Security News

Cybersecurity news aggregator

CRITICAL Attacks RÚV

Rússar skutu á fimmta hundrað eldflaugum og drónum að Úkraínu

This article describes a kinetic military threat, not a software vulnerability, involving a large-scale, coordinated missile and drone attack by Russia against civilian and infrastructure targets in Ukraine. The attack vector is physical ordnance delivery via 39 cruise/ballistic missiles and 420 drones aimed at multiple cities. No CVSS score, affected software versions, patches, or technical workarounds are applicable or provided for this type of physical security incident.
Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 9 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Rússar skutu á fimmta hund­rað eld­flaug­um og drónum að Úkra­ínu Brynjólfur Þór Guðmundsson Rússar skutu 39 eldflaugum og 420 drónum að borgaralegum skotmörkum í Úkraínu í nótt, sagði Volodomyr Zelensky, forseti Úkraínu, í morgun. Drónunum og eldflaugunum var beint að fjölda borga og bæja í Úkraínu, þar á meðal höfuðborginni Kyiv og Kharkív. 23 særðust í árásum Rússa í nótt, þar á meðal sjö ára drengur, samkvæmt upplýsingum frá úkraínskum yfirvöldum. Úkraínumenn minntust þess í fyrradag að fjögur ár væru frá upphafi stríðsins. AP / Dan Bashakov Fyrir 19 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Erlent vinnu­afl er illa nýtt hér á landi að mati BHM BHM segir erlent vinnuafl vera illa nýtt hér á landi og að stjórnvöld og atvinnulíf þurfi að gera betur. Nauðsynlegt sé að laða innflytjendur að íslenskum vinnumarkaði. Fyrir 51 mínútuINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Mun meira at­vinnu­leysi sam­kvæmt tölum Hag­stof­unn­ar en Vinnu­mála­stofn­un­ar Atvinnuleysi í janúar var 7,3 prósent samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar, sem spyr fólk út í stöðu sína á vinnumarkaði. 4,9 prósent voru atvinnulaus samkvæmt tölum Vinnumálastofnunar sem heldur utan um formlega atvinnuleysisskrá. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Víða erfið færð að morgni Vetrarfærð er víða um land. Þungfærð eða þæfingsfærð er víða á norðvestanverðu landinu. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Rán Flyg­en­ring fer helst ekki í sturtu heima hjá sér og gefur út bók um sund­menn­ingu „Er þetta ekki það sem við erum að leita að? Samfélag, hittast og tala saman. Þetta er einhver lykill,“ segir Rán Flygenring sem gefur út safn teikninga af baðstöðum landsins sem er í senn handbók fyrir ferðamenn. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hvass­viðri og vara­söm akst­urs­skil­yrði Hríðarveður verður við Breiðafjörð og á Vestfjörðum í dag og akstursskilyrði varasöm. Vætusamt verður á sunnanverðu landinu en undir hádegi má búast við að þar kólni allhratt. Veðurfræðingur hvetur fólk að fylgjast með fréttum af færð og veðri. Fyrir 1 tímaERLENDAR FRÉTTIR Deilur og stríð Mesti liðs­safn­að­ur í tvo ára­tugi Á skömmum tíma hefur óvígur her verið byggður upp í kringum Íran. Þótt ákvörðun Bandaríkjaforseta um árás liggi ekki fyrir gæti borið til tíðinda í kringum helgina. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Mexíkó vann Ísland 4-0 Brynja Dögg Friðriksdóttir Leikmennirnir Everardo López og Helgi Guðjónsson á vellinum í Mexíkó. AP / Fernando Llano Mexíkóska karlalandsliðið í fótbolta vann Ísland með fjögurra marka sigri í A-landsleik sem fram fór í borginni Queretaro í Mexíkó í nótt. Íslenska liðið byrjaði vel og átti hættulegar sóknir sem markvörður Mexíkó varði örugglega. Þá skoruðu Mexíkanar tvö mörk í röð og hin mörkin tvö bættust svo við í síðari hálfleik. Þrátt fyrir góða kafla íslenska liðsins í leiknum þá voru heimamenn heilt yfir sterkari og unnu verðskuldaðan sigur. Arnar Gunnlaugsson þjálfari sagði, á vef KSÍ, eftir leik að hann væri ánægður með vinnusemina og að leikmenn hefðu lagt sig fram. Andstæðingurinn hefði verið mjög sterkur og svona leikir væru til að læra af þeim. