- What: Iceland will spend one billion Icelandic króna on weapons purchases for Ukraine.
- Impact: This is part of Iceland's commitment to support Ukraine's defense efforts.
Innlent | mbl | 12.2.2026 | 18:05 Milljarðarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Eggert Jóhannesson Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra greindi frá því á fundi varnarmálaráðherra ríkja sem styðja við varnarbaráttu Úkraínu í dag að Ísland muni verja milljarði króna í vopnakaup fyrir Úkraínu. Fundurinn fór fram í tengslum við fund varnarmálaráðherra Atlandshafsbandalagsins í Brussel en staða Úkraínu í stríðinu gegn Rússum var sömuleiðis megin efni þess fundarins. Þorgerður segir í samtali við mbl.is að Evrópuþjóðir hafi nú aukið stuðning sinn við Úkraínu verulegla, bæði þegar kemur að vörnum og öryggi en ekki síður mannúðaraðstoð. „Við Íslendingar erum meðal annars, svo dæmi séu tekin, að leggja í og styðja Úkraínu við að koma aftur upp orkuöryggi og hjálpa þeim eftir þessar árásir Rússa sem að miðast að því að eyðileggja orkuinnviði og skapa þannig ringulreið og óvissu hjá Úkraínufólkinu,“ segir Þorgerður. Frá fundi varnarmálaráðherra NATO í brussel í dag. AFP Veigra sér ekki við að drepa börn í svefni Þá segir hún hryllilegar sögur áfram berast frá Úkraínu. „Eins og einn evrópski varnarmálaráðherrann sagði: Rússar veigra sér ekki við það að ráðast á heimili og aðra staði og drepa á börn í svefni eða hvað það er, fyrir utan að hafa markvisst stolið börnum,“ segir hún. Þannig að það eru alls konar birtingarmyndir sem að eru nöturlegar eftir fjögurra ára stríð sem að er enn á fullu af hálfu Rússa og þeir hafa greinilega enga lyst á að að reyna að kyngja einhverjum friði sem að tryggir varanlegt öryggi Úkraínu og um leið Evrópu.“ 300 milljónir til samhæfingarherstjórnar Til hliðar við fund varnarmálaráðherra Atlandshafsbandalagsins var fundað í hópi ríkja sem styðja við varnarbaráttu Úkraínu. Þar greindi Þorgerður frá áframhaldandi varnartengdum stuðningi Íslands við Úkraínu, það er framlagi sem nemur milljarði króna í svokallað PURL-verkefni Atlantshafsbandalagsins um kaup á varnartengdum búnaði. Þá mun Ísland setja 300 milljónir króna til samhæfingarherstjórnar bandalagsins fyrir Úkraínu. Þorgerður segir að ekki sé um stefnubreytingu að ræða með þessu fjárframlagi. „Þetta er einfaldlega það sem að bæði þingið hefur hefur sagt og ályktað og við erum einfaldlega að gera það sem að okkur ber skylda til og við erum að uppfylla okkar skuldbindingar hvað þetta varðar. “ Frétt af mbl.is Ísland tekur þátt í 63 milljarða stuðningi Lýst eftir hinni 14 ára Heklu Agnarsdóttur Milljarðarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands „Við tökum þessi orð mjög alvarlega“ Ísland fékk góðan drátt Myndskeið: Þrumufleygur í Garðabæ Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ 50-60 metra rof á Reynisfjöru Vilja bílhræin burt af lóðinni Starmer krefur Ratcliffe um afsökunarbeiðni Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson Lýst eftir hinni 14 ára Heklu Agnarsdóttur Milljarðarðurinn hluti af skuldbindingum Íslands „Við tökum þessi orð mjög alvarlega“ Ísland fékk góðan drátt Myndskeið: Þrumufleygur í Garðabæ Jafnræði í grásleppuveiðum Almannavarnir á óvissutímum Fleira áhugavert Vilja bílhræin burt af lóðinni Hafa borið kennsl á árásarmanninn Ekki með eigin flokk að baki sér Fer aftur á Vetrarólympíuleika 70 árum síðar Íslendingar hvattir til að huga að heimför Ekki með eigin flokk að baki sér Vilja bílhræin burt af lóðinni Bæjarstjórinn einn á móti Vendingar á Bifröst: Veita ekki upplýsingar 50-60 metra rof á Reynisfjöru Eignaðist annan fyrirbura: „Það þyrmdi yfir mig“ Fengu skemmu gefins „Maður er stundum með óbragð í munninum“ Kalt heimskautaloft færist yfir landið Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Símarnir fimm komu flatt upp á fangelsisyfirvöld Sindri mættur fyrir dóm Var að máta föt á Tene þegar hann frétti af vinningnum Þung refsing þar sem hryðjuverk voru í undirbúningi Ársæll skólameistari kominn í veikindaleyfi Hættir eftir árangurslausa kvörtun til umboðsmanns Myndskeið: Alelda bílar á bílaplani í Breiðholti Vísað úr landi degi eftir þjófnað Sandur hleðst upp við Dyrhólaey Íslendingar hvattir til að huga að heimför Látinn eftir slys á Miklubraut Bestu íbúðakaup Íslandssögunnar? Nafn drengsins sem lést í slysi á Miklubraut Sonur Sólveigar Önnu fer fram fyrir Miðflokkinn Mikill viðbúnaður vegna umferðarslyss á Miklubraut Myndskeið: Hæfileikar Sögu vekja heimsathygli Óska eftir vitnum að alvarlegu slysi Björgunaraðgerðir í Reynisfjöru hafnar Andlát: Valgarð Már Jakobsson