- What: Ukrainian President Zelensky commented on the disqualification of athlete Vladyslav Heraskevych from the Winter Olympics for displaying images of fallen Ukrainian athletes.
- Impact: Zelensky stated that sports should not mean amnesia and that the Olympic movement should stop the war.
Volodymyr Zelensky, forseti Úkraínu, hefur tjáð sig um málefni íþróttakappans Vladyslav Heraskevych. Zelensky segir að íþróttir ættu ekki að þýða minnisleysi og að ólympíuhreyfingin ætti að stöðva stríð fremur en hið andstæða. „Við erum stolt af Vladyslav og því sem hann gerði. Að hafa hugrekki er meira virði en nokkur önnur medalía.“ Magasleðakappinn Heraskevych var dæmdur úr leik á Vetrarólympíuleikunum sem nú standa yfir. Var það vegna hjálms sem sýnir myndir af úkraínsku íþróttafólki sem fallið hefur í innrásum Rússa í Úkraínu. Zelensky birti yfirlýsingu sína á samfélagsmiðlinum X fyrr í dag.