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Í dag: Bik­ar­úr­slit í boði hjá körl­un­um Í dag ræðst það hvaða lið mætast í bikarúrslitum karla í handbolta. Fyrri leikurinn er Hafnarfjarðarslagur þar sem FH og Haukar mætast. ÍR og KA mætast í seinni leik dagsins. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Samn­inga­nefnd­ir Íran og Banda­ríkj­anna funda um kjarn­orku­samn­ing í dag Brynja Dögg Friðriksdóttir Samninganefndir Íran og Bandaríkjanna ætla að funda í Genf í Sviss í dag og reyna að ná samningum um kjarnorkumál. Bandaríkjaforseti Donald Trump sagði í stefnuræðu sinni í gær á Bandaríkjaþingi að Íranir væru búnir að þróa kjarnorkuvopn sem gætu ógnað Evrópu og bandarískum herstöðvum í nágrannalöndum Íran. Þá væru Íranar einnig að þróa langdræg kjarnorkuvopn sem gætu hæft Bandaríkin. Utanríkisráðuneyti Írans segir þessar fullyrðingar lygar. Fyrri viðræður samninganefndanna hafa ekki borið árangur fram til þessa og Bandaríkjaforseti hefur sagt bandaríska herinn tilbúinn til árása á Íran. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Demó­krat­ar saka Banda­ríkja­stjórn um yf­ir­hylm­ingu í Ep­stein-málinu Nýlegar upplýsingar benda til þess að hluti vitnisburðar konu frá árinu 2019 hafi ekki verið birtur í nýjum gögnum í Epstein-málinu. Konan sakaði Bandaríkjaforseta um kynferðisbrot gegn sér þegar hún var á aldrinum 13–15 ára. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Norður-Kórea Vill að Banda­ríkja­stjórn við­ur­kenni Norður-Kóreu sem kjarn­orku­þjóð Leiðtogi Norður-Kóreu segir að þjóð hans geti látið sér lynda við Bandaríkin ef Bandaríkjastjórn viðurkennir Norður-Kóreu sem kjarnorkuþjóð. Suður-Kórea er og verði helsti óvinur landsins. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Úkra­ínsk­ur dróna­fram­leið­andi opnar verk­smiðju Drónaframleiðandinn Ukrspecsystems opnaði í gær drónaverksmiðju í Suffolk á Englandi. Breska ríkisstjórnin hefur nú þegar keypt 80 slíka dróna fyrir úkraínska herinn. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kanada Stjórn­völd íhuga að breyta reglu­gerð­um um gervi­greind Kanadísk stjórnvöld hafa kallað eftir því að gervigreindarfyrirtækið OpenAI herði öryggiseftirlit sitt með færslum notenda. Fyrirtækið bannaði ChatGPT-reikning árásarkonunnar í Tumbler Ridge-skotárásinni nokkrum mánuðum fyrir árásina. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál „Ég sé ekki aðrar leiðir heldur en að færa ein­stak­linga frá spít­al­an­um“ Forstjóri Landspítalans segir til skoðunar að færa hluta af starfsemi göngudeildar út úr aðalspítalabyggingum til að skapa rými. Stöðugt verði að vinna að nýjum úrræðum þar sem strax fenni í sporin. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Real og PSG áfram í Meist­ara­deild Jóhann Páll Ástvaldsson Tchouameni leikmaður Real Madrid, til vinstr, og Pavlidis leikmaður Benfica, til hægri, berjast um boltann. EPA / SERGIO PEREZ Real Madrid og PSG eru komin áfram í Meistaradeild Evrópu. Liðin tryggðu sæti sín í 16-liða úrslitum með sigrum gegn Benfica og Monaco. Real vann leik kvöldsins 2-1 og einvígið samanlagt 3-2. PSG og Monaco gerðu 2-2 jafntefli og PSG vann einvígið samanlagt 5-4. Juventus vær nærri ótrúlegri endurkomu gegn Galatasaray. Juventus leiddi 3-0 og því þurfti framlengingu til að knýja fram sigurvegarar. Gestirnir frá Tyrklandi skoruðu tvö mörk í framlengingu og unnu því samanlagt 