Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Færri sjálfboðaliðar með réttindamenntun

Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 5.5.2026 | 11:30 Færri sjálfboðaliðar með réttindamenntun Slysavarnafélagið Landsbjörg vinnur að því að endurnýja björgunarskipin. Jóhannes Briem var þriðja skipið sem Landsbjörg fékk afhent. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Öryggi sjófarenda Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð » Fleiri tengdar fréttir Strandveiðar Þorskur og kropp af karfa Gera bátana klára á strandveiðar Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Óvíst að reglugerð taki á vandanum » Fleiri tengdar fréttir Öll björgunarskip Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru mönnuð fyrir strandveiðivertíðina sem hófst í gær. Til lengri tíma litið er þó nauðsynlegt að félagið haldi utan um sérstakt námskeið til að viðhalda mönnun til vélavörslu og skipstjórnar. Þetta segir Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar í samtali við Morgunblaðið. „Það er ekki jafn mikið af réttindamenntuðu fólki og áður sem býður sig fram í sjálfboðaliðastörf,“ segir hann. „Við sjáum þetta líka hjá öðrum björgunarsamtökum í kringum okkur, sem áður voru að mestu mönnuð af sjómönnum, en þeim fer fækkandi.“ Fyrsta skrefið segir Jón Þór vera að koma á laggirnar viðbótarnámskeiði ofan á vélstjóranám eða smábátaréttindi sem gildir fyrir björgunarskipin. Langtímaáætlunin sé þó að koma upp heildstæðri þjálfun frá grunni fyrir áhafnir björgunarskipa. Frétt af mbl.is Sérstakt nám vegna björgunarskipa Viðurkenning Samgöngustofu þarf að liggja fyrir til að kennsla slíkra námskeiða geti hafist en Jón Þór útskýrir að undirbúningsvinna sé þegar hafin fyrir viðbótarnámskeið og að Samgöngustofa hafi fengið námslýsinguna til umsagnar í lok febrúar. Stofnunin hafi að endingu óskað eftir greinarbetri upplýsingum og Landsbjörg hafi orðið við því í lok síðustu viku. Aukin ásókn í nýju skipin „Það var vitað að þegar nýju skipin kæmu yrði vélaraflið í þeim í kringum 1.200 kílóvött,“ útskýrir Jón Þór, „en það var sérstök heimild í gömlu reglugerðinni um áhafnir björgunarskipa sem heimilaði að réttindum þeirra sem voru með ákveðin vélstjóraréttindi væri lyft upp í 750 kílóvött, sem er vélastærðin á gömlu björgunarskipunum sem við erum að skipta út.“ Lögum um áhafnir skipa var breytt árið 2022 og þá hafði gleymst að gera ráð fyrir þessari heimild. Í kjölfarið lagðist Landsbjörg í vinnu með innviðaráðuneytinu við að endurskoða lögin með tilliti til þess. „Þá notuðum við tækifærið til að fá lagaheimild til þess að mennta frá grunni okkar eigin áhafnarmeðlimi alveg upp í vélaverði og skipstjóra. Sú heimild var samþykkt á síðustu dögum þingsins fyrir jól,“ segir Jón Þór. Frétt af mbl.is Nýju björgunarskipin eins og vítamínsprauta Jón Þór býst við að góð ásókn verði á námskeiðið en hann segir að með tilkomu nýju skipanna hafi áhugi á starfinu endurnýjast. „Gömlu skipin voru jú gömul og það var mikill hávaði í þeim. Nú sjáum við talsverða eftirspurn hjá fólki sem vill koma aftur og jafnvel nýtt fólk líka,“ segir hann. „Þess vegna erum við nú að brasa í þessu, að fá þessi námskeið inn til okkar og að þau séu bara kennd í Björgunarskólanum eða Slysavarnaskóla sjómanna.“ Þegar aðstoðað tvo báta Góð mönnun á björgunarskipaflota Landsbjargar skiptir ekki síst máli á þessum tíma árs en í gær flykktust smábátar víða út á miðin á fyrsta degi strandveiðivertíðarinnar. Aðspurður hvort björgunarsveitirnar búi sig sérstaklega undir þennan tíma jánkar Jón Þór því. Jón Þór Víglundsson Morgunblaðið/Sigurður Bogi „Sagan segir okkur að það reynir á áhafnir björgunarskipa og björgunarsveitir hringinn í kringum landið þar sem mikil strandveiðiútgerð er, að minnsta kosti fyrstu vikurnar,“ segir hann. „Því miður erum við búin að fara í tvo báta núna á rétt rúmum sólarhring; annan í Faxaflóanum sem sennilega var að flytja sig á milli veiðisvæða, og svo hinn í Önundarfirði þar sem kom leki að bátnum og það þurfti að bregðast skjótt við.