Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Zelensky segir Pútín hafa hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir fjórum árum

Read Full Article →

Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir í viðtali við Jeremy Bowen á BBC að Rússlandsforseti hafi hleypt þriðju heimsstyrjöldinni af stað með innrásinni fyrir rétt tæpum fjórum árum. Volodymyr Zelensky kvaðst ekki telja að Vladimír Pútín léti staðar numið við Úkraínu. Hernaðarleg og efnahagsleg mótspyrna væri eina leiðin til að stöðva hann í tilraunum til frekari landvinninga. „Rússar vilja troða sínum lífstíl upp á heiminn,“ sagði Zelensky og bætti við að það væri sigur alls heimsins fengi Pútín ekki að leggja Úkraínu undir sig. Hann áréttaði að ekki kæmi til greina að gefa eftir þann fimmtung Úkraínu sem Rússar hafa hernumið í austur- og suðurhlutanum. „Ég sé þetta ekki sem eftirgjöf lands heldur sem niðurlægingu. Við værum að yfirgefa hundruð þúsunda Úkraínumanna sem þar búa,“ sagði Zelensky og bætti við að sundrung myndi skapast í landinu við eftirgjöfina. Hún myndi mögulega friðþægja Pútín í eitt tvö ár. „En hvert færi hann næst? Það eina sem við vitum er að hann vill halda áfram að heyja stríð,“ sagði Zelensky. Vestrænir diplómatar hafa síðan í fyrrasumar litið svo á að Donald Trump Bandaríkjaforseti liti á eftirgjöf lands sem lykil að vopnahléi og greinendur hafa sagt sigur Úkraínu útilokaðan án tilslakana. Zelensky benti Bowen á að hann væri staddur í Kyiv, höfuðborg ósigraðrar Úkraínu. „Munum við tapa? Að sjálfsögðu ekki, því við erum að berjast fyrir sjálfstæði Úkraínu,“ sagði Zelensky og ítrekaði að allt landsvæði yrði endurheimt frá Rússum. Það væri þó þrautin þyngri eins og staðan væri núna því Rússar hefðu á fleiri hermönnum að skipa og stærra vopnabúri. Úkraína hefði ekki efni á meira mannfalli. „Hvað er land án fólks? Satt að segja ekki neitt,“ sagði Zelensky. Hann sagði jafnframt að endurheimt landamæranna eins og þau voru 1991 við fall Sovétríkjanna væri ekki aðeins sigur, heldur sanngirni. Þeim Zelensky og Bowen fór mun fleira á milli sem lesa má á vef BBC.

Share this article