Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Tindastóll og Grindavík unnu oddaleikina og mætast í úrslitunum

Read Full Article →

Tveir oddaleikir voru á dagskrá í úrslitakeppni karla í körfubolta í kvöld. Sá fyrri var spilaður á Sauðárkróki þar sem Tindastóll tók á móti Stjörnunni og sá síðari í Grindavík þar sem Grindavík og Valur mættust. Stjarnan komst 2-0 yfir í einvígi sínu við Tindastól en Stólarnir jöfnuðu í 2-2 og því var allt undir í Síkinu í kvöld. Fyrsti leikhluti var nokkuð sveiflukenndur en það voru Stólarnir sem unnu hann 30-22. Eftir að Stjörnumenn minnkuðu muninn örlítið í öðrum leikhluta náðu heimamenn svo upp nokkuð þægilegri forystu og leiddu að fyrri hálfleik loknum með 20 stigum, 59-39. Stjarnan minnkaði muninn í seinni hálfleiknum og komst undir tíu stigin þegar komið var fram í fjórða leikhluta. Forysta Tindastóls reyndist hins vegar of mikil og heimamenn sigldu níu stiga sigri í hús, 100-91. Tindastóll er þar með komið í úrslit annað árið í röð en liðið tapaði fyrir Stjörnunni í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn í fyrra. Í Grindavík var fyrri hálfleikur nokkuð jafn. Valsmenn voru með yfirhöndina þar til undir lok seinni hálfleiksins þegar Grindavík seig fram úr og endaði á að leiða í hálfleik 50-40. Grindvíkingar mættu svo grimmir til leiks í seinni hálfleik sem varð aldrei spennandi. 27 stiga sigur varð niðurstaðan, 109-82, og sæti Grindavíkur í úrslitunum tryggt. Fyrsti leikur úrslitaeinvígisins er á dagskrá á laugardaginn og deildarmeistararnir frá Grindavík byrja á heimavelli. Vinna þarf þrjá leiki til að verða Íslandsmeistari.

Share this article