Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar

Read Full Article →

200 mílur | mbl | 30.4.2026 | 15:30 Í „sjokki“ eftir lestur skýrslunnar Formaður Landssambands smábátaeigenda segist uggandi eftir lestur skýrslunnar. Of margt hafi farið úrskeiðis sem aldrei eigi að bregðast. Samsett mynd/Magnús Þór Hafsteinsson/Karítas Fjóla K. Guðmundsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Öryggi sjófarenda Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð Verra samband á sjó þegar slökkt var á sendum » Fleiri tengdar fréttir Strandveiðar Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Óvíst að reglugerð taki á vandanum „Plataðir til að kjósa Flokk fólksins“ Kvenfjandsamleg strandveiðireglugerð Vonbrigði með strandveiðireglugerð » Fleiri tengdar fréttir „Fyrstu viðbrögðin eru mikil sorg og uggur. Þetta er gríðarlega þung og erfið lesning, þessi skýrsla.“ Svo kemst Kjartan Páll Sveinsson, formaður Landssambands smábátaeigenda (LS), að orði um skýrslu sem Rannsóknarnefnd samgönguslysa (RNSA) gaf út í gær. Í skýrslunni er farið yfir tildrög þess að strandveiðibáturinn Ormurinn langi sökk 30. júní í fyrra en það leiddi til þess að Magnús Þór Hafsteinsson eigandi bátsins lést. Í skýrslunni eru fjölmörg atriði dregin fram sem sýna skýrt að víða var pottur brotinn hvað viðvék skoðunum og eftirliti með björgunarbúnaði og bátnum sjálfum. Brestir í allri öryggiskeðjunni „Það sem slær mann helst er hvað það eru margir þættir sem klikka,“ segir Kjartan og bendir á ekki sé dreginn fram einn stakur hlekkur í öryggismálum, heldur virðist sem brestir hafi fundist í öryggiskeðjunni allri. Frétt af mbl.is Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út „Þessi atriði sem eru nefnd í skýrslunni eru engin smáatriði. Þetta eru mikilvæg öryggisatriði sem eiga ekki að bregðast,“ bætir Kjartan við. „Sjósleppilokinn virkar ekki sem skyldi, báturinn blæs ekki upp, það er ekki nægt eftirlit með breytingum á bátnum og annað slíkt. Maður er bara í hálfgerðu sjokki yfir þessu.“ Fleiri bátar með óskráðar breytingar Breytingar þær sem Kjartan minnist á og gerðar voru á Orminum langa eru taldar hafa rýrt stöðugleika bátsins um allt að 50% eftir að sjór komst um borð. Var um að ræða viðbættan skutkassa sem lengdi bátinn um tæpan metra og tæmdist hægt en á honum voru aðeins tvö lítil lensport eða austurop. Leiða má að því líkur að breytingin hafi stuðlað að því að báturinn sökk. Hún var ekki tilkynnt til Samgöngustofu og rannsakendur RNSA fundu engin gögn um það hvenær bátnum var breytt né hver hafi séð um breytinguna. Af skýrslunni að dæma mun það hafa verið fyrir árið 2021 en eftir 1995 þegar samþykktar teikningar liggja fyrir. Aðspurður hvort ósamþykktar breytingar á smábátum sé útbreitt vandamál segist Kjartan ekki geta sagt til um það. „Eðli málsins samkvæmt vitum við ekki umfangið, en maður veit alveg að þetta gerist. Maður hefur heyrt um dæmi þess að menn séu jafnvel að dunda við þetta sjálfir og láta engan vita af því.“ Þurfa að hysja upp um sig buxurnar Stutt er í að strandveiðar hefjist en fyrsti dagur vertíðarinnar er mánudagurinn 4. maí. Inntur eftir því hvort strandveiðimenn geti dregið einhvern lærdóm af því sem fram kemur í þessari þungu skýrslu og tekið með sér inn í vertíðina segir Kjartan að fyrst og fremst þurfi menn að taka ábyrgð á sjálfum sér og gera allar mögulegar varúðarráðstafanir. Einnig segist Kjartan vonast til að sjá það í sumar að uppblásanleg björgunarvesti séu innan handar um borð í öllum bátum. Frétt af mbl.is Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Kjartan segir þó að það séu ekki eingöngu strandveiðimenn sem þurfi að hugsa sinn gang en fjölmörg þeirra atriða sem komu fram í skýrslunni voru ekki á valdi sjómannsins sjálfs. Þar má meðal annars nefna ófullnægjandi skoðun á björgunarbátnum sem reyndist óvirkur þegar á þurfti að halda. „Það voru svo mörg atriði í ólagi þarna að ég held að það þurfi allir að hysja upp um sig buxurnar. Eftirlitsaðilar, stjórnvöld og stefnumótendur, auk okkar skipstjóranna.