Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla

Read Full Article →

Innlent | mbl | 20.2.2026 | 13:06 Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla Tveir stúdentaráðsliðar Vöku gagnrýna 33 prósenta hækkun skrásetningargjalds Háskóla Íslands harðlega og segja 5.000 af stúdentum skólans standa undir 123 milljóna króna veitingareikningum skólans. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Greiðslubyrði stúdenda við Háskóla Íslands hækkar um 33 prósent við fyrirhugaða hækkun skrásetningargjalds stofnunarinnar úr 75.000 í 100.000 krónur og benda tveir stúdentaráðsliðar í aðsendri grein á Vísi á að með hækkuninni greiði í raun tæplega 5.000 af stúdentum við skólann rúmlega 123 milljóna króna kostnað HÍ við máltíðir og kaffiveitingar árið 2025. „Nú er verið að hækka skrásetningargjaldið við Háskólann og við fórum yfir það,“ segir Andrea Edda Guðlaugsdóttir, stúdentaráðsliði fyrir Vöku, félag lýðræðissinnaðra stúdenta við Háskóla Íslands, í samtali við mbl.is um grein þeirra Eiríks Kúld Viktorssonar, sem einnig á sæti í ráðinu fyrir Vöku. „Hækkunin er ákveðin án þess að fyrir liggi að hún sé lögleg og við fórum yfir kostnaðarliði skrásetningargjaldsins sem sýna í raun ekkert hvað við erum að borga fyrir,“ segir Andrea Edda og bendir á liðinn „Aðstaða og stjórnun“ þótt aðstaða komi víða annars staðar fyrir í yfirliti yfir kostnaðarliðina. „Þrír liðir eru tengdir við aðstöðu eingöngu og aðrir liðir tengjast eiginlega allir stjórnun,“ heldur hún áfram en í grein sinni benda höfundar á að aðstöðu sé einnig að finna í liðum sem fjalla um bókasafn og aðra aðstöðu og aðgang að tölvum, prenturum og fleiri sem hljóti að teljast aðstaða. „...í augum Háskóla Íslands er aðstaða og aðstaða ekki sami hluturinn“, segir í greininni. Andrea Edda Guðlaugsdóttir segir margrukkað fyrir aðstöðu hingað og þangað með skráningargjaldinu. Hver er aðstaðan? Ljósmynd/Aðsend Rýnt í reikningana Þá segir Andrea Edda þau Eirík hafa rýnt í reikninga HÍ á veitingahúsinu Jómfrúnni. „Háskólinn hefur síðustu tvö ár verið með hæstu reikninga allra ríkisstofnana á Jómfrúnni og í framhaldinu fórum við að skoða opinbera reikninga ríkisins. Þá kemur í ljós að Jómfrúarreikningarnir eru bara brotabrot af reikningum skólans fyrir veitingar,“ segir Andrea Edda. „Jómfrúin er náttúrulega með veitingaþjónustu fyrir fundi og slíkt en annars veit maður ekkert hvað þetta er, kannski eru þetta bara einhverjir gestaprófessorar sem fara og drekka 20 Gull Light, það kemur náttúrulega ekkert fram,“ segir stúdentaráðsliðinn og bendir á aðra matarreikninga sem hún kveður hafa verið ótrúlegt að fara yfir. Eiríkur Kúld Viktorsson, meðhöfundur, sambýlismaður og samráðsmaður Andreu Eddu í stúdentaráði. Ljósmynd/Aðsend „Það eru bara 40.000 kallar hingað og þangað og eitthvert bakarí á Sauðárkróki. Hvað er Háskólinn að eyða peningum þar þegar hann á ekki peninga?