Innlent | mbl | 5.5.2026 | 21:44 Barist um hylli kjósenda á einni mínútu Setja bókamerki Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sjálfstæðisflokkurinn eykur forskotið X26 – Oddvitar á Seltjarnarnesi etja kappi Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu X26 – Oddvitar í Mosó mætast Sólveig Anna: „Innihaldsrýr pólitík“ » Fleiri tengdar fréttir Fulltrúar þeirra flokka sem eru í framboði í Mosfellsbæ fengu mínútu til að kjarna sín stefnumál. Áherslur flokkanna eru ólíkar þótt sleginn væri sami tónn, en allir vilja þeir tryggja framþróun bæjarins. Michele Rebora, fyrir hönd Vina Mosfellsbæjar, lagði sérstaka áherslu á sjálfstæði listans og sagði hann eingöngu vinna í þágu bæjarins. Hann gagnrýndi aðra flokka fyrir tengsl við landsmálapólitík og sagði slíkt geta haft áhrif á forgangsröðun verkefna. „Við erum bara einungis að hugsa um Mosfellsbæ,“ sagði hann. Gylfi Þór Þorsteinsson oddviti Viðreisnar lagði áherslu á stöðugleika og traust. Hann sagði kjósendur vita hvað þeir fá með því að styðja flokkinn. „Þeir sjá það í rekstri bæjarins í dag og geta séð það á málefnum okkar sem eru birt á heimasíðunni hver þau verða til framtíðar,“ sagði hann. „Þetta snýst um manneskjur og traust. Hverjum treystið þið best til þess að sinna því starfi sem bæjarstjórn krefst?“ Fjölbreyttur listi og íhygli í rekstri Oddviti Sjálfstæðisflokksins, Hilmar Gunnarsson, benti á sterkan og fjölbreyttan framboðslista flokksins eftir prófkjör. Hann minnti á að traust og þekking á frambjóðendum skipti mestu máli. „Þetta snýst ekki bara um það sem gerist núna síðustu dagana og kannski tvær vikurnar fyrir kosningar. Snýst ekki um það hverjir dreifa flestum rósum og sælgæti fyrir utan Krónuna. Þetta snýst um það hverja við þekkjum og hverjum við treystum til þess að halda áfram vegferð Mosfellsbæjar.“ Sveinn Óskar Sigurðsson oddviti Miðflokksins lagði áherslu á að listinn væri skipaður „venjulegu fólki úr bænum“ sem hefði víðtæka reynslu. Sú reynsla sagði hann Miðflokkinn munu nýta vel í þágu Mosfellsbæjar. „Við treystum á að þú, kjósandi góður, hugir að því hvað hefur gerst hingað til og hvert þið viljið stefna,“ sagði hann. „Við erum skynsemisflokkur og leggjum áherslu á það að kanna allt áður en ákvörðun er tekin og gæta þess að sé vel farið með fjármuni þína.“ Traustur rekstur og börn í forgrunni Ólafur Ingi Óskarsson stóð vaktina í þessari kosningaumfjöllun fyrir Samfylkinguna. Hann minnti á að samstarfið á síðasta kjörtímabili hafi verið gott og skilað góðum rekstri. Sagði hann jafnframt að flokkurinn væri fyllilega tilbúinn til að standa við kosningastefnuskrá sína. „Hún er fullfjármögnuð og við viljum fara í þá vegferð með Mosfellingum að halda áfram með traustan rekstur,“ sagði hann. „Við ætlum að halda áfram með meiri velferð og við viljum hafa reksturinn áfram sjálfbæran.“ Framsóknarflokkurinn minnist einnig á gott kjörtímabil en samkvæmt oddvita þeirra, Sveini Birgissyni, leggur flokkurinn áherslu á gagnsæi, íbúasamráð og velferðarmál, sérstaklega málefni barna. „Við höfum lagt mikla áherslu á gagnsæi og virkt íbúasamráð. Svo höfum við verið með lýðheilsu og menningarmál og börnin okkar mikið í forgrunni og rauðan þráð í því sem við höfum verið að standa fyrir og vinna að,“ segir hann og bætti því við að ábyrgur rekstur myndi liggja til því starfi til grundvallar. Tengdar fréttir Sveitarstjórnarkosningar Sjálfstæðisflokkurinn eykur forskotið X26 – Oddvitar á Seltjarnarnesi etja kappi Sjálfstæðisflokkurinn á siglingu X26 – Oddvitar í Mosó mætast Sólveig Anna: „Innihaldsrýr pólitík“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hættur sem þjálfari Grindavíkur Barist um hylli kjósenda á einni mínútu Var kominn tími á mark hjá mér Vilja byggja 24 námsmannaíbúðir í Hveragerði Þróttarar upp í þriðja sæti Umræðan Enginn einn í lokin Fáir hafa reynzt Íslandi verr Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Allt stefnir í skelfileg úrslit Enn eitt dæmi um gullhúðun Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Áhættumat ekki gert eftir tilfinningu Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Tveir fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás Nýjast á mbl.is » Hættur sem þjálfari Grindavíkur Barist um hylli kjósenda á einni mínútu Var kominn tími á mark hjá mér Vilja byggja 24 námsmannaíbúðir í Hveragerði Þróttarar upp í þriðja sæti Umræðan Enginn einn í lokin Fáir hafa reynzt Íslandi verr Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Engin gögn til um samning við ESB Spánn tekur við skipinu með hantaveirunni Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Einkunnaverðbólga enn vandamál: Fá ekki rétt mat Mest lesið Í gær Í vikunni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Tveir fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys Hafa nú selt um 100 íbúðir á Heklureit Húsnæðislán á 47 sekúndum Þarf að útrýma meindýrum og sótthreinsa allt Blikur á lofti í byggingariðnaði Rök fyrir því að almyrkvinn komi á versta tíma Börn á Íslandi tveimur árum á eftir Gaf óvart í og keyrði inn í Kaupang Sjálftavirkni aukist og land rísi Skipið bókað í Keflavík og á Akureyri Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Myndir: Björgvin Halldórsson jarðsunginn Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Drengur fluttur á bráðamóttöku eftir hópárás