Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vandamál dag eftir dag

Read Full Article →

Innlent | mbl | 12.2.2026 | 17:00 Vandamál dag eftir dag Birgir Örn Guðjónsson er deildarstjóri Blönduhlíðar í Skálatúni í Mosfellsbæ, stuðningsheimilis fyrir börn með fjölþættan vanda. Blönduhlíð var upphaflega hugsað sem meðferðarúrræði sem Ásmundur Einar Daðason, fyrrverandi mennta- og barnamálaráðherra, þóttist opna fyrir rúmum tveimur árum en þar sem húsnæðið stóðst ekki öryggiskröfur fyrir meðferðarstarfsemi var hún flutt annað og stuðningsheimilið opnað þar síðasta haust. Í Blönduhlíð koma ungmenni á aldrinum 16 til 18 ára, sem undir venjulegum kringumstæðum ættu að hafa lokið langtímameðferð að sögn Birgis en vegna misjafnra ástæðna, sem geta t.a.m. tengst heimilisaðstæðum eða persónulegum aðstæðum, fá heimili í Blönduhlíð. Þá segir hann að ungmennin geti fengið að vera lengur en til 18 ára aldurs í Blönduhlíð gegn samningi við Barnavernd. Frétt af mbl.is Opna loks úrræði eftir sýndaropnun í fyrra Þörf á fleiri sambærilegum úrræðum Segir Birgir starfið snúast mest um að hjálpa ungmennunum að verða virkir einstaklingar í samfélaginu. Markmiðið sé að þau geti annaðhvort farið aftur til sinna fjölskyldna eða í búsetu á eigin vegum eftir að hafa dvalið frá einhverjum mánuðum upp í einhver ár í Blönduhlíð. Um þjónustuna segir hann að aðgengi sé að sálfræðingi og fjölbreyttri aðstoð. Leitast sé við að finna ungmennunum nám eða vinnu við hæfi og hjálpa þeim að finna kjarnann í sjálfum sér. „Oft er um einstaklinga að ræða með mjög brotna sjálfsmynd og því mikil vinna sem þarf að fara fram og hefur farið fram. Því þarf að halda því áfram.“ Þrátt fyrir að hafa aðeins verið opið í nokkra mánuði finnst Birgi úrræðið gera mikið fyrir ungmennin. „Það þarf bara fleiri svona úrræði sem eru svona svolítið stigskipt. Það hefur verið ákveðið vandamál í þessum geira að of stór og fjölbreyttur hópur hefur verið saman. Mér finnst greinilegt að við þurfum fleiri svona úrræði. Frétt af mbl.is Gera aðra tilraun til að opna Blönduhlíð Munu alltaf koma upp vandamál Hafa komið upp stærri vandamál? „Í þessum geira munu alltaf koma upp vandamál vegna þess að þetta eru flókin verkefni. Annað væri bara óeðlilegt. Ef við værum með einstaklinga þar sem aldrei kæmu upp vandamál þá þyrftu þeir væntanlega ekki að vera þarna. Starfið gengur í raun og veru út á að takast á við vandamál hvers dags aftur og aftur og reyna einhvern veginn að minnka þau,“ segir Birgir Örn. Í Dagmálum ræðir hann m.a. nýja starfið í Blönduhlíð, málefni barna almennt, árin í löggunni, viðurnefnið lífseiga, pólitíkina, kosningabaráttuna og rætnar sögusagnir sem hann segir uppspuna frá rótum ætlaðar til að leggja stein í götu hans og sverta mannorðið. Brot úr þættinum má sjá í spilaranum hér fyrir ofan. Áskrifendur geta horft á þáttinn í heild sinni með því að smella á hlekkinn hér að neðan. Brennur fyrir málefni barna Birgir Örn Guðjónsson, brennur fyrir málefni barna. Biggi var lengi lögga en starfar í dag sem deildarstjóri Blönduhlíðar, stuðningsheimilis fyrir börn með fjölþættan vanda. mbl.is/Hallur Már Hálfur Íslendingur sinnir loftrýmisgæslunni Hættur við að hætta við að hætta Vandamál dag eftir dag Mikill skellur fyrir ensku stjörnu Real Madríd Nærri 800 flugferðum aflýst vegna verkfalls Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni Hafa borið kennsl á árásarmanninn Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar „Við getum ekki búið við þessar aðstæður“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Hálfur Íslendingur sinnir loftrýmisgæslunni Hættur við að hætta við að hætta Vandamál dag eftir dag Mikill skellur fyrir ensku stjörnu Real Madríd Nærri 800 flugferðum aflýst vegna verkfalls Jafnræði í grásleppuveiðum Hver eru samningsmarkmiðin? Fleira áhugavert Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Vilja bílhræin burt af lóðinni Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson

Share this article