Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Úkraínuforseti segir rússneska íhluti í írönskum drónum notuðum gegn Arabaríkjum og Bandaríkjaher

This article describes a geopolitical threat vector involving Iranian attack drones, used against U.S. and Arab forces, containing Russian-manufactured components and being deployed with intelligence support from Russian secret services. Ukrainian President Zelensky asserts this indicates deep collaboration between Iran and Russia, extending to organized killings in the Middle East and Europe and the use of similar Iranian drones by Russia against Ukrainian infrastructure. The article underscores the need for coordinated, international defenses against this hybrid threat but does not provide technical vulnerability details, CVSS scores, or software version information.
Read Full Article →

Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir rússneska íhluti hafa fundist í braki íranskra árásardróna sem beitt hefur verið gegn Bandaríkjaher og nokkrum Arabaríkjum. Það segir Zelensky að bendi til víðtækrar samvinnu Írana og Rússa. Vísbendingar væru einnig um að leyniþjónustur Rússlands gæfu Írönum upplýsingar sem auðveldaði þeim árásir á bandarískar hersveitir. Með því bergmálar Zelensky The Washington Post sem hafði eftir ónafngreindum heimildarmanni að Rússar veittu Írönum umfangsmiklar upplýsingar. Bandarískir ráðamenn hafa sagt það litlu skipta enda væri herinn við það að tortíma klerkastjórninni. Volodymyr Zelensky kvað augljóst að írönsk og rússnesk stjórnvöld ynnu saman að skipulögðum drápum í Mið-Austurlöndum og Evrópu. Það undirstrikaði þörfina fyrir samhæfðar, alþjóðlegar varnir, ekki síst gegn írönsku árásardrónunum sem Rússar beita af hörku gegn innviðum í Úkraínu. Zelensky kvaðst jafnframt hafa rætt við Emmanuel Macron forseta og ítrekað að Úkraína þyrfti áfram á stuðningi að halda við að verjast innrásarher Rússlands.

Share this article