Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Stólarnir í úrslit og Íslandsmeistararnir í sumarfrí

Read Full Article →

Tveir oddaleikir eru á dagskrá í úrslitakeppni karla í körfubolta í kvöld. Sá fyrri var spilaður á Sauðárkróki þar sem Tindastóll tók á móti Stjörnunni. Stólarnir höfðu betur og komust í úrslitaeinvígið. Stjarnan komst 2-0 yfir í einvíginu en Stólarnir jöfnuðu í 2-2 og því var allt undir í Síkinu í kvöld. Fyrsti leikhluti var nokkuð sveiflukenndur en það voru Stólarnir sem unnu hann 30-22. Eftir að Stjörnumenn minnkuðu muninn örlítið í öðrum leikhluta náðu heimamenn svo upp nokkuð þægilegri forystu og leiddu að fyrri hálfleik loknum með 20 stigum, 59-39. Stjarnan minnkaði muninn í seinni hálfleiknum og komst undir tíu stigin þegar komið var fram í fjórða leikhluta. Forysta Tindastóls reyndist hins vegar of mikil og heimamenn sigldu níu stiga sigri í hús, 100-91. Tindastóll er þar með komið í úrslit annað árið í röð en liðið tapaði fyrir Stjörnunni í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. Stólarnir mæta annaðhvort Val eða Grindavík í úrslitaeinvíginu en oddaleikur liðanna í Grindavík hófst klukkan 20:15.

Share this article