- What: A Swedish air force unit is conducting airspace surveillance in Iceland.
- Impact: This is the first time Sweden has conducted airspace surveillance in Iceland since joining NATO.
Innlent | mbl | 12.2.2026 | 15:14 Fullkomin tímasetning til að leggja sitt að mörkum Rúmlega 100 manna flugsveit frá sænska flughernum annast loftrýmisgæslu um þessar mundir á Íslandi. Þetta er í fyrsta sinn sem Svíar sinna loftrýmisgæslu á Íslandi eftir að þeir gengu í Atlantshafsbandalagið (NATO). „Það hefur gengið mjög vel síðan við komum hingað. Starfsbræður okkar hjá Landhelgisgæslunni hafa tekið mjög vel á móti okkur og séð fyrir öllu sem við þurfum,“ segir Johan Lageradt, ofursti og yfirmaður sænska liðsins, í samtali við mbl.is. Blaðamaður og ljósmyndari mbl.is fóru á öryggissvæðið í Keflavík í dag þar sem sænski herinn hefur aðsetur. Sex sænskar JAS 39 Gripen orrustuþotur eru á Keflavíkurflugvelli auk 110 liðsmanna hersins. Lageradt segir að verkefnið sem þeir nú sinni hafi verið lengi í undirbúningi, löngu áður en spennan á norðurslóðum jókst. „Við höfum verið að skipuleggja þetta verkefni í næstum ár, áður en allt hitnaði á norðurslóðum. Að mínu mati er þetta fullkomin tímasetning til að leggja okkar af mörkum til heildarvarna á norðurslóðum með því að vera hér,“ segir ofurstinn. Gengið snurðulaust Erlendar flugsveitir NATO koma hingað til lands að jafnaði þrisvar á ári til að sinna loftrýmisgæslunni. Aðspurður segir Lageradt að aðstæður hafi verið mun betri á Íslandi en gert var ráð fyrir. Veðrið hefur leikið við sænska herliðið síðan þeir komu hingað til lands í byrjun febrúar. „Aðstæður hafa verið mjög góðar. Veðrið hefur verið einstaklega gott miðað við árstíma þannig að þetta hefur gengið snurðulaust fyrir sig,“ segir Lageradt. Johan Lageradt, ofursti og yfirmaður sænska liðsins, mbl.is/Eggert Jóhannesson Frétt af mbl.is Svíarnir komnir með 110 liðsmenn Fyrsta sinn með orrustuþotur Eins og áður segir er þetta í fyrsta sinn sem Svíar annast loftrýmisgæslu hér á landi undir formerkjum NATO. Lageradt segir að fyrir tveimur árum hafi sænski herinn tekið þátt í lofteftirlitsverkefni með NATO auk þess sem herinn hefur komið hingað til lands á heræfingar. Þá tóku Svíar einnig þátt í heræfingunni Iceland Air Meet árið 2014 þar sem þeir önnuðust loftrýmisgæslu ásamt Norðmönnum, Hollendingum, Bandaríkjamönnum og Finnum. Verkefnið sem þeir nú sinna er í fyrsta skipti þar sem þeir eru með orrustuþotur og flugumsjónarmenn frá sænska hernum. Hermennirnir verða hér þar til um miðjan mars. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sökuðu Bondi um yfirhylmingu í Epstein-málinu Öryggisstjóri Anthropic hættir og segir heiminn í hættu Þröngt á þingi á loðnumiðum Fullkomin tímasetning til að leggja sitt að mörkum United-maðurinn þarf hjólastól Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni Dómur staðfestur yfir konu sem myrti son sinn Kyndir undir kreppu á Kúbu „Risastórt skref fyrir íþróttahreyfinguna“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Fengu skemmu gefins Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Sökuðu Bondi um yfirhylmingu í Epstein-málinu Öryggisstjóri Anthropic hættir og segir heiminn í hættu Þröngt á þingi á loðnumiðum Fullkomin tímasetning til að leggja sitt að mörkum United-maðurinn þarf hjólastól Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni Unnið gegn eigin markmiðum Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Nýtt merki undir Tenerife: Vísindaráð kallað saman Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Fengu skemmu gefins Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson