Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Ítrekar samstarfsvilja við stúdenta sem hafa lagt fram vantrauststillögu

Read Full Article →

Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, segir það skiljanlegt að stúdentar mótmæli gjaldskrárhækkunum. Hún vill vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rektor sendi frá sér í dag. Fulltrúar Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands hafa lagt fram vantrauststillögu á hendur Silju Báru. Vaka, sem er í meirihluta í Stúdentaráði, segir ástæðu tilögunnar meðal annars meint ábyrgðarleysi rektors í hækkun skrásetningargjalda og vafa lögmæti þeirra ásamt tillits- og sinnuleysi við hagsmuni stúdenta. Háskólaráð samþykkti nýlega að skrásetningargjald yrði hækkað úr 75.000 krónum í hundrað þúsund krónur. Tveir fulltrúar Háskólaráðs greiddu atkvæði gegn tillögunni, það voru fulltrúar stúdenta. Silja Bára segir í yfirlýsingu að hún hafi ítrekað tekið undir það sjónarmið að ábyrgðin á fjármögnun HÍ liggi hjá stjórnvöldum. „Þetta kom m.a. skýrt fram í bókun háskólaráðs í desember sl. þar sem bent er á að skrásetningargjaldið sé „fjarri því að nægja fyrir þeim kostnaði sem því er ætlað að standa undir og því þarf að tryggja það fjármagn á annan hátt.“ Ég hef rætt þetta við fulltrúa stúdenta á fundum frá því ég tók til starfa og lagt áherslu á að ég vil vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra,“ segir í yfirlýsingu rektors. Fjárframlög til skólans standa í stað „Á sama tíma og við viljum sækja fram á öllum sviðum stöndum við í HÍ frammi fyrir því að fjárframlög til skólans standa í stað. Þessu hefur fylgt niðurskurður en í þeim aðgerðum hefur allra leiða verið leitað til að reyna að tryggja að þjónusta við nemendur verði óbreytt. Óhjákvæmilegt virðist þó að niðurskurðurinn hafi áhrif á einhverjum sviðum enda koma þessar ráðstafanir harkalega niður á kjarnastarfsemi skólans sem þyrfti 20% meira fjármagn til að standast samanburð við aðra norræna háskóla,“ segir í yfirlýsingunni. Silja Bára vísar í útreikninga Háskóla Íslands sem sýna að skrásetningargjaldið stendur ekki undir þeim kostnaði sem fylgir þeirri þjónustu sem skólanum er ætlað að veita nemendum. Til þess hefði skrásetningargjaldið þurft að vera 180.049 kr. á hvern nema árið 2024. Í desember samþykkti Alþingi heimild til að hækka skrásetningargjaldið úr 75.000 kr. í 100.000 kr. „Það væri óábyrgt af HÍ að nýta ekki þá gjaldtökuheimild sem ríkið hefur veitt til að efla þá þjónustu sem ljóst er að mikil þörf er á,“ segir í yfirlýsingu rektors. Vill vinna með stúdentum „Ég ítreka vilja minn til samstarfs við stúdentahreyfinguna um að við sækjum saman fram í samtali við stjórnvöld um að efla stuðning við háskólastigið. Um leið og við bætum hag Háskóla Íslands og stúdenta treystum við samkeppnishæfni Íslands til framtíðar. Aðgengi að fjölbreyttri og öflugri háskólamenntun er ekki aðeins hagsmunamál stúdenta heldur brýnt framfaramál samfélagsins alls og þeirri ábyrgð verðum við að mæta sameiginlega,“ segir í yfirlýsingunni. Vantrauststillagan verður tekin til umræðu á fundi Stúdentaráðs á morgun, þriðjudag, klukkan 17:30.

Share this article