“ Tengdar fréttir Öryggi sjófarenda Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Úrelt fjarskiptakerfi fær senn að víkja Aðdáunarverð viðbrögð við slysi um borð Verra samband á sjó þegar slökkt var á sendum » Fleiri tengdar fréttir Strandveiðar Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Óvíst að reglugerð taki á vandanum „Plataðir til að kjósa Flokk fólksins“ Kvenfjandsamleg strandveiðireglugerð Vonbrigði með strandveiðireglugerð » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Landa síður afla í Vestmannaeyjum Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Lax á kókaíni syndir linnulaust Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Haldið af stað til síldarmælinga Töf á viðræðum við Færeyjar Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Tífalt dýrari en lax Haldið af stað til síldarmælinga Lax á kókaíni syndir linnulaust Töf á viðræðum við Færeyjar Veltihringrásin nálgast vendipunkt Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Veltihringrásin nálgast vendipunkt Lax á kókaíni syndir linnulaust Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Sjötugur og gerir út á eikarbát Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Gísli Jóns er núna Kristrún Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Drógu aflvana bát til lands Fleira áhugavert Svartur blettur á jafnréttisparadísinni Íslandi Ætlar að þyngja refsingar fyrir vændiskaup Segir örorkubætur á sjálfstýringu Hallærisplanið er ekki að virka Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 30.4.26 595,04 kr/kg Þorskur, slægður 30.4.26 720,11 kr/kg Ýsa, óslægð 30.4.26 387,58 kr/kg Ýsa, slægð 30.4.26 349,60 kr/kg Ufsi, óslægður 30.4.26 243,80 kr/kg Ufsi, slægður 30.4.26 243,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 30.4.26 358,43 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 30.4.26 Báran SI 86 Grásleppunet Þorskur 145 kg Skarkoli 68 kg Steinbítur 3 kg Ufsi 2 kg Samtals 218 kg 30.4.26 Sæþór EA 101 Grásleppunet Grásleppa 803 kg Samtals 803 kg 30.4.26 Fíi ÞH 11 Grásleppunet Grásleppa 926 kg Þorskur 33 kg Skarkoli 3 kg Samtals 962 kg 30.4.26 Finni NS 21 Grásleppunet Skarkoli 96 kg Ýsa 55 kg Þorskur 45 kg Samtals 196 kg Skoða allar landanir » Mest lesið Í gær Í vikunni Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Fleiri sigldu með ótrygga björgunarbáta Landa síður afla í Vestmannaeyjum Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Lax á kókaíni syndir linnulaust Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Haldið af stað til síldarmælinga Töf á viðræðum við Færeyjar Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Íslenskur skötuselur sá eini með sjálfbærnivottun Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Tífalt dýrari en lax Haldið af stað til síldarmælinga Lax á kókaíni syndir linnulaust Töf á viðræðum við Færeyjar Veltihringrásin nálgast vendipunkt Björgunarbátur bilaður og hefði aldrei blásið út Veltihringrásin nálgast vendipunkt Lax á kókaíni syndir linnulaust Þórunn Sveinsdóttir umbreytist í Ljósafell Framkvæmdastjóri Patagonia ræðir laxeldismál á Íslandi Sjötugur og gerir út á eikarbát Muna ekki eftir jafn góðri veiði og nú Gísli Jóns er núna Kristrún Ankeri opnar nýja skrifstofu í Singapúr Drógu aflvana bát til lands Fleira áhugavert Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Tekist á um framtíð Fjarðabyggðar Eru tilbúin og þyrstir í að komast heim Bandalag í bígerð um skipaumferð um Hormússund Afurðaverð » Afurð Dags. Meðalverð Þorskur, óslægður 30.4.26 595,04 kr/kg Þorskur, slægður 30.4.26 720,11 kr/kg Ýsa, óslægð 30.4.26 387,58 kr/kg Ýsa, slægð 30.4.26 349,60 kr/kg Ufsi, óslægður 30.4.26 243,80 kr/kg Ufsi, slægður 30.4.26 243,00 kr/kg Djúpkarfi 16.3.26 245,00 kr/kg Gullkarfi 30.4.26 358,43 kr/kg Litli karfi 22.4.26 6,00 kr/kg Blálanga, óslægð 26.4.26 45,00 kr/kg Fleiri tegundir » Nýjustu landanir » 30.4.26 Báran SI 86 Grásleppunet Þorskur 145 kg Skarkoli 68 kg Steinbítur 3 kg Ufsi 2 kg Samtals 218 kg 30.4.26 Sæþór EA 101 Grásleppunet Grásleppa 803 kg Samtals 803 kg 30.4.26 Fíi ÞH 11 Grásleppunet Grásleppa 926 kg Þorskur 33 kg Skarkoli 3 kg Samtals 962 kg 30.4.26 Finni NS 21 Grásleppunet Skarkoli 96 kg Ýsa 55 kg Þorskur 45 kg Samtals 196 kg Skoða allar landanir »

Share this article