Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ítrekar vilja til samstarfs við stúdenta

Read Full Article →

Innlent | mbl | 23.2.2026 | 17:23 Ítrekar vilja til samstarfs við stúdenta Silja Bára Ómarsdóttir rektor. Karítas Sveina Guðjónsdóttir Setja bókamerki Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands, vill vinna saman með stúdentahreyfingunni að því að stjórnvöld efli stuðning við háskólastigið í landinu. Þetta kemur fram í yfirlýsingu sem rektor sendi frá sér í dag í kjölfar þess að stúdentaráðsliðar Vöku, félags lýðræðissinnaðra stúdenta, lögðu var fram vantrauststillaga á hendur henni. Tillagan verður tekin fyrir á fundi Stúdentaráðs Háskóla Íslands á morgun. Gera má ráð fyrir því að hún verði samþykkt enda skipa fulltrúar Vöku meirihluta í ráðinu. Frétt af mbl.is Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Segir gjaldið standa á traustum grunni Í tillögunni kemur fram að hún er meðal annars lögð fram vegna þeirrar ákvörðunar að hækka skrásetningargjöld nemenda við skólann úr 75.000 í 100.000. Bendir Silja á í yfirlýsingu sinni að fjárframlög til háskólans hafi staðið í stað á sama tíma og skólinn vilji sækja fram á öllum fræðasviðum og að þessu hafi óhjákvæmilega fylgt niðurskurður. „Óhjákvæmilegt virðist þó að niðurskurðurinn hafi áhrif á einhverjum sviðum enda koma þessar ráðstafanir harkalega niður á kjarnastarfsemi skólans sem þyrfti 20% meira fjármagn til að standast samanburð við aðra norræna háskóla,“ segir í yfirlýsingunni. Eiríkur Kúld Viktorsson er oddviti Vöku í stúdentaráði. Ljósmynd/Aðsend Áfrýjunarnefnd í kærumálum háskólanema komst árið 2023 að þeirri niðurstöðu að skrásetningargjaldið stæði ekki á nægilega traustum grunni og gerði skólanum að endurgreiða nemanda við skólann gjaldið. Silja Bára segir þó nýjan úrskurð áfrýjunarnefndarinnar tryggja réttmæti gjaldsins. „Andstætt því sem stundum hefur verið haldið fram stendur skrásetningargjaldið á traustum grunni og er þess skemmst að minnast að úrskurður áfrýjunarnefndar í kærumálum háskólanema nr. 2/2024 um þetta efni var kynntur á fundi háskólaráðs HÍ 4. desember 2025,“ segir Silja Bára en þess má geta að umræddur úrskurður er ekki aðgengilegur í leitarvél nefndarinnar. Frétt af mbl.is Jómfrúarferðir aðþrengds háskóla Óábyrgt að nýta ekki heimildina Eins og áður segir hefur verið samþykkt að hækka skrásetningargjaldið upp í 100.000 krónur, sem Silja Bára segir þó ekki standa undir þeirri þjónustu sem skólanum er ætlað að veita nemendum. Að sögn Silju Báru þyrfti gjaldið til þess að vera 180.049 ef miðað er við kostnað á árinu 2024. „Í desember sl. samþykkti Alþingi svo heimild til að hækka skrásetningargjaldið úr 75.000 kr. í 100.000 kr. Það væri óábyrgt af HÍ að nýta ekki þá gjaldtökuheimild sem ríkið hefur veitt til að efla þá þjónustu sem ljóst er að mikil þörf er á. Þó að skrásetningargjaldið standi ekki undir þeim kostnaði sem það á að gera nemur það engu að síður tæplega 4% af fjárveitingu Háskóla Íslands,“ segir Silja Bára. Telur Silja Bára skiljanlegt að stúdentar mótmæli hækkuninni en að háskólaráð hafi verið skýrt í sinni afstöðu að stjórnvöld þurfi að efla framlög sín. „Ég hef rætt þetta við fulltrúa stúdenta á fundum frá því ég tók til starfa og lagt áherslu á að ég vil vinna með stúdentum að hagsmunum þeirra. Ég ítreka vilja minn til samstarfs við stúdentahreyfinguna um að við sækjum saman fram í samtali við stjórnvöld um að efla stuðning við háskólastigið,“ segir Silja Bára undir lok yfirlýsingarinnar. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Hræðilegur árangur Tottenham Umferðaróhapp á Miklubraut Ítrekar vilja til samstarfs við stúdenta Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Peter Mandelson handtekinn Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég hélt að hann hefði sloppið“ Ekkert liggur fyrir um eldsupptök Fordæmdi „algjöra villimennsku Rússa“ Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Nýjast á mbl.is » Hræðilegur árangur Tottenham Umferðaróhapp á Miklubraut Ítrekar vilja til samstarfs við stúdenta Greiðara aðgengi auki ekki neyslu Peter Mandelson handtekinn Umræðan Frá friði í stríð Lífsgæði og litlar íbúðir fara saman Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Hægir á byggingu íbúða næstu árin „Eins og við værum frummenn“ Fimm prósent landans á Wegovy Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Ellen Margrét Ingvadóttir Flugmiðaverð mun hækka gríðarlega 2028 Fimm prósent landans á Wegovy Missti fyrst heimilið, síðan vinnuna Gífuryrði háskólakennara um Blökastið Vinna hörðum höndum að því að koma á aukaferðum Innkalla kjúkling vegna gruns um salmonellu Icelandair aflýsir ferðum til New York og Boston Almenningur tafði aðgerðir slökkviliðsins Fólk látið blása í Hlíðarfjalli Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Munum sjá snjó í borginni í vikunni Sviptur málflutningsréttindum vegna kókaínsmygls Myndskeið: Sinueldur við Elliðavatn Tengsl blárra augna við sifjaspell Leggja fram vantrauststillögu á hendur rektor Lokað í Bláfjöllum Kópavogsbær býður slökkviliði mannskap Á ríflega tvöföldum hámarkshraða Bönkuðu á dyrnar og sögðu honum að yfirgefa heimilið Forstjórinn með stöðu sakbornings Talinn vera undir mölinni Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Myndskeið: Guðmundarlundur í hættu Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka

Share this article