“ Nýlega var gefin út skýrsla um banaslys sem varð á síðasta ári þegar strandveiðibáturinn Ormurinn langi sökk en þar kom í ljós að fjölmörg öryggisatriði brugðust. Jón Þór segir í því samhengi að sem endranær séu sjómenn hvattir til að huga vel að eigin öryggi. „Menn gleyma því stundum að þeir eru einir, en það er mikilvægt að vera með björgunarvesti og að það sé stigi utan á bátnum svo menn komist sjálfir aftur um borð. Munum líka að hafa talstöðina opna og hlusta á neyðarrásirnar þannig að við heyrum ef kollegi í nágrenninu er í neyð,“ áréttar Jón Þór að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Öryggi sjófarenda Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð » Fleiri tengdar fréttir Strandveiðar Þorskur og kropp af karfa Gera bátana klára á strandveiðar Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Óvíst að reglugerð taki á vandanum » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Mest lesið Í gær Í vikunni Þorskur og kropp af karfa Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Gera bátana klára á strandveiðar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Herjólfur III verður klár í næstu viku Kölluð út vegna leka í vélarrúmi fiskibáts Áhyggjur af breyttu veiðimynstri Línuívilnun og skel- og rækjubætur áfram Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Kölluð út vegna leka í vélarrúmi fiskibáts Gera bátana klára á strandveiðar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Áhyggjur af breyttu veiðimynstri Línuívilnun og skel- og rækjubætur áfram Herjólfur III verður klár í næstu viku Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Herjólfur III verður klár í næstu viku Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Gera bátana klára á strandveiðar Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Áhyggjur af breyttu veiðimynstri Kölluð út vegna leka í vélarrúmi fiskibáts Fleira áhugavert Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Byrja að sekta fyrir nagladekkin um helgina Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Enn eitt dæmi um gullhúðun Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 4.5.26 607,29 kr/kg Þorskur, slægður 4.5.26 626,07 kr/kg Ýsa, óslægð 4.5.26 383,56 kr/kg Ýsa, slægð 4.5.26 331,78 kr/kg Ufsi, óslægður 4.5.26 222,54 kr/kg Ufsi, slægður 4.5.26 316,76 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 4.5.26 257,75 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 5.5.26 Benni SF 66 Handfæri Þorskur 860 kg Ufsi 6 kg Samtals 866 kg 5.5.26 Ásbjörn SF 123 Handfæri Þorskur 807 kg Samtals 807 kg 5.5.26 Lubba VE 27 Handfæri Þorskur 743 kg Ufsi 76 kg Samtals 819 kg 5.5.26 Blíða VE 263 Handfæri Þorskur 768 kg Ufsi 29 kg Karfi 8 kg Samtals 805 kg 5.5.26 Þorsteinn VE 18 Handfæri Þorskur 795 kg Ufsi 5 kg Samtals 800 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Þorskur og kropp af karfa Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Gera bátana klára á strandveiðar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Herjólfur III verður klár í næstu viku Kölluð út vegna leka í vélarrúmi fiskibáts Áhyggjur af breyttu veiðimynstri Línuívilnun og skel- og rækjubætur áfram Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Kölluð út vegna leka í vélarrúmi fiskibáts Gera bátana klára á strandveiðar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Áhyggjur af breyttu veiðimynstri Línuívilnun og skel- og rækjubætur áfram Herjólfur III verður klár í næstu viku Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Herjólfur III verður klár í næstu viku Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Eru í „bölvuðum vandræðum“ með flutninga Gera bátana klára á strandveiðar Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Fyrstu farþegarnir sem nýta Vör Áhyggjur af breyttu veiðimynstri Kölluð út vegna leka í vélarrúmi fiskibáts Fleira áhugavert Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Munu leggja til að orðalaginu verði breytt X26 – Oddvitar í Mosó mætast Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 4.5.26 607,29 kr/kg Þorskur, slægður 4.5.26 626,07 kr/kg Ýsa, óslægð 4.5.26 383,56 kr/kg Ýsa, slægð 4.5.26 331,78 kr/kg Ufsi, óslægður 4.5.26 222,54 kr/kg Ufsi, slægður 4.5.26 316,76 kr/kg Djúpkarfi 4.5.26 160,00 kr/kg Gullkarfi 4.5.26 257,75 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 5.5.26 Benni SF 66 Handfæri Þorskur 860 kg Ufsi 6 kg Samtals 866 kg 5.5.26 Ásbjörn SF 123 Ha

Share this article