5-7. Þá tryggði Atalanta sig áfram með vítaspyrnu á sjöttu mínútu uppbótartímans gegn Dortmund. Liðið vann 4-1 og einvígið samanlagt 4-3. Fyrir 8 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Topp­lið­in tvö með sigra Jóhann Páll Ástvaldsson Danielle Rodriguez. RÚV / Mummi Lú Topplið efstu deildar kvenna í körfubolta unnu leiki sína í fyrstu umferð eftir skiptingu í A og B deild. Njarðvík og KR unnu sigra gegn Grindavík og Val. KR vann Val 68-71 þar sem mikil spenna var undir lokin. Njarðvík vann Grindavík með ellefu stiga mun, 66-77. Njarðvík er með 28 stig í efsta sæti og KR er með 26 stig í öðru. Á eftir fylgja Valur með 24, Haukar með 24 og Grindavík með 22. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Kúb­verska strand­gæsl­an skaut á hrað­bát frá Flór­ída Strandgæslan í Kúbu skaut fjóra til bana eftir að hafa stöðvað hraðbát frá Flórída. Kúbversk yfirvöld segja bátinn hafa verið ólöglega innan landhelgi þeirra. Varaforseti Bandaríkjanna segir Hvíta húsið fylgjast grannt með málinu. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Trausti sækist eftir að leiða Sjálf­stæð­is­menn í Eyjum Guðmundur Atli Hlynsson Trausti Hjaltason gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í sveitarstjórnarkosningum í maí. Hann greindi frá framboðinu í tilkynningu í dag. „Ég tel að við getum styrkt bæði hagsmunagæslu gagnvart ríkinu og rekstur bæjarfélagsins með meiri festu, skýrleika og áframhaldandi samstöðu. Ég kem með reynslu úr atvinnulífi og sveitarstjórn, og ég vil standa fyrir það sem skiptir máli: ábyrgan rekstur, lægri álögur á fjölskyldur og trú á frelsi, framtak og dugnað,“ skrifar Trausti. Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum verður 13. mars. Trausti Hjaltason hefur áður verið bæjarfulltrúi. Trausti Hjaltason 25. febrúar 2026 kl. 21:41ÍÞRÓTTIR Handbolti Valur í bik­ar­úr­slit eftir ör­ugg­an sigur gegn norð­an­kon­um Valskonur eru komnar í bikarúrslit kvenna í handbolta eftir 29-22 sigur gegn KA/Þór. Haukar og Valur mætast í úrslitum klukkan 15:30 á laugardaginn. 25. febrúar 2026 kl. 21:28INNLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Gervi­greind­in í for­grunni á al­þjóð­legu hakka­þoni Gervigreind er beitt í síauknum mæli við netárásir, hraðinn verður stöðugt meiri og áskorun dagsins snýst um að ná þeim hraða. Fjöldi sérfræðinga er saman kominn í Reykjavík til að leysa alls kyns áskoranir sem meðal annars beinast að stríðsrekstri. 25. febrúar 2026 kl. 21:12INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Notkun á pept­íði „stig­mögn­un í út­lits­dýrk­un“ Frístundaráðgjafi segir aukinn sýnileika peptíðs á samfélagsmiðlum vera birtingarmynd sívaxandi útlitsdýrkunnar. Efnið er gjarnan markaðssett til unglinga og hefur einn leitað á eitrunarmiðstöð vegna þess. 25. febrúar 2026 kl. 20:22INNLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Sjö gámar til Úkra­ínu: Tengi­virki úr Hrúta­firði á meðal þess sem fær nýtt líf Sjö gámar af raforkubúnaði frá Landsneti, Veitum og Norðurorku verða sendir til Úkraínu í vikunni. Andvirði búnaðarins er talið hlaupa á tugum milljóna en tengivirki úr Hrútafirði er á meðal þess sem fær nýtt líf í Úkraínu. 25. febrúar 2026 kl. 20:06ERLENDAR FRÉTTIR Spánn Meist­ara­verk Gaudí langt komið Hæsti turn kirkjunnar frægu Sagrada Família í Barcelona á Spáni er tilbúinn, 144 árum eftir að framkvæmdir hófust. 25. febrúar 2026 kl. 19:48INNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Til­kynnt um eld í raf­magns­töflu í Vest­ur­bæn­um Guðmundur Atli Hlynsson Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um eld í rafmagnstöflu í Vesturbænum um hálf átta í kvöld. Fjó

Share this article