Koffín var efst á lista yfir lyfjaleifar sem fundust í yfirborðsvatni á þremur stöðum við mælingar Umhverfis- og orkustofnunar í vetur . Stofnunin segir mikilvægt að fólk skili ónotuðum lyfjum til förgunar í apótek og sturti þeim aldrei í niðurföll eða salerni. Skimað hefur verið fyrir efnum á vaktlista Evrópusambandsins frá 2018. Þar eru efni sem geta haft áhrif á vatnalíf, til dæmis verkjalyf, geðlyf, hjarta- og æðalyf, sýklalyf, kynhormón og fleira. Efnin berast með þvagi og hægðum en líka þegar lyfjum er sturtað í salerni. Lyfjaleifar greindust í Kópavogslæk, Reykjavíkurtjörn, Varmá og Ölfusá, við skimun Umhverfis- og orkustofnunar í nóvember. Verkjalyf, sýklalyf og ofnæmislyf Koffín var efst á lista alls staðar nema í Varmá, þar sem meira fannst af verkjalyfinu parasetamól. Íbúprófen fannst einnig á flestum stöðum og ofarlega á þessum listum voru einnig pensilín auk efna á borð við Fexófenadrín, virka efnið í ýmsum ofnæmislyfjum, Naproxen, sem er bólgueyðandi og Gabapentín, sem er notað við flogaveikismeðferð. Kynhormónin testósterón og prógesterón fundust einnig á öllum stöðum. Engin lyf eru með lögbundin viðmiðunargildi hér á landi en Umhverfis- og orkustofnun býst við því að þau verði sett fyrir tiltekin efni á næstu árum. Skólphreinsistöðvar á Íslandi eru almennt ekki hannaðar til að fjarlægja lyfjaleifar. Umhverfis- og orkustofnun segir mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk sé meðvitað um áhrif lyfja á umhverfið, fólk noti lyf samkvæmt leiðbeiningum, skili ónotuðum lyfjum til förgunar í apótek og sturti þeim aldrei í niðurföll eða salerni.