Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 6.5.2026 | 23:00 „Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“ Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur BHM. Ljósmynd/BHM Egill Aaron Ægisson [email protected] Setja bókamerki Þrátt fyrir að hlutfall háskólamenntaðra á vinnumarkaði hafi vaxið jafnt og þétt síðustu áratugi hér á landi og að sú kynslóð sem nú kemur inn á markaðinn sé sú mest menntaða í sögu þjóðarinnar, skilar menntunin sér ekki að fullu í framleiðni og verðmætasköpun. Til þess þarf að styrkja tengsl háskóla við atvinnulífið og alþjóðlega markaði. „Þróunin síðastliðin ár hefur verið sú að landsframleiðsla á mann hefur ekki verið að vaxa nægilega mikið,“ segir Ingvar Freyr Ingvarsson, hagfræðingur hjá Bandalagi háskólamanna (BHM), í samtali við mbl.is. Hann var á meðal þeirra sem fluttu erindi á morgunverðarfundi bandalagsins í síðustu viku. „Erfiðara að halda uppi lífskjörum með þessum hætti“ Ingvar segir að hagvöxtur hér á landi hafi í raun byggst síðastliðin ár á fjölgun starfa, eða auknu vinnumagni, en ekki aukinni framleiðni. „Þetta er ekki gott til lengri tíma því að með öldrun þjóðarinnar, styttri vinnuviku og takmörkuðu framboði vinnuafls verður stöðugt erfiðara að halda lífskjörum uppi með þessum hætti. Til lengri tíma ráðast lífskjör af framleiðni.“ Þá bendir Ingvar á að samkvæmt alþjóðlegum mælikvörðum ( European Innovation Scoreboard og Global Innovation Index ) standi Ísland vel að vígi hvað varðar forsendur nýsköpunar, svo sem menntun, mannauð og innviði, en verr þegar kemur að því að umbreyta þeim í markaðshæfar vörur og þjónustu. „Þannig að keðjan er að slitna einhvers staðar á leiðinni og við viljum meina að það sé frá háskólanum til atvinnulífsins, að hluta til,“ segir Ingvar og nefnir þrjá veikleika því til stuðnings. Fjárfesting í háskólum of lítil „Í fyrsta lagi starfa hlutfallslega fleiri rannsakendur í háskólum en í fyrirtækjum miðað við sambærileg lönd. Þetta skiptir miklu máli því að það er innan fyrirtækja sem þekking verður á vörum og þjónustu og þegar rannsóknir eru að verulegu leyti utan atvinnulífs þá veikist tengingin við verðmætasköpun. Í öðru lagi eru tengingar á milli rannsókna og frumkvöðlastarfs við erlenda markaði ekki nægilega sterkar. Ísland stendur oft vel að vígi þegar kemur að frumstigi nýsköpunar; hugmyndir verða til og fyrirtæki eru stofnuð en það er erfitt að skala upp og vaxa. Í þriðja lagi er fjárfesting í háskólum of lítil. Það takmarkar getu háskólanna til að vera raunverulegur drifkraftur nýsköpunar.“ Myndu vilja útvíkka hlutverk Íslandsstofu Um lausnir segir Ingvar að þær geti meðal annars falist í því að taka önnur lönd til fyrirmyndar og nefnir Holland sem dæmi. Þar starfi stofnunin Netherlands Enterprise Agency, sem sinnir svipuðu hlutverki og Íslandsstofa hér heima, en vinnur markvissar að því að tengja saman háskóla, fyrirtæki og rannsóknir. Telur Ingvar að útvíkkun á hlutverki Íslandsstofu gæti skipt miklu máli. „Með þeim hætti yrði ekki einungis stutt við nýsköpun á frumstigum heldur tryggt að hún vaxi, nái á erlenda markaði og skili meiri skatttekjum sem og langtímavexti.“ Ingvar bendir einnig á að í Danmörku sé í boði svokallað iðnaðardoktorsnám þar sem doktorsrannsóknir eru beintengdar við farveg atvinnulífsins. Aukinheldur segir hann að meðal lausna sé að byggja upp sameiginlega innviði, á borð við gagnaver, sem bæði háskólar og fyrirtæki geti nýtt. Slík samvinna geti, að hans mati, margfaldað verðmætasköpun þvert á fræðisvið. „Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“ „Það er lítið sem vantar upp á í rauninni. Það er bara að ná þessari tengingu á milli háskóla og atvinnulífs og tengja það meira við alþjóðlega markaði,“ segir Ingvar, sem jafnframt nefnir að BHM lýsi sig reiðubúið til samstarfs við stjórnvöld og atvinnulífið um að byggja upp tengslin. „Niðurstaðan er: Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við. Ísland er ríkt af þekkingu en kerfin sem eiga að láta hana borga sig eru veik. Með skýrari tengingum milli háskóla og atvinnulífs, og með sameiginlegum innviðum, má styrkja keðjuna frá háskólum til verðmæta,“ segir hagfræðingurinn að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Hlynnt því að byggja golfvöll „Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“ Fékk tveggja mánaða bann Ráðlagt að sæta einangrun vegna hantaveiru Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þóra og RÚV sýknuð Ætla ekki að fara í „leyniklefann úr Icesave“ Hilmar vill ekki vera á matseðlinum Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Meirihluti þolenda eru karlmenn Þóra og RÚV sýknuð Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Nýjast á mbl.is » Beita Bónusáhrifunum gegn verðbólgunni Hlynnt því að byggja golfvöll „Tækifærin eru til staðar ef við bregðumst við“ Fékk tveggja mánaða bann Ráðlagt að sæta einangrun vegna hantaveiru Umræðan Bókhaldsblekkingar í boði bæjarstjóra Gagnsæi og samkeppni þegar kemur að opinberum innkaupum Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Maður sem lést var í flugi stuttu áður ESB-ferlið hófst strax 2025 600 milljónir árlega: Ummælin jaðri við dónaskap Vorið lætur bíða eftir sér Mest lesið Í gær Í vikunni Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Andlát: Sigfús Pétursson frá Álftagerði Hætta er á 57 milljarða framúrkeyrslu Djúp gjá á milli forystunnar og kennara á gólfinu ESB-ferlið hófst strax 2025 Umfangsmikið „leynimakk“ kom á óvart Meirihluti þolenda eru karlmenn Þóra og RÚV sýknuð Augljóst að upplýsingum er haldið frá þjóðinni Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Enn eitt dæmi um gullhúðun Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Hver og einn fékk ríflega 3,3 milljónir króna Vonar að ekki þurfi að fella niður flugferðir Hælisleitendur fengu 1.570 m.kr. Kaffihúsum Kaffitárs verður lokað Félagið tæmt með kerfisbundnum hætti Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Eins konar æði gripið Íslendinga Inga Dögg lést í kajakslysinu Beðið í biðröð með svefnpoka og tjaldstóla Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Nafn mannsins sem lést í fall­hlífarstökki Andlát: Bryndís Björg Guðmundsdóttir Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda

Share this article