Mörtu Guðjónsdóttur og Kjartani Magnússyni, fyrrverandi borgarfulltrúum Sjálfstæðisflokksins sem gengu til liðs við Miðflokkinn, verður vikið úr öllum ráðum og nefndum í borginni. Þetta herma heimildir fréttastofu. Marta og Kjartan hafa stofnað nýjan borgarstjórnarflokk óháðra sem verður tilkynnt um á fundi forsætisnefndar á föstudaginn. Marta og Kjartan tilkynntu um vistaskiptin á föstudaginn. Það er grundvallarregla að kjörinn fulltrúi haldi umboði sínu, hvort sem er á Alþingi eða í sveitarstjórn, þó hann skipti um flokk eða segi sig úr honum. Umboðið er persónulegt, samkvæmt samþykkt Reykjavíkurborgar og Dóra Björt Guðjónsdóttir hélt til dæmis stöðu sinni þegar hún gekk úr borgarstjórnarflokki Pírata í Samfylkinguna í desember. Hringekja í vændum Það sem flækir málið er að Miðflokkurinn er ekki með borgarfulltrúa í Reykjavík og því geta Marta og Kjartan ekki gengið til liðs við neinn borgarstjórnarflokk. Hvort um sig situr í þremur ráðum sem fulltrúi Sjálfstæðisflokksins. Heimildir fréttastofu herma að Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í borginni muni leggja til á næsta borgarstjórnarfundi sem er á þriðjudaginn að þau víki sæti úr þeim ráðum sem þau sitja í. Búist er við að þá fari hringekja í gang í ráðum borgarinnar, sem eru sex, en hvaða borgarfulltrúi sem er getur farið fram á endurkjör. Sjö fulltrúar eru í hverju ráði, meirihlutinn á fjóra, Sjálfstæðisflokkur tvo og Framsókn einn. Aftur á móti hefur Sjálfstæðisflokkur nú fjóra borgarfulltrúa í stað sex áður og því gæti fulltrúum þeirra fækkað um helming. Gætu samið við aðra flokka Marta og Kjartan gætu gert samkomulag við annaðhvort Framsókn eða Viðreisn, sem á einn borgarfulltrúa um að fá fulltrúa í ráðum. Gangi það ekki eftir, gætu þau óskað eftir að fá áheyrnarfulltrúa, en samkvæmt samþykkt borgarinnar er það háð vilja meirihlutans. Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni hefur ekki gefið kost á viðtali, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir fréttastofu þar um .