Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Elon Musk gerði allt vitlaust hjá CCP

Read Full Article →

Elon Musk skrifaði á samfélagsmiðil sinn, X, í september 2025 að hann hefði átt gott samtal við skapara tölvuleiksins Eve Online um möguleikann á að vinna saman að gervigreindarleik. Að einhverju sem aðeins gervigreind gæti gert. Færslan setti allt á hliðina hjá CCP, framleiðanda EVE Online. Á aðeins tveimur klukkustundum rauk verðið á móðurfyrirtæki CCP, Pearl Abyss, upp um 10%, nokkuð sem hafði aldrei gerst áður í langri sögu þess. Samstarfsaðilar CCP í Asíu urðu strax rosalega spenntir og sýndu þessu mikil og jákvæð viðbrögð. Svo komu viðbrögð frá Bandaríkjunum, Evrópu og starfsfólki CCP. Þá varð allt vitlaust. „Ég bar ekkert skynbragð á það hvað þessi maður vekur upp mikið af viðbrögðum hjá fólki, í báðar áttir,“ segir Hilmar Veigar Pétursson forstjóri CCP, nú Fenris Creations. Eftir færsluna óskaði RÚV eftir viðtali við Hilmar Veigar. Þegar hann loks féllst á að veita viðtal um málið kom hann með allt aðra og óvænta sögu sem ratað hefur í fréttir í dag. Hilmar Veigar og samstarfsfólk hans hjá Fenris Creations, áður CCP, eru að hefja samstarf við Google DeepMind um að þróa gervigreindarlíkan í tölvuleiknum EVE. Ekkert hefur orðið af samstarfi við Elon Musk. Hlægilegt stefnumót tveggja nörda Hilmar Veigar segist þó hafa átt mjög skondin og áhugaverð samskipti við Elon Musk. Þeir hafi rætt saman um ýmsar útfærslur á mögulegu samstarfi um tölvuleiki og gervigreind. Hilmar Veigar og nokkrir samstarfsmenn hans hafi meðal annars heimsótt Musk í starfstöðvum Teslu í Palo Alto í Bandaríkjunum. Samstarfskona Hilmars Veigars hafi sent hann með frostþurrkað skyr til að færa Elon Musk. Hér má heyra brot af lýsingum á heimsókninni: Elon Musk hafði samband við Hilmar Veigar Pétursson og vildi ræða um samstarf. Hlutirnir æxluðust þannig að Hilmar og hans fólk hóf frekar samstarf við Google DeepMind. Rætt er um skrautleg samskipti þeirra Elon Musk í Sögum úr raunveruleikanum. Í þættinum Sögur úr raunveruleikanum segir Hilmar Veigar frá uppþotinu á vinnustaðnum eftir samtöl hans við Elon Musk, frá stemningunni sem myndaðist í samstarfinu við Google DeepMind og því sem gerðist bak við tjöldin áður en Google og íslenskir fjárfestar keyptu CCP af suður-kóreska fyrirtækinu Pearl Abyss fyrir 15 milljarða króna. CCP hefur verið í eigu Pearl Abyss síðan 2018. Hér má nálgast allan þáttinn. Elon Musk hafði samband við Hilmar Veigar Pétursson og vildi ræða um samstarf. Hlutirnir æxluðust þannig að Hilmar og hans fólk hóf frekar samstarf við Google DeepMind. Rætt er um skrautleg samskipti þeirra Elon Musk í Sögum úr raunveruleikanum.

Share this article