Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Röskva gerir athugasemdir við sáttmála rektors og Stúdentaráðs

Read Full Article →

Stúdentahreyfingin Röskva telur að sáttmáli sem Silja Bára Ómarsdóttir, rektor Háskóla Íslands og Stúdentaráð skrifuðu undir í dag sýni fram á að Stúdentahreyfingin Vaka hafi ekki sinnt hlutverki sínu sem skyldi. Sáttmálinn sem var undirritaður og var skrifaður af rektor og stúdentaráðsliðum Vöku felur í sér að bæði rektor og stúdentaráð berjist fyrir bættum aðstæðum stúdenta og þrýsti á stjórnvöld að fullfjármagna starfsemi HÍ. Röskva telur þó að sáttmálinn sem undirritaður var í dag snúist fyrst og fremst um að skrifstofa Stúdentaráðs byrji að senda tillögur Stúdentaráðs á rektor og gera þær aðgengilegar á vefsíðu SHÍ. Það hafi ekki verið gert í vetur. Tekið er fram í yfirlýsingu sem Röskva sendi frá sér að hefði Silja Bára ekki skrifað undir sáttmálann hefði Stúdentaráð, sem Vaka er í meirihluta í, samþykkt vantrauststillögu á hana. Fulltrúar Vöku í Stúdentaráði Háskóla Íslands lögðu fram vantrauststillögu á hendur Silju Báru í síðasta mánuði. Ástæða þess var meðal annars meint ábyrgðarleysi rektors í hækkun skrásetningargjalda og vafi á lögmæti þeirra ásamt tillits- og sinnuleysi við hagsmuni stúdenta. Meirihluti stúdentaráðs samþykkti þó að seinka tillögunni um tvær vikur þann 25. febrúar. Sáttmáli um áður samþykkta vinnu Í tillögunni um sáttmálann megi finna 32 tillögur sem Stúdentaráð hefði samþykkt en hefðu ekki verið sendar á rektor. Þetta sé nokkuð sem Röskva taldi að væri þegar í ferli. Samþykkt sáttmálans í dag sé staðfesting á að það hafi ekki verið gert. Þetta er að mati Röskvu brot á trausti á milli Stúdentaráðs og skrifstofu Stúdentaráðs Háskóla Íslands. Í bókun stúdentaráðsliða Röskvu segir að hreyfingin telji brotið svo alvarlegt að að það verðskuldi í raun vantrauststillögu á forseta Stúdentaráðs. Þó telja Stúdentaráðsliðar Röskvu slíka aðgerð ekki ábyrga í ljósi þess hversu stutt er í Stúdentaráðskosningar. „Stúdentar eiga betra skilið en að fá greidd laun fyrir 8 launaða fulltrúa sem sinna ekki starfi sínu og bera ekki virðingu fyrir stúdentum,“ segir í bókun Röskvu.

Share this article