Innlent | mbl | 6.5.2026 | 16:16 Segir ársreikningin eiga að vera viðvörun Ragnhildur Alda borgarfulltrúi í ræðustól. Myndin er úr safni. mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar Allir sögðu nei nema Heiða Björg Dýrkeypt veikindahlutföll Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran Íslandsmet í slælegri áætlanagerð Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða » Fleiri tengdar fréttir Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir Reykjavíkurborg ekki standa undir eigin rekstri. Ársreikningur borgarinnar 2025 sé aðvörun til íbúa um að fjármál Reykjavíkur þurfi nýja stefnu. Þetta kom fram í máli Ragnhildar á borgarstjórnarfundi í gær í umræðu um ársreikning Reykjavíkurborgar. Frétt af mbl.is Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða „Þetta er stórt frávik“ Benti Ragnhildur á að samstæða borgarinnar, A- og B-hluti saman, þ.e. borgin, Orkuveitan og fleiri, skilaði jákvæðri niðurstöðu, eða um átta milljörðum króna, sem væri þó verri niðurstaða en árið áður og undir því sem meirihlutinn hefði áætlað, nærri 13 milljarða afgangi. Sagði hún að þegar skoðaður væri einungis A-hlutinn, sem innihéldi t.a.m. borgarsjóð, grunnþjónustu, leik- og grunnskóla, daglegt viðhald, snjómokstur og sorphirðu, svo eitthvað sé nefnt, sæist að sá hluti væri rekinn með tapi. „Það er ekki bara smá halli. Þetta er stórt frávik. Það er 10 milljörðum lakara en árið áður og það er líka langt frá því sem meirihlutinn lofaði í fjárhagsáætlun. Þar var gert ráð fyrir að A-hlutinn væri með lítinn afgang, en ekki tap. Þetta er ekki flókið. Þetta þýðir einfaldlega að Reykjavíkurborg er ekki að standa undir eigin rekstri.“ „Hvað erum við að fá fyrir þessa skuldasöfnun?“ Sagði Ragnhildur að þegar rekstur standi ekki undir sér gerist eitt af tvennu; annaðhvort myndu gjöld og skattar hækka eða þá að borgin færi í aukna lántöku og skuldasöfnun, sem væri einmitt það sem borgarstjórnarmeirihlutinn hefði gert. Benti hún aukinheldur á að í ársreikningnum kæmi fram að skuldir og skuldbindingar A- og B-hluta saman væru nú komnar í 560 milljarða króna og hefðu hækkað um 35,8 milljarða á einu ári. „Hvað erum við að fá fyrir þessa skuldasöfnun? Hvað erum við að taka lán fyrir? Því á sama tíma og skuldirnar vaxa þá heyrir maður frá íbúum um alla borg að foreldrar — við erum ekki að leikskólapláss. Við erum að flakka á milli skólabygginga út af myglu og viðhaldsleysi. Starfsfólkið á gólfinu er að vinna undir mjög miklu álagi. Það er mikil aðhaldskrafa þar. Þar þarf að spara og skera við nögl í hverju einasta atriði. Allt sem er þjónusta nálægt íbúum – þar á alltaf að spara. Það er mjög erfitt að réttlæta svona gífurlega skuldasöfnun þegar fólk upplifir ekki að þjónustan sé að batna í takt við útgjöldin.“ „Mjög vond þróun“ Því næst beindi borgarfulltrúinn spjótum sínum að vaxtakostnaði. „Þegar skuldir vaxa þá vex vaxtabyrðin líka. Í skýrslu fjármálasviðs með ársreikningi kemur fram að fjármagnsliður samstæðunnar sé neikvæður um 22 milljarða króna og vaxtagjöld og verðbætur nemi 27 milljörðum króna. Þetta eru peningar, tugir milljarða, sem eru ekki að fara í leikskóla, ekki í götur, ekki í íþróttahús, ekki í félagslega þjónustu. Þetta eru peningar sem fara í það að halda skuldunum gangandi. Og þetta er mjög vond þróun, vægast sagt. Því meira sem fer í vexti, því minna er eftir í þjónustu.“ Þörf á alvarlegu samtali Í ræðu sinni sagði Ragnhildur ársreikning borgarinnar segja þrjá hluti: að verið væri að reka grunnþjónustuna með tapi, að skuldir og skuldbindingar væru að vaxa hratt og að vaxtabyrði væri farin að éta upp fjárhagslegt svigrúm þannig að ekkert yrði eftir til að setja í þjónustu og innviði. „Og þetta er ekki bara eitthvað sem gerist á blaði. Þetta þýðir að borgarbúar eru að borga meira, og við finnum það, borgarbúar finna það. Veri það í formi skatta, gjalda eða bara verri þjónustu. Þetta er það sem við í Sjálfstæðisflokknum höfum verið að vara við ár eftir ár eftir ár. Við viljum borg sem er metnaðarfull. En sá metnaður þarf að byggja á raunveruleikanum. Við getum ekki haldið áfram að byggja framtíð Reykjavíkurborgar á því að hækka skuldirnar ár eftir ár á meðan grunnrekstur borgarinnar stendur ekki undir sér. Það þarf að taka alvarlegt samtal um forgangsröðun.“ Ætti að vera viðvörun Sagði Ragnhildur að byrja þyrfti á því að koma borginni aftur í rekstrarjafnvægi. Yrði það ekki gert yrði alltaf endað á sama stað; með stærri reikning á skattgreiðendur. „Ársreikningurinn 2025 ætti að vera okkur öllum mjög mikil viðvörun. Þetta er bara áminning um að fjármál Reykjavíkur þurfa nýja stefnu, meiri festu, meiri aga og meiri ábyrgð.“ Tengdar fréttir Rekstur Reykjavíkurborgar Allir sögðu nei nema Heiða Björg Dýrkeypt veikindahlutföll Segir vöxt útgjalda ósjálfbæran Íslandsmet í slælegri áætlanagerð Rekstur borgarinnar neikvæður um 5,3 milljarða » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mátar grímu til að geta spilað Segir ársreikningin eiga að vera viðvörun Þóra og RÚV sýknuð Nærri 5 þúsund skráðu ekki kílómetrastöðuna Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þrír sjúklingar fluttir á brott: Læknar á leiðinni Telja sig vera nálægt samkomulagi við Íran Maður sem lést var í flugi stuttu áður Mistök en gagnrýnin stendur Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Byrja að flytja vindmyllur í kvöld Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Mátar grímu til að geta spilað Segir ársreikningin eiga að vera viðvörun Þóra og RÚV sýknuð Nærri 5 þúsund skráðu ekki kílómetrastöðuna Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Ekki eins og upphaf kórónuveirufaraldursins Óháð úttekt á fréttamennsku RÚV Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Byrja að flytja vindmyllur í kvöld Andlát: Sigrún Guðjónsdóttir Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fallhlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda