This article describes a physical security incident at a fish farm where a mechanical failure in a holding tank allowed salmon to escape into a secondary containment pond. The company activated its incident response plan to prevent further escape into the open sea. The incident is under investigation by the Icelandic Food and Veterinary Authority.
Laxaseiði sluppu úr eldiskeri í fiskeldisstöð Kaldavíkur í Lónum á Kópaskeri. Búnaður bilaði þannig að laxarnir sluppu úr kerinu í settjörn. Þar er seinni vörn fyrirtækisins gegn stroki og telja stjórnendur fyrirtækisins hverfandi líkur á því að seiðin hafi komist út í sjó. Matvælastofnun greinir frá seiðastrokinu í dag. Þar segir að Kaldavík hafi strax virkjað viðbragðsáætlun til að koma í veg fyrir frekara strok. Matvælastofnun hefur ekki fengið upplýsingar um hversu margir laxar sluppu en þeir munu vera 92,6 grömm að þyngd að meðaltali. Matvælastofnun rannsakar strokið og gefur út skýrslu að rannsókn lokinni. Matvælastofnun var tilkynnt um strokið.RÚV / RÚV - Vilhjálmur Þór Guðmundsson