Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Hilmar vill ekki vera á matseðlinum

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 6.5.2026 | 13:00 | Uppfært 16:28 Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Rauðhærði Garðbæingurinn sem varð einn áhrifamesti maður tölvuleikjabransa heimsins er fram liðu stundir ætlar sér að sigra heiminn undir merkjum Fenris Creations, áður CCP, sem er nú í höndum íslenskra eigenda á ný. Ljósmynd/Fenris Creations Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ef við byrjum alveg á byrjuninni, þegar við seldum til Pearl Abyss árið 2018, voru fyrirtækin með áætlanir um að vinna saman að ýmsum hlutum og gera og græja,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri tölvuleikjarisans CCP, í samtali við mbl.is um nýleg viðskipti sem vakið hafa verðskuldaða athygli þótt fyrirtækið sjálft hafi beðið með opinbera umræðu um þau þar til í dag. Í stuttu máli seldi suðurkóreski tölvuleikjaframleiðandinn Pearl Abyss stjórnendum CCP fyrirtækið til baka nýverið fyrir 120 milljónir bandaríkjadala, upphæð sem nemur fimmtán milljörðum íslenskra króna, og mun CCP að auki skipta út sínu gamalgróna nafni og hér eftir heita Fenris Creations. Hilmar heldur áfram. „Svo erum við að vinna svona saman og sundur, Pearl Abyss er upptekið af Crimson Desert og við af EVE Online, Vanguard og Frontier, leikjum sem við erum með í vinnslu núna. Á síðustu árum hafa orðið stefnubreytingar hjá Pearl Abyss, sem færðist mikið í fang með leiknum sem fyrirtækið gaf út undir eigin merkjum núna fyrir mánuði, auk þess sem mannabreytingar hafa orðið þar og þá fórum við að ræða saman um hvort við værum á réttri leið,“ segir forstjórinn. Snemmárs 2025 hafi CCP og Pearl Abyss svo hafið viðræður fyrir alvöru um hvort gengið hafi verið til góðs árið 2018. Frétt af mbl.is Stjórnendurnir kaupa CCP á nýjan leik Töluðu við öll gervigreindarfyrirtækin „Í framhaldi af því fórum við Birgir Már Ragnarsson, fyrrverandi stjórnarformaður CCP, að bretta upp ermarnar og útkoman varð sú að við fengum Google DeepMind og Aldir og aðra íslenska og erlenda fjárfesta til liðs við okkur til að kaupa fyrirtækið til baka,“ segir Hilmar. „Það kemur kannski spánskt fyrir sjónir að leiðandi gervigreindarfyrirtæki í heiminum á borð við Google DeepMind taki þátt í „management buyout“ [kaupum stjórnenda] á litlu íslensku fyrirtæki en það gerist í raun undir merkjum EVE Online, gervigreind og tölvuleikir eru fyrirbæri sem hafa verið samofin, ég man vel eftir því að spila á móti gervigreind í StarCraft og svo núna í dag keyra risamállíkön á tölvuleikjagrafíkkortum,“ útskýrir hann. „Yfir síðustu áratugi hefur EVE Online unnið sér þann sess að geta kallast erfiðasti tölvuleikur í heimi. Við höfum horft á gervigreind bera sigur úr býtum í skák, Go, StarCraft og „lokakallinn“ á þeirri leið er því EVE. Leikurinn verður 23 ára núna í maí og hann gengur út á langtímahugsun og herkænsku. Ég held að við séum hreinlega búin að tala við öll gervigreindarfyrirtækin í gegnum þetta ferli en fundum sterkustu tenginguna við DeepMind,“ segir Hilmar og heldur áfram. Brot af heimsmynd tölvuleiksins EVE Vanguard sem birtist spilurum heimsins á skjám þeirra. Ljósmynd/Fenris Creations Ruglað saman við Kommúnistaflokkinn „Okkar pæling hefur alltaf verið að vera leiðandi í