Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kaffitár lokar síðustu kaffihúsunum

Read Full Article →

Kaffitár hefur ákveðið að loka síðustu kaffihúsum fyrirtækisins í Kringlunni og við Háskólann í Reykjavík. Þetta kemur fram á Facebook -síðu Kaffitárs en þar segir að kaffihúsin verði lokuð 31. maí nk. og með því ljúki 31 árs sögu kaffihúsanna. Fyrirtækið segir að þrátt fyrir lokunina séu spennandi tímar fram undan og mun Kaffitár til að mynda halda áfram að bjóða upp á pop-up kaffibari á viðburðum. Kaffitár mun sömuleiðis halda áfram að framleiða kaffi í kaffibrennslu fyrirtækisins. Samkvæmt Facebook-færslu Kaffitárs verða allar vörur seldar á afslætti út maímánuð og hvetur fyrirtækið viðskiptavini, sem eiga fyrirframgreidd kaffikort eða gjafakort, að nýta þau sem allra fyrst. Sjá einnig Fjórða lokunin á rúmum tveimur árum Viðskiptablaðið fjallaði um það í mars í fyrra þegar ákvörðun var tekin um að loka kaffihúsi Kaffitárs við Höfðatorg eftir 17 ára rekstur. Kaffihúsi Kaffitárs í Þjóðminjasafninu var sömuleiðis lokað í byrjun árs 2021 og frá 2023 til 2024 voru kaffihús félagsins við Nýbýlaveg, Bankastræti og Stórhöfða einnig lokuð.

Share this article