Kjartan Magnússon fyrrverandi borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn verður formaður nýs borgarstjórnarflokk óháðra sem tekur formlega til starfa á föstudaginn. Auk Kjartans eru í flokknum Marta Guðjónsdóttir, sem einnig var borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og Helgi Áss Grétarsson 1. varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins sem gekk til liðs við Miðflokkinn í janúar. Þau Kjartan og Marta gerðu það á föstudaginn. Þetta verður 9. flokkurinn sem á fulltrúa í borgarstjórn. Hinir eru Flokkur fólksins, Píratar, Samfylkingin, Sósíalistaflokkurinn og VG sem mynda meirihluta. Og svo Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsóknarflokkurinn sem eru í minnihluta. Miðflokksfólk í ræðu og riti „Formlega erum við óháð,“ segir Kjartan. „En í ræðu og riti verðum við Miðflokksfólk.“ Þar á hann við að samkvæmt sveitarstjórnarlögum geta þau ekki stofnað nýjan borgarstjórnarflokk Miðflokksins þar sem flokkurinn fékk engan borgarfulltrúa kjörinn í síðustu kosningum 2022. Samkvæmt heimildum fréttastofu hyggst Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðismanna í Reykjavík víkja Kjartani og Mörtu úr þeim ráðum borgarinnar sem þau voru kjörin í þegar þau tilheyrðu borgarstjórnarflokki Sjálfstæðisflokksins, en þau sitja hvort um sig í þremur ráðum. Það verður væntanlega lagt til á næsta borgarstjórnarfundi, sem verður á þriðjudaginn. Mesta starfið í ráðum Spurður um viðbrögð sín við því segist Kjartan telja það ganga í berhögg við lýðræðisleg vinnubrögð. „Mesta starfið á sér stað í ráðum, þar eiga flestöll mál upphaf sitt. Mér þætti það vera í ósamræmi við lýðræðislegan strúktúr borgarstjórnar að láta okkur hætta. Það er mikilvægt að allir borgarfulltrúar eigi aðild að ráðum.“ Marta segir að þau séu að skoða stöðu sína og alla möguleika. Verði þeim vikið úr ráðum og nefndum muni þau óska eftir að fá þar áheyrnarfulltrúa. „Borgarstjórn er fjölskipað stjórnvald, þannig að við eigum öll að vinna sameiginlega að málum,“ segir Marta. Þarf að fara rétta leið Spurð hvort þau myndu víkja sæti úr þeim ráðum sem þau sitja í, yrði þess farið á leit svarar Kjartan: „Ég myndi líklega ekki samþykkja það. En ég skil alveg hvers vegna það á að reyna það. “ „Það yrði að fara rétta leið,“ segir Marta. „Bera tillöguna upp á borgarstjórnarfundi og síðan hefði hún sinn gang, samkvæmt sveitarstjórnarlögum.“ Hildur Björnsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni hefur ekki gefið kost á viðtali, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir fréttastofu þar um síðustu daga.