nýrri tækni og innleiðingu hennar á ýmsum sviðum, við viljum helst alltaf vera aðeins á undan frekar en eftir á og gervigreindarbyltingin er eitthvað sem við höfum mikinn hug á að taka virkan þátt í, ekki bara vera neytendur. Oft er sagt þegar kemur að hlutum eins og gervigreind að þú sért annaðhvort við borðið eða á matseðlinum og við viljum heldur vera við borðið,“ segir hann. Hilmar segir starfsfólk og stjórnendur CCP full spennu yfir því sem koma skuli, fyrirtækið verði íslenskt á ný, að mestu, auk þess sem nýtt nafn sé hreinlega tímabært. „Fólk var farið að rugla okkur töluvert saman við kínverska Kommúnistaflokkinn [Chinese Communist Party, CCP], það hefur aukist með árunum og kemur stundum upp að starfsfólk okkar fái erfiðar spurningar í vegabréfaskoðun í Bandaríkjunum og listinn er lengri,“ segir Hilmar glettinn en um leið má rifja upp önnur ummæli hans í viðtali fyrir allmörgum árum þegar hann nefndi að heiti fyrirtækisins, en CCP stendur fyrir Crowd Control Productions, hefði laðað að því fyrirspurnir utan úr heimi um óeirðabúnað á borð við handjárn, kylfur og táragas. Rannsóknasamstarf við Google Þau vatnaskil sem nú verða kalla þó hvorki á kylfur né táragas. Ef við skoðum stóru línurnar í fregninni eru þær fyrst og fremst að Fenris Creations verður að tveimur þriðju hluta í eigu Íslendinga en í nýjum eigendahópi fyrirtækisins eru margir af helstu stjórnendum CCP og langtímafjárfestar, til að mynda sjóðastýringarfélagið Aldir ehf. og fjárfestingafélagið Omega ehf. auk Google, eins stærsta fyrirtækis veraldar. Breytingin verður sem sagt eingöngu á eignarhaldi og stjórnarháttum. Í nýrri stjórn Fenris Creations sitja Hilmar, Arnar Ragnarsson, framkvæmdastjóri og einn eigenda Alda, Birgir Már Ragnarsson, annar eigenda Omega, sem gegnir stöðu stjórnarformanns Fenris Creations, og Adrian Bolton, einn af fyrstu starfsmönnum Google DeepMind. Ekki er gert ráð fyrir neinum breytingum á starfseminni, stjórnendateymi, starfsstöðvar, vöruframboð, stefna og annað helst óbreytt og engar uppsagnir fylgja hamskiptum CCP. Samhliða breytingunum hefur Fenris Creations gert samning um rannsóknasamstarf við Google DeepMind sem miðar að því að efla skilning á gervigreind í flóknum og kvikum kerfum. Rannsóknirnar verða gerðar innan heimslíkans EVE, til dæmis á langtímaáætlanagerð, minni og sínámi. „Oft er sagt þegar kemur að hlutum eins og gervigreind að þú sért annaðhvort við borðið eða á matseðlinum og við viljum heldur vera við borðið,“ segir Hilmar við mbl.is um framtíð Fenris Creations. Ljósmynd/Fenris Creations Einbeiting til að sigra heiminn Google DeepMind og Fenris Creations munu í upphafi vinna með ótengda útgáfu af EVE-heiminum svonefnda sem keyra mun á staðbundnum netþjóni til að prófa og meta gervigreindarlíkön í stýrðu umhverfi. Samhliða verða einnig kannaðir möguleikar á nýjum upplifunum í leikjum sem þessi tækni getur gert mögulega. Aðspurður staðfestir Hilmar að helsta breytingin sé á eignarhaldi fyrirtækisins. „Í grunninn breytist ekkert annað. Fyrir þessa breytingu vorum við með einn hluthafa sem var suðurkóreskt tölvuleikjafyrirtæki. Nú erum við með rúmlega 30 hluthafa sem eru einstaklingar og fjárfestingarfyrirtæki, fyrirkomulag sem við könnumst vel við frá fyrstu 20 árum CCP. Við, stjórnendur fyrirtækisins, erum með hluta eignarhaldsins hjá okkur, við erum núna einkafyrirtæki, ekki hluti af skráðu fyrirtæki í Kóreu, og það skapar okkur meiri einurð og einbeitingu til að sigra heiminn,“ segir Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, að lokum um vatnaskil hjá tölvuleikjaframleiðanda sem snúinn er til baka að fósturjarðar strönd og hlíðum. