Koffín var efst á lista yfir lyfjaleifar sem fundust í yfirborðsvatni á tveimur stöðum við mælingar Umhverfis- og orkustofnunar í vetur . Stofnunin segir mikilvægt að fólk skili ónotuðum lyfjum til förgunar í apótek og sturti þeim aldrei í niðurföll eða salerni. Skimað hefur verið fyrir efnum á vaktlista Evrópusambandsins frá 2018. Þar eru efni sem geta haft áhrif á vatnalíf, til dæmis verkjalyf, geðlyf, hjarta- og æðalyf, sýklalyf, kynhormón og fleira. Efnin berast með þvagi og hægðum en líka þegar lyfjum er sturtað í salerni. Umhverfis- og orkustofnun skimaði eftir lyfjaleifum í Kópavogslæk, Reykjavíkurtjörn, Varmá og Ölfusá í nóvember. Magn sem telst til lyfjaleifa fannst í Kópavogslæk og Reykjavíkurtjörn en í Varmá og Ölfusá mældust efni í of litlu magni til að hægt sé að segja til um það. Verkjalyf, sýklalyf og ofnæmislyf Koffín var efst á lista alls staðar nema í Varmá, þar sem meira fannst af verkjalyfinu parasetamól. Mörg efni greindust á öllum þessum stöðum en í of litlu magni til að teljast til lyfjaleifa. Þar má til að mynda nefna íbúprófen og pensilín auk efna á borð við Fexófenadrín, virka efnið í ýmsum ofnæmislyfjum, Naproxen, sem er bólgueyðandi, og Gabapentín, sem er notað við flogaveikimeðferð. Engin lyf eru með lögbundin viðmiðunargildi hér á landi en Umhverfis- og orkustofnun býst við því að þau verði sett fyrir tiltekin efni á næstu árum. Skólphreinsistöðvar á Íslandi eru almennt ekki hannaðar til að fjarlægja lyfjaleifar. Umhverfis- og orkustofnun segir mikilvægt að heilbrigðisstarfsfólk sé meðvitað um áhrif lyfja á umhverfið, fólk noti lyf samkvæmt leiðbeiningum, skili ónotuðum lyfjum til förgunar í apótek og sturti þeim aldrei í niðurföll eða salerni. Fréttin hefur verið uppfærð. Í fyrri útgáfu kom fram að lyfjaleifar hefðu fundist á öllum fjórum stöðum en hið rétta er að á tveimur þeirra fundust þau í of litlu magni til að teljast lyfjaleifar.