- What: Iceland's financial contribution to Ukraine is the lowest among the Nordic countries, ten times lower than Denmark's per capita.
- Impact: The Icelandic government is allocating approximately one billion Icelandic króna for weapon purchases for Ukraine through the international PURL project.
Framlag Íslands til Úkraínu er langminnst meðal Norðurlandanna og tíu sinnum lægra en hæsta framlagið, sem kemur frá Danmörku, miðað við höfðatölu. Ísland ætlar að verja um milljarði króna til vopnakaupa fyrir Úkraínu í gegnum hið alþjóðlega PURL-verkefni. „Við erum að forgangsraða fyrir Úkraínu. Annars vegar í mannúðaraðstoð, sem er um helmingurinn af þessu, en síðan líka eins og aðrar þjóðir eru að gera, til að hjálpa Úkraínumönnum að verja sig,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. Rússar geri loftárásir á Úkraínu á hverjum degi og því séu Úkraínumenn að leggja áherslu á að efla loftvarnir. Einhugur sé innan ríkisstjórnarinnar um að fylgja þingsályktun í málefnum Úkraínu. Framlag Íslands falli þar undir og sé innan ramma fjárlaga. „Framlögin per íbúa eru tíu sinnum lægri á Íslandi en í Danmörku. Þannig að við erum áberandi lægst í þessum stuðningi.“ Þrátt fyrir það segir Þorgerður framlögin sýna að Ísland sé verðugur bandamaður. „Þó að við séum ekki nálægt öðrum Norðurlandaþjóðum í framlögum þá erum við allavega að sýna að við erum verðugur bandamaður; við erum traustsins verð til þess að tryggja frjálsa og fullvalda Úkraínu. Um leið og Úkraína er frjáls, fullvalda og örugg þá tryggir það líka öryggi Evrópu og öryggi Íslands,“ segir Þorgerður Katrín. „Við erum að fara þær leiðir, meðal annars í gegnum PURL-verkefnið, að halda áfram í góðu sambandi við Bandaríkin, sem sjá um þessi vopn. Ef það ætti að breyta því að við ætluðum að styðja Úkraínu þá væri það auðvitað risaumræða. Ég bara trúi ekki að það sé einhver á þingi sem vilji að við hættum að styðja Úkraínu.“