Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

HÍ vantar yfir sex milljarða til að standa á pari

  • What: The University of Iceland is facing a significant funding shortfall.
  • Impact: The lack of funds is impacting the university's operations, including research grants and overall academic activities.
Read Full Article →

Háskóli Íslands þarf yfir sex milljarða til viðbótar til þess að starfsfólk geti unnið sína vinnu. Rektor segir stanslausan niðurskurð síðustu ár hafa gengið nærri allri starfssemi og meðal annars orðið til þess að háskólinn veiti ekki nýdoktorsstyrki núna og hafi lokað á styrki til doktorsnema. Háskólaráð samþykkti einróma ályktun á fundi sínum 12. febrúar um að fjárveiting til skólans þyrfti að vera rúmlega 20 prósent hærri fyrir 2026 til þess að skólinn standi norrænum háskólunum ekki langt að baki. Rúmlega sex milljarða vantar í fjárveitingu til HÍ Ítarlega var farið yfir stöðu varðandi fjármögnun háskólastigsins á Íslandi almennt og Háskóla Íslands sérstaklega á fundi háskólaráðs. Þar kom fram að fjármögnun háskóla hér á landi standi fjármögnun norræna háskóla langt að baki. Fjármögnun háskólastigsins á Íslandi hefur reglulega verið borin saman við gögn frá OECD, sérstaklega við fjárveitingar til háskóla annars staðar á Norðurlöndum. Nýjasti samanburðurinn sem byggir á tölum frá 2024 sýnir að rúmlega sex milljarða vantar í fjárveitingu til Háskóla Íslands til þess að hann sé sambærilegur við aðra háskóla á Norðurlöndunum. Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir að með þessari ályktun sé háskólaráð að reyna að beina athygli stjórnvalda að því að íslenska háskólastigið fái fjármagn sem sé ekki samanburðarhæft við skóla á Norðurlöndunum. „Til þess að við ættum að standa á pari við okkar samstarfsskóla, sem okkur er ætlað að vera í samkeppni við og vinna rannsóknir, sinna kennslu á sama hátt, þá vantar þarna um það bil sex milljarða til þess að við getum unnið okkar vinnu. Þarna erum við að tala um hluti sem við gætum gert mun betur ef við hefðum til þess fullnægjandi fjármögnun.“ Háskólaráð samþykkti einnig á sama fundi að hækka skrásetningargjald skólans úr 75 þúsund krónum upp í 100 þúsund krónur. Silja Bára segir það ekki hafa áhrif á fjárhagsstöðu skólans. Skrásetningargjaldið standi undir kostnaði sem til falli vegna umsýslu við stúdentahald. „Það hefur staðið í stað frá 2014. Ef það væru bara verðlagshækkanir sem hefðu komið til þá ætti það gjald að vera 115 til 120 þúsund krónur. Raunkostnaður sem fellur á skólann er nær 180 þúsundum. Það breytir litlu þó að sú hækkun komi inn líka.“ Breytingar þurfa að koma til Silja Bára bendir á að þetta sé ekki hagræðingarkrafa um sex milljarða heldur hafi skólinn verið vanfjármagnaður. „Til þess að við myndum vinna þá vinnu sem við viljum gera, og myndum vilja gera það vel, þá þyrftum við sex milljarða í viðbót.“ Skólinn sé stanslaust í niðurskurði sem hafi gengið nærri allri starfsemi hans síðustu ár. Háskólinn sé til dæmis ekki að veita nýdoktorastyrki eins og er og loki líka á styrki til doktorsnema, svokallaða aðstoðarkennarastyrki. „Allt þetta hefur áhrif á aðbúnað stúdenta og starfsfólks og þetta eru hlutir sem við gerum ekki með glöðu geði en við verðum að ná endum saman. Ef við eigum að vera með nýliðun í gegnum doktorsnám og endurnýja okkar starfsmannahóp þá þurfum við töluvert meira fé heldur en við höfum fengið á síðustu árum.“ Fyrir mánuði síðan skrifuðu stjórnendur níu deilda við skólann aðsenda grein á Vísi. Þar segja þeir áform HÍ um að fjölga nemendum í heilbrigðisgreinum í uppnámi vegna niðurskurðar og áralangrar vanfjármögnunar. Samfara þessu verði uppnám í sjálfbærni íslensks heilbrigðiskerfis til framtíðar. „Þessi niðurskurður skaðar kjarnastarfsemi Háskóla Íslands og er grafalvarlegur fyrir heilbrigðisvísindasvið sem þegar hefur verið vanfjármagnað svo árum skiptir og neyðist nú til að skera enn frekar niður, fresta nauðsynlegri nýliðun kennara og endurnýjun innviða,“ sagði í greininni. Silja Bára segir vanfjármögnun koma ólíkt út á ólíkum sviðum. Stjórnvöld hafi kallað eftir því að nemendum í heilbrigðisvísindum sé fjölgað. Gríðarlega dýrt sé að mennta heilbrigðisstarfsmenn, til dæmis lækna, hjúkrunarfræðinga og sjúkraþjálfa. „Ef við eigum að vera að fjölga nemendum í þessum fögum þá þurfa að koma til einhverjar breytingar. Við erum auðvitað í samtali við stjórnvöld um þetta og vonumst til að við getum séð til lands hvað það varðar. Það eru ólíkar aðstæður á ólíkum sviðum sem við erum að reyna að takast á við á forsendum hvers sviðs.“ Aðspurð hvort hún eða skólinn hafi heyrt frá stjórnvöldum eftir ályktunina svarar Silja Bára neitandi. „Í ljósi þess að markmið fyrir næstu fjárlög er einfaldlega að ná hallalausum fjárlögum þá er ég nú ekki bjartsýn á að það verði brugðist við þessu.“ Skólinn hafi lagt inn ýmis gögn við gerð fjármálaáætlunar til næstu fimm ára. „Og vonumst til þess að það verði tekið tillit til þeirra aðstæðna sem við búum við í því.“

Share this article