“ spyr hún en í greininni benda þau Eiríkur á að Háskóli Íslands sé vanfjármagnaður og vísa þar til skýrslu Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu, OECD, frá í fyrra sem slái því föstu að fjármögnun opinberra háskóla á Íslandi sé um þriðjungi lakari en nemur meðaltali annarra norrænna ríkja. Þó tróni HÍ á toppi þeirra ríkisstofnana sem mestu eyða á Jómfrúnni. Í eðli sínu skólagjald „Höfundar búa saman og deila fjárhag og eru sammála um að ef þá skortir fjármagn fara þeir ekki að eyða peningum á Jómfrúnni, hvað þá mestum pening allra Íslendinga… og það með miklum yfirburðum,“ skrifa þau Eiríkur. „Mér finnst allt í lagi að skólinn sé að eyða peningum í starfsfólk sitt hafi hann efni á því,“ segir viðmælandi og segir skrásetningargjaldið í eðli sínu ekki skrásetningargjald heldur skólagjald. „Þú ert ekkert bara að borga fyrir skrásetningu,“ segir hún og sé enn vísað í skrif þeirra Eiríks vitna þau þar í Silju Báru Ómarsdóttur rektor sem fullyrði að raunkostnaður við skrásetningu eins nemanda sé 180.000 krónur á ári. „Hvernig má vera að raunkostnaður við skrásetningu eins nemanda við Háskóla Íslands sé 180.000 krónur?“ spyrja höfundar. Háskóli Íslands ber höfuð og herðar yfir aðrar ríkisstofnanir hvað viðskipti við Jómfrúna snertir. Ljósmynd/Jakob E. Jakobsson „Það er ólöglegt að rukka nemendur fyrir kennslu og rannsóknarstarfsemi gegnum skrásetningargjaldið. Þar erum við samt rukkuð fyrir stafræna kennslu af því að það er ekki kennsla,“ bendir Andrea Edda á og enn fremur að sé skrásetningargjaldið þjónustugjald hljóti að þurfa að bæta þjónustuna þegar gjaldið er hækkað. Stuðningur Silju ófundinn Reikna þau sambýlingarnir út að þær 123 milljónir sem skólinn varði í máltíðir og kaffiveitingar í fyrra nemi 37 prósentum af tekjuaukningu skólans í krafti hækkaðs skrásetningargjalds. Umreiknað á nemendafjölda tákni það að 4.927 nemendur greiði fyrir matinn en á fjölmennasta sviði skólans, félagsvísindasviði, nemi nú 3.506 stúdentar fræði sín. Í greinarlok segja höfundar Silju Báru rektor hafa lofað ýmsu í kosningabaráttu sinni til embættis og hafi hún ritað, líka í aðsendri grein á Vísi : „Sem rektor mun ég styðja stúdenta í þeirra hagsmunabaráttu, með það að markmiði að þeir geti stundað nám af fullum krafti óháð efnahagslegum aðstæðum. Það er ekki ásættanlegt á Íslandi að fjárhagsleg staða fólks komi í veg fyrir þekkingarleit og menntun.“ Andrea Edda og Eiríkur klykkja út í skrifum sínum með þeim orðum að þau hafi ekki fundið fyrir téðum stuðningi Silju Báru. „Nú geta enn færri stúdentar stundað nám af fullum krafti og nú kemur fjárhagsleg staða fólks svo sannarlega í veg fyrir þekkingarleit og menntun á Íslandi,“ eru lokaorð þeirra. Einn nýliði í íslenska landsliðinu Guðlaugu lokað að beiðni Veitna „Bregðist við eða vandinn mun vaxa“ Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla Hættir sem bæjarstjóri Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert „Það var bara allt á floti“ Ásökun um vanhæfi Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Andrew laus en enn til rannsóknar Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Einn nýliði í íslenska landsliðinu Guðlaugu lokað að beiðni Veitna „Bregðist við eða vandinn mun vaxa“ Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla Hættir sem bæjarstjóri Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Laxeldið: „Gervigreindaráróður“ og gríðarleg áhrif Tvöföld veikindi hjá því opinbera Verra en árið 1992 Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Tillaga um 495 króna gjald á Ölfusárbrú Ásmundur Einar leiðir nefnd um strákana okkar Inga segir Matsferilinn ekki vera samræmd próf Lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðu efnahagsmála „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum

Share this article