- What: Political election results in the UK.
- Impact: Affects local governance and political landscape.
Útlit er fyrir stórsigur umbótaflokks Nigel Farage, Reform, í sveitastjórnarkosningunum á Bretlandi sem fram fóru í gær. Flokkurinn hefur nú þegar tryggt sem um 45% sæta í sveitastjórnum, samkvæmt kosningaumfjöllun The Guardian . Það stefnir í mikið fylgistap hjá Verkamannaflokknum. Nú þegar hefur flokkurinn tapað meirihluta í fimm sveitastjórnum. Ekki er búið að telja öll atkvæði í sveitastjórnarkosningunum en talning atkvæða gæti dregist fram á laugardag. Þá er von á niðurstöðum þingkosninga í Skotlandi og Wales á hádegi. Kosið var um sex borgarstjórastöður á Englandi og fimm þúsund fulltrúar verða kjörnir í sveitarstjórnir. Auk þess voru þingkosningar í Skotlandi og Wales. Búist er við að Verkamannaflokkurinn lendi í þriðja sæti í Wales en flokkurinn hefur stjórnað þar í 27 ár. Fréttin verður uppfærð.