Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Framkvæmdir gætu kostað milljarða

  • What: Road construction on Fjarðarheiði in Iceland could cost billions of Icelandic krónur.
  • Impact: The road is the only connection to Seyðisfjörður and is considered difficult to maintain in winter.
Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.2.2026 | 16:10 Framkvæmdir á Fjarðarheiði gætu kostað milljarða Vegurinn, sem er um 25 km langur, er eina vegtenging Seyðisfjarðar og er hann talinn sérstaklega erfiður í vetrarþjónustu, að því er fram kemur í minnisblaðinu. Ljósmynd/Ómar B. Vegagerðin áætlar að umferðaröryggisúrbætur, styrking og endurbætur á veginum yfir Fjarðarheiði, miðað við núverandi vegbreidd, kosti um 2 til 2,5 milljarða. Vegurinn samræmist í dag ekki þeim kröfum sem um hann eru gerðar, en til að mynda þyrfti hann að vera 2-2,5 metrum breiðari. Kostnaður við breikkunina gæti numið 6 til 7 milljörðum. Þetta kemur fram í minnisblaði Vegagerðarinnar sem unnið var fyrir innviðaráðuneytið í byrjun árs. Austurfrétt greindi fyrst frá. Frétt af mbl.is Fjarðarheiðargöngum frestað Endurbætur ekki greindar út af jarðgöngum Seyðisfjarðarvegur sem liggur um Fjarðarheiði er hæsti fjallvegur í stofnvegakerfi landsins. Vegurinn, sem er um 25 km langur, er eina vegtenging Seyðisfjarðar og er hann talinn sérstaklega erfiður í vetrarþjónustu, að því er fram kemur í minnisblaðinu. Þar segir að ekki hafi verið lagt í mikla vinnu við skoðun og greiningu á endurbótum á veginum undanfarin ár í ljósi þess að jarðgöngu áttu að leysa hann af hólmi „innan tíðar“. Í dag liggur fyrir að ekki verður af þeim Fjarðarheiðargöngum í bráð. Göngin eru ekki lengur að finna á forgangslista ríkisins þrátt fyrir að hafa áður vermt efsta sæti hans. Frétt af mbl.is Ráðherra neitaði sveitarstjórninni um fund Vegurinn aðeins 6,5 til 7 metra breiður Þar sem ekki er nýlega búið að vinna greiningu á endurbótum byggir minnisblað Vegagerðarinnar á eldri umferðaröryggisúttekt. Í minnisblaðinu er lagður fram áætlaður kostnaður við þrenns konar framkvæmdir. Í fyrsta lagi eru það framkvæmdir við umferðaröryggisaðgerðir á vegi og öryggissvæði vegar. Áætlaður kostnaður er metinn á um 500 milljónir. Aðgerðirnar felast í meginatriðum í að setja niður vegrið og minnka bratta vegfláa og lagfæringum á öryggissvæði. Í öðru lagi eru það framkvæmdir við styrkingar og endurbætur miðað við núverandi vegbreidd. Tekið er fram að vegurinn sé missiginn, með hjólförum og kantskemmdum. Þá sé burði víða ábótavant og slitlag orðið lélegt. Sementsfesta þarf mestan hluta vegarins svo styrking og endurbætur, miðað við núverandi vegbreidd, gætu kostað um 1,5 til 2 milljarða. Í þriðja lagi er það breikkun vegarins. Seyðisfjarðarvegur samræmist í dag ekki þeim kröfum sem um hann eru gerðar. Í minnisblaðinu segir að vegur af þessari gerð ætti að vera 9 metra breiður skv. vegaskrá. Aftur á móti er vegurinn aðeins um 6,5 til 7 metra breiður. Ef breikka ætti veginn þannig að hann myndi ná 9 metrunum gæti það kostað 6 til 7 milljarða. Í minnisblaðinu er þó tekið fram að breikkun upp í 8 metra myndi strax auka öryggi verulega og sú framkvæmd myndi aðeins kosta um 4 til 5 milljarða, gróflega reiknað. „Ljóst er að núverandi vegstæði mun ekki fullnægja kröfum um langhalla og verður að skoða það sérstaklega komi til framkvæmda,“ segir í minnisblaðinu. Frétt af mbl.is Þurftu frá að hverfa vegna blindófærðar Frank strax að fá nýtt starf? Borgin rýmkar reglur um áfengissölu á íþróttaviðburðum „Starfsmenn voru sannarlega í hættu“ Húsasmiðjan opnar nýja verslun í Reykjanesbæ Framkvæmdir gætu kostað milljarða Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Ekki með eigin flokk að baki sér Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Fengu skemmu gefins Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Frank strax að fá nýtt starf? Borgin rýmkar reglur um áfengissölu á íþróttaviðburðum „Starfsmenn voru sannarlega í hættu“ Húsasmiðjan opnar nýja verslun í Reykjanesbæ Framkvæmdir gætu kostað milljarða Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vilja bílhræin burt af lóðinni Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Framkvæmdir gætu kostað milljarða Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar Fengu skemmu gefins Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article