- What: Elbridge Colby, a key architect of the US defense strategy, called for a shift in NATO's priorities, suggesting a greater focus on the Indo-Pacific region.
- Impact: The proposed changes could lead to a restructuring of NATO, with the US prioritizing defense of the Western Hemisphere and deterrence in the Pacific.
Elbridge Colby lét þessi orð falla á lokuðum fundi með varnarmálaráðherrum hinna Atlantshafsríkjanna, samkvæmt því sem Politico hefur eftir heimildarmönnum. Colby er harðlínumaður og aðalhöfundur nýrrar varnarstefnu Bandaríkjanna, sem vakti nokkra athygli í upphafi árs. „Vatnaskilin eru að baki og við ættum að fagna því,“ hefur Politico eftir Colby en segir hann hafa verið mildari í málflutningi sínum en ráðamenn vestra hafa verið undanfarið. Hann undirstrikaði engu að síður að framvegis yrði áhersla Bandaríkjanna annars staðar en í Evrópu. Vernd vesturhvels jarðar væri í forgangi sem og fælingarmáttur í Kyrrahafinu. Þar lægju hagsmunir Bandaríkjanna öðru fremur. Þó yrði Evrópu enn um hríð haldið undir verndarskildi kjarnorkuvopnabúrs Bandaríkjanna og Evrópuríkjum útveguð vopn sem þau skorti sem stendur. Áherslan var á að NATO þyrfti að taka breytingum í takti við breytta forgangsröðun Bandaríkjanna og kallaði Colby eftir því sem hann kallaði „NATO 3.0“. Sú útgáfa bandalagsins væri í raun nær upphaflegu markmiði en nú væri, áherslan ætti að vera á að verja Norður-Atlantshafið, segir í endurriti ræðunnar sem birt var á vef varnarmálaráðuneytisins. Fyrir fundinn í Brüssel vakti athygli að Pete Hegseth boðaði fjarveru í annað skipti í röð. Politico vitnar í erindreka annarra ríkja sem sátu fundinn um að í heild hafi boðskapurinn verið í jákvæðum tón og rétt hjá Colby að breytinga væri þörf.