Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 5.5.2026 | 16:29 | Uppfært 16:48 Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Marta Rut Pálsdóttir, framkvæmdastýra kaffihúsa Kaffitárs, segir erfiðar rekstraraðstæður kaffihúsa undanfarin ár hafi spilað inn í ákvörðunina. Samsett mynd/Ljósmynd/Kaffitár/mbl.is/Karítas Valgerður Birna Magnúsdóttir [email protected] Setja bókamerki Dyrum síðustu kaffihúsa Kaffitárs hefur verið lokað í síðasta sinn og mun fyrirtækið nú snúa sér alfarið að kaffibrennslu. Stjórnendur segja að erfiðar rekstraraðstæður kaffihúsa undanfarin ár hafi spilað inn í ákvörðunina, enda hafi rekstrarumhverfið breyst og ýmsar ytri aðstæður þyngt róðurinn talsvert. „Það eru breyttir tímar,“ segir Marta Rut Pálsdóttir, framkvæmdastýra kaffihúsa Kaffitárs, í samtali við mbl.is . Síðasta sumar var Marta til viðtals við mbl.is í tengslum við áhrif hækkandi heimsmarkaðsverðs á kaffi á rekstur veitingahúsa, og þar sagði hún ástandið valda því að þolmörkum væri náð, bæði hjá viðskiptavinum og sjálfu fyrirtækinu. Frétt af mbl.is Róðurinn þyngist hjá kaffihúsum Frétt af mbl.is Innkaupsverð næstum tvöfaldast Rekstrarumhverfið breyst töluvert Marta segir að samhliða ákvörðuninni fari fram breytingar innan fyrirtækisins. „Við höfum ákveðið að einbeita okkur að kaffibrennslunni, pop-up barnum, nýjum kaffitegundum og verslunum í þjóðfélaginu,“ segir hún. „Reksturinn hefur gengið erfiðlega, svo við tókum þessa ákvörðun áður en verr færi.“ Frétt af mbl.is Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Marta segir rekstrarumhverfi fyrirtækisins hafa breyst töluvert frá því að fyrirtækið var selt árið 2019 og nýir rekstraraðilar tóku við, en árið 2019 starfrækti fyrirtækið sjö kaffihús. Í kjölfar heimsfaraldsins fækkaði kaffihúsum fyrirtækisins jafnt og þétt, og í dag var greint frá ákvörðun um að eftirstandandi kaffihúsum Kaffitárs í Kringlunni og Háskólanum í Reykjavík yrði lokað. Frétt af mbl.is Svipmynd: Kaffiverð ekki hærra síðan 1977 Kaffiverðið rétt sig af Á síðasta ári var greint frá því að hækkun heimsmarkaðsverðs á kaffi hefði þyngt rekstur kaffihúsa Kaffitárs mikið, en það virðist að mestu leyti hafa rétt sig af samkvæmt greiningu Alþjóðakaffistofnunarinnar (ICO). Fyrirtækið mun nú einbeita sér að kaffibrennslunni, sem sameinaðist Nýju kaffibrennslunni á Akureyri undir lok síðasta árs að sögn Mörtu. „Við erum að einbeita okkur að þeim rekstri sem stendur, og erum til dæmis komin með nýja tegund af kaffi á markað sem heitir Skuggatár og hefur fengið góðar viðtökur.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Skrifaði undir samning í Garðabænum 23 saklausir vegfarendur látist Upplýsingum um nemendur mögulega lekið „Við settum markið hátt og það tókst“ Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Umræðan Enginn einn í lokin Varnir vinaþjóða í 75 ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Villandi og rangt“ orðalag í frumvarpi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Byrja að sekta fyrir nagladekkin um helgina Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Versnar með hverju ári að óbreyttu Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Skrifaði undir samning í Garðabænum 23 saklausir vegfarendur látist Upplýsingum um nemendur mögulega lekið „Við settum markið hátt og það tókst“ Kaffihúsum Kaffitárs lokað: „Það eru breyttir tímar“ Umræðan Enginn einn í lokin Varnir vinaþjóða í 75 ár Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt stefnir í skelfileg úrslit Engin gögn til um samning við ESB „Vil meina að ég hafi sýnt töluverða viðleitni“ Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Versnar með hverju ári að óbreyttu Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Eins konar æði gripið Íslendinga Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás

Share this article