Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kvarta undan fjárskorti og hækka gjöld á nemendur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 16.2.2026 | 11:45 Kvarta undan fjárskorti og hækka gjöld á nemendur Háskóli Íslands. mbl.is/Sigurður Bogi Háskólaráð telur fjárveitingu til Háskóla Íslands eiga að vera meira en sex milljörðum króna hærri á þessu ári ef skólinn á að standa jafnfætis háskólum á Norðurlöndum. Þetta kemur fram í ályktun sem ráðið samþykkti einróma á fimmtudaginn. Þann sama dag samþykkti háskólaráð að hækka skrásetningargjald nemenda næsta skólaárs úr 75 þúsund krónum í 100 þúsund krónur. Frétt af mbl.is Fjármögnunin eigi að hvíla á ríkinu ekki nemendum Erfitt með að rækja hlutverk sitt Í tilkynningu frá Háskóla Íslands sem barst fjölmiðlum í dag segir að á fundi ráðsins í síðustu viku hafi fulltrúar þess farið ítarlega yfir stöðu mála varðandi fjármögnun háskólastigsins á Íslandi almennt og Háskóla Íslands sérstaklega. Fram hafi komið að fjármögnun íslenskra háskóla standi fjármögnun annarra norrænna háskóla langt að baki. „Nýjasti samanburðurinn við háskóla á Norðurlöndum byggir á tölum frá árinu 2024. Sá samanburður sýnir að fjárveiting til Háskóla Íslands ætti að vera meira en 6 milljörðum króna eða ríflega 20% hærri en raunin er fyrir árið 2026,“ segir í ályktuninni. Þá segir að fjárveitingin hafi þær afleiðingar að skólinn eigi erfitt með að rækja hlutverk sitt sem þjóðskóli, sífellt erfiðara sé að halda úti námsgreinum sem hvergi annars staðar séu kenndar á Íslandi, eða um 75% námsgreina skólans. „Sem dæmi um mikla áhættu í rekstri skólans er sú staðreynd að um þriðjungur ársverka starfsfólks við kennslu er unninn í stundakennslu og þeir aðilar eru með heildarlaun um 600 þ.kr. á mánuði árið 2024. Augljóslega er þetta ekki ásættanleg staða fyrir rekstur stofnunar eða fyrirtækis,“ segir í ályktuninni. Háskólaráð skorar á stjórnvöld að huga betur að fjármögnun háskólastigsins á Íslandi. Samfylkingin segist vilja gjaldfrjálst háskólanám Á sama fundi var samþykkt hækkun skrásetningargjalds á nemendur um þriðjung. Stúdentahreyfingin Röskva hefur talað gegn breytingunni og stóð fyrir mótmælum fyrir utan fundinn á fimmtudag. Fulltrúi stúdenta í háskólaráði lagði einnig fram bókun á fundinum þar sem fram kom að hækkunin kæmi til vegna langvarandi vanfjármögnunar og að ábyrgð á fjármögnun opinberra háskóla hvíldi á ríkinu en ekki stúdentum. Fleiri nemendur tjáðu sig um málið á samfélagsmiðlum. Meðal annars Andrea Edda Guðlaugsdóttir, nemandi við hagfræðideild Háskóla Íslands. „Ég veit ekki með ykkur, en ég er ekki að kaupa það. Svo verð ég að fá að telja þessa hækkun óábyrga, þar sem ekki er búið að staðfesta opinberlega, að upphaflega skrásetningargjaldið sé yfir höfuð lögmætt,“ skrifaði hún. Benti hún á að í stefnu Samfylkingarinnar standi að opinbert háskólanám á Íslandi eigi að vera gjaldfrjálst. Þrátt fyrir það hafi Logi Einarsson háskólaráðherra heimilað þessa hækkun með lagabreytingu fyrir áramót. Frétt af mbl.is Dagurinn sem rektor mun fara á bak við nemendur Innkalla hrísgrjón vegna aðskotaefna Kvarta undan fjárskorti og hækka gjöld á nemendur Sú umdeilda svaraði aftur á svellinu Margir slasaðir eftir að lest fór út af sporinu Origo ræður gæðastjórnunarsérfræðing Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli „Það er aldrei of seint“: FBI rannsakar hanska Taka afdráttarlausa afstöðu gegn bókun 35 Tveir sinueldar á höfuðborgarsvæðinu Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Íslendingar best klæddir í heimi Slökkvilið „með lífið í lúkunum“ vegna sinuelda Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri Innkalla hrísgrjón vegna aðskotaefna Kvarta undan fjárskorti og hækka gjöld á nemendur Sú umdeilda svaraði aftur á svellinu Margir slasaðir eftir að lest fór út af sporinu Origo ræður gæðastjórnunarsérfræðing Góðar sögur eru sígildar Það er skýrt, borgarlína er óþörf Fleira áhugavert Erfiðast að læra íslensku Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Lögreglan sökuð um misferli í morðmáli Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Dregur framboð sitt til baka Enginn klofningur í Samfylkingu og þó Allt að 18 stiga frost í dag Þyrla Gæslunnar lenti á bílastæðinu Íslendingar selja leikhúsmiða fyrir milljarð Ökumaður kærður fyrir svigakstur Íslendingar best klæddir í heimi Slökkvilið „með lífið í lúkunum“ vegna sinuelda Pólitísk rétthugsun drap ekki bolluvöndinn Hvetja íslensk stjórnvöld til dáða Beint: Framsókn kýs nýja forystu Telur skólann vera að bregðast syni sínum Fær rúmar 45 milljónir í vasann Lilja nýr formaður Framsóknarflokksins „Bíddu, hvað var ég að gera?“ Ástarlífið er í rúst! Dimmalimm í einangrun „Verulegur Akkilesarhæll fyrir formann“ Stórfelld líkamsárás og vopnalagabrot Interpol rannsakar árásina á Grund Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Beint: Framsókn kýs nýja forystu Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þungt haldinn eftir líkamsárás á þorrablóti Fær rúmar 45 milljónir í vasann 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Andlát: Birgir Ómar Haraldsson framkvæmdastjóri

Share this article