Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Þurfa að eiga þetta við eigin samvisku

Read Full Article →

Þriggja manna óháður borgarstjórnarflokkur fyrrverandi Sjálfstæðisfólks sem gekk í Miðflokkinn tekur formlega til starfa á föstudaginn. Í flokknum verða borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir sem gengu í Miðflokkinn fyrir helgi og Helgi Áss Grétarsson fyrrverandi fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks sem gekk í sama flokk í janúar. Þetta verður níundi flokkurinn í borgarstjórn og sá fjórði í minnihlutanum. Enginn að krefjast að fólk stígi til hliðar Sjálfstæðisflokkurinn fékk sex fulltrúa kjörna í sveitarstjórnarkosningunum 2022, en er með fjóra eftir þetta. Kjartan og Marta sitja hvort um sig í þremur ráðum á vegum borgarinnar, sem þau voru kjörin í sem fulltrúar Sjálfstæðisflokksins. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík hefur ekki gefið fréttastofu kost á viðtali, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir undanfarna daga. Í skriflegu svari segir hún engan í Sjálfstæðisflokknum krefjast að kjörnir fulltrúar stígi til hliðar. „Það á ætíð hver og einn við eigin samvisku hvað hann gerir í þeim efnum,“ skrifar Hildur í svari sínu. Finnst þér líklegt að þessir borgarfulltrúar, sem hafa gengið til liðs við annan flokk, gæti hagsmuna Sjálfstæðisflokksins og vinni að stefnumálum hans í þeim ráðum og nefndum sem þau sitja í? „Nei.“ Ekki öll kurl komin til grafar Hefur þú, eða aðrir í Sjálfstæðisflokknum, leitað til borgarlögmanns eða annarra embættismanna borgarinnar um hvernig hægt væri að leysa þetta? „Ég hef rætt stuttlega við skrifstofu borgarstjórnar.“ Hefur þetta áhrif á fjölda þeirra sæta sem flokkurinn á í ráðum og nefndum? „Ekki eru öll kurl komin til grafar í þeim efnum.“ Í svarinu skrifar Hildur jafnframt að hún hafi verið í samskiptum við þau Kjartan og Mörtu síðan tilkynnt var um vistaskipti þeirra á föstudaginn. Þau samskipti hafi verið „hreinskiptin.“ Dapurt að fólk skuli segja skilið við flokkinn Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins segir þetta ekki sérstakt áhyggjuefni. „Mér finnst það eiginlega dapurt að fólk skuli hafa ákveðið að segja skilið við Sjálfstæðisflokkinn. Og ég ætla að ítreka að mér er ekki kunnugt um að það hafi verið einhver málefnalegur ágreiningur í borgarstjórnarflokknum.“ „Svona er stundum pólitíkin“, segir Guðrún. „Og mér finnst það allsérstakt að mér sýnist að nokkuð margir séu komnir í framboð fyrir Miðflokkinn sem hafa reynt fyrir sér hjá Sjálfstæðisflokknum og ekki náð þeim árangri sem fólk vænti.“ Ekki til marks um leiðtogakrísu, að mati formannsins Er þetta til marks um leiðtogakrísu? „Nei, alls ekki.“ Borgarfulltrúahópurinn hlýtur að standa veikari eftir. Fjórir eru færri en sex... „Hann stendur kannski eitthvað veikari eftir þessar vikur sem eru eftir af þessu kjörtímabili en það er búið að stilla upp lista fyrir komandi kosningar.“

Share this article