulegum hætti. „Við vorum búin að vera saman í einhverja átta mánuði.“ „Þarna vorum við komin til Marokkó í frí. Ég var alveg viðþolslaus, mér fannst að við yrðum að trúlofast.“ Hann var búinn að lýsa yfir að hann vildi fara með henni í gegnum lífið en Marta segist hafa verið æst í að setja upp hringa. „Þannig ég teymdi hann á hárinu inn í einhverja skartgripaverslun sem leit út eins og nýlenduvöruverslun í Havana á Kúbu. Það var ekkert úrval. Við náðum einhvern veginn að para saman tvo gullhringa og kaupa þá fyrir lítinn pening. Svo röltum við með þá upp á hótelherbergi og trúlofuðum okkur.“ „Við hefðum aldrei trúlofað okkur á þessum degi í Marokkó ef ég hefði ekki keyrt þetta áfram.“ Ást og kærleikur sem stýrði ákvörðun hennar að taka upp eftirnafnið Þegar þau giftu sig, eftir fimm ára trúlofun, tók Marta upp eftirnafn Páls. Hann hafði nefnilega fljótt orð á því að hann vildi að hún gerði það. „Hann er hálfdanskur og það er hefð fyrir því í hans dönsku föðurfjölskyldu að hjón séu með sama eftirnafn.“ Marta segist hafa verið treg í taumi og sá fyrir sér að ef þau skyldu skilja þá sæti hún eftir eins og „einhver apaköttur“ með eftirnafnið hans. „En svo gerist það í nóvember 2020 að ég missi son minn. Það er náttúrlega bara mikið áfall. Þegar ég hugsa til baka þá er raunveruleikinn þannig að ég væri ekkert hér og nú uppistandandi ef hann hefði ekki passað upp á mig og komið mér í gegnum þetta,“ segir Marta um Pál. „Þannig að þegar við giftum okkur svo sumarið 2021 þá sömdum við um það í framhaldi af brúðkaupinu að ég myndi taka upp hans ættarnafn. Ég sé ekki eftir því.“ „Það er bara ást og kærleikur sem stýrir þessu. Það að eiga góðan maka er eitt það dýrmætasta í lífinu og hann hefur staðið þannig við bakið á mér að ég vissi ekki að einhver gæti verið svona góður.“ Þakklát fyrir fólkið í kringum sig og vildi bjóða því heim Eftir að sonur hennar, Helgi Jóhannesson, varð bráðkvaddur 14 ára hefur Marta María setið við skriftir. „Ég er búin að vera að skrifa um raunveruleikann fyrir sjálfa mig og ég veit svo sem ekkert hvernig þetta þróast. En í þessum bókarskrifum þá helltist yfir mig svo mikið þakklæti,“ segir Marta. Hún segist hafa verið svo lánsöm að kynnast mikið af góðu fólki á lífsleiðinni og langaði að bjóða þessu fólki heim til sín og eiga með því góðar samræður. Þannig varð hlaðvarpið Marta María býður heim til og fer vel af stað. Heldur spretthlaupinu áfram svo lengi sem það er gaman Smartland mun ekki halda stóra og mikla veislu í tilefni afmælisins og hefur raunar aldrei haldið veislu áður. Marta María segist alltaf guggna þegar hún þurfi að setja saman gestalista og nú hafi henni einfaldlega fallist hendur. Hún sé ekki mikið partíljón sjálf og segist hafa vandað sig við það að þiggja ekki öll boð í viðtöl og sjónvarpsþætti sem henni bjóðast svo fólk fái ekki nóg af henni. Hún segist aldrei hafa spáð í það fyrirfram að Smartland myndi ná slíkum áfanga, að verða 15 ára, vegna þess að hún hugsi aldrei langt fram í tímann. Hún sé alltaf bara í núinu og reyni að grípa hvern dag fyrir sig. „Ég hef bara verið í spretthlaupi síðustu 15 ár og verð það áfram á meðan þetta er gaman,“ segir hún. „Ég sé ekki fyrir mér núna að ég muni einhvern tímann hætta þessu en svo veit maður ekki. Lífið kemur manni sífellt á óvart.“ Hún segir það alltaf hafa verið skemmtilegt að stýra Smartlandinu. „Þetta er oft erfitt og snúið. Ég hef oft þurft að grenja upp Ártúnsbrekkuna en ég hef á hverjum einasta degi síðustu 15 árin hlakkað til þess að mæta upp í Hádegismóa og það er ótrúlega dýrmætt.“ Marta María segir eitt það dýrmætasta í lífinu vera að eiga góðan maka. Eftir erfiðan missi hefur eiginmaður hennar staðið þétt við bakið á henni og var það sú ást sem varð til þess að hún tók upp eftirnafn hans. Rætt var við Mörtu Maríu Jónasdóttur í Morgunkaffinu á Rás 2. Þáttinn má finna í spilaranum hér fyrir ofan.