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Venesúela að vakna til lífsins Sigurður Már Jónsson Þrælamiðstöð Portúgals heimsótt Fleira áhugavert Vorið lætur bíða eftir sér Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Þrír sjúklingar fluttir á brott: Læknar á leiðinni Mistök en gagnrýnin stendur Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði Indó hæst á Sjálfbærniásnum annað árið í röð Syndis sækir fram í Skandinavíu Anna og Berglind í nýjum hlutverkum Bláa lónið byggir upp í Þjórsárdal Hagnaður KEA nam 1,36 milljörðum króna Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður Enn óstöðugleiki á olíumörkuðum Anna og Berglind í nýjum hlutverkum Hagnaður KEA nam 1,36 milljörðum króna Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður Enn óstöðugleiki á olíumörkuðum Fær ekkert haggað markaðinum? Stjórnendurnir kaupa CCP á nýjan leik Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Sameinast undir nafninu ORKIS Skuldir á hvern íbúa hafi hækkað um 716.000 krónur Virðisrýrnun útlána og krafna eykst talsvert 620 milljónir til gullleitar í Þormóðsdal Stjórnendurnir kaupa CCP á nýjan leik Taka við rekstri tveggja sögufrægra hótela Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri „Erum ansi nærri mörkunum“ Eldsneytisfyrirtæki fá bréf eftir helgi FDA í óboðaðri eftirlitsferð hjá Alvotech Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Skuldir á hvern íbúa hafi hækkað um 716.000 krónur Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður Pistlar » Sigurður Már Jónsson Venesúela að vakna til lífsins Sigurður Már Jónsson Þrælamiðstöð Portúgals heimsótt Fleira áhugavert Engin rök fyrir frestun þjóðaratkvæðagreiðslunnar ESB-ferlið hófst strax 2025 Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Trump hótar harðari árásum náist ekki samkomulag Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Nýtt lággjaldafyrirtæki á fjarskiptamarkaði Indó hæst á Sjálfbærniásnum annað árið í röð Syndis sækir fram í Skandinavíu Anna og Berglind í nýjum hlutverkum Bláa lónið byggir upp í Þjórsárdal Hagnaður KEA nam 1,36 milljörðum króna Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður Enn óstöðugleiki á olíumörkuðum Anna og Berglind í nýjum hlutverkum Hagnaður KEA nam 1,36 milljörðum króna Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður Enn óstöðugleiki á olíumörkuðum Fær ekkert haggað markaðinum? Stjórnendurnir kaupa CCP á nýjan leik Icelandair tapaði 5,6 milljörðum Sameinast undir nafninu ORKIS Skuldir á hvern íbúa hafi hækkað um 716.000 krónur Virðisrýrnun útlána og krafna eykst talsvert 620 milljónir til gullleitar í Þormóðsdal Stjórnendurnir kaupa CCP á nýjan leik Taka við rekstri tveggja sögufrægra hótela Ólafur ráðinn framkvæmdastjóri „Erum ansi nærri mörkunum“ Eldsneytisfyrirtæki fá bréf eftir helgi FDA í óboðaðri eftirlitsferð hjá Alvotech Verðbólgan hjaðnar og mælist nú 5,2% Skuldir á hvern íbúa hafi hækkað um 716.000 krónur Spá nú minni stýrivaxtahækkun en áður

Share this article