Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Zelensky kveðst reiðubúinn til viðræðna um leið og færi gefst

Read Full Article →

Hlé verður á þríhliða viðræðum milli Úkraínumanna, Rússlands og Bandaríkjanna um vopnahlé meðan stríðið í Mið-Austurlöndum varir. Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti greindi frá þessu í daglegu ávarpi á miðvikudagskvöld en sagðist eiga í nær daglegum samskiptum við bandarísk stjórnvöld. Úkraínskir og bandarískir embættismenn hittust í Genf 26. febrúar og ræddu næstu skref í friðarviðræðunum og þá bjóst Zelensky við að næsta viðræðulota yrði í Abu Dhabi snemma í mars. Hann segir Úkraínumenn reiðubúna til viðræðna um leið og öryggisaðstæður og ástand heimsmála leyfi það. Tveggja daga samningaviðræðum lauk í Genf um miðjan febrúar án nokkurrar niðurstöðu annarrar en að erindrekar sögðu vel hafa gengið, þótt tekist hefði verið hressilega á. Þess var nýlega minnst að fjögur ár eru frá því Vladimír Pútín Rússlandsforseti fyrirskipaði allsherjarinnrás í Úkraínu. Bandaríkjamenn hafa reynt að koma á friði með skilyrðum um eftirgjöf lands sem Úkraínumenn hafa ekki getað sætt sig við. Friður virðist því ekki í sjónmáli og ekkert útlit fyrir að samkomulag náist um helstu ásteitingarsteinana.

Share this article