Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Afhroði Verkamannaflokksins spáð í kosningum dagsins

Read Full Article →

Bretar ganga til kosninga í sveitarstjórnum landsins í dag. Búist er við því að Verkamannaflokkurinn, flokkur Keirs Starmers forsætisráðherra, bíði afhroð. Líklegast er talið að Reform, flokkur Nigel Farage, og Græningjarnir, undir forystu Zack Polanski, bæti við sig mestu fylgi í kosningunum. Starmer hefur sætt mikilli gagnrýni sem forsætisráðherra. Liðsmenn Verkamannaflokksins í Skotlandi eru uggandi um sinn hag. Þar gefa skoðanakannanir til kynna að hann verði ekki lengur næststærsti flokkurinn á eftir SNP heldur þriðji stærstur á eftir Reform. Merki við kjörstað.EPA / NEIL HALL

Share this article