Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Útflutningsverðmæti stefna í 45-50 milljarða á ári

Read Full Article →

Laxey í Vestmannaeyjum stefnir að framleiðslu á um 11 þúsund tonnum af laxi í landeldisstöð sinni í Viðlagafjöru á árinu 2027. Áformað er að stækka landeldisstöðina og sótt verður um leyfi fyrir allt að 42.000 tonna framleiðslu á ári. Núverandi leyfi heimilar hámarks lífmassa allt að 7.000 tonnum. Þá stendur til að reisa aðra seiðaeldisstöð. Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður Laxeyjar, segir framgang verkefnisins samkvæmt áætlunum. Lárus segir að allir áfangar hafi náðst sem félagið hafi sett sér. Einn mikilvægur áfangi sem náðist á síðasta ári var að hefja slátrun. Fyrsta slátrunin var í nóvember á síðasta ári og síðan hefur um 100 tonnum af laxi verið slátrað í hverri viku og afurðirnar afhentar viðskiptavinum. Nú þegar hefur verið slátrað á annað þúsund tonn og stöðin því farin að skila ágætum tekjum. 98% í „superior“-flokk „Það sem við sjáum er að fiskurinn er mjög góður. Yfir 98% er í „superior“-flokki, sem er gallalaus fiskur,“ segir Lárus. Svo hátt hlutfall fisks í „superior“-flokki er með því hæsta sem gerist meðal framleiðenda. Einnig hefur gengið mjög vel með að halda fiskinum heilbrigðum og dánartíðni er lág." Lárus Ásgeirsson stjórnarformaður Laxeyjar. Fiskurinn sem slátrað var í nóvember á síðasta ári og fram í mars er fyrsti hópurinn í framleiðslunni. Þetta er sá hópur sem fyrstur var tekinn inn í eldisstöðina og hefur mátt þola talsvert álag vegna stækkunar stöðvarinnar og tilheyrandi flutninga. Af þeirri ástæðu ríkir ánægja meðal eigenda og starfsmanna Laxeyjar hve vel þessi hópur hefur komið út úr eldinu. „Við tókum á móti hrognum seinni partinn í nóvember 2023 og við slátruðum 5 kg fiski tveimur árum seinna sem var það markmið sem við settum okkur. Þetta er staðfesting á því að kerfi, starfsfólk og aðstaðan öll er mjög góð og gefur okkur góð fyrirheit um framhaldið,“ segir Lárus Ásgeirsson. 11 þúsund tonnum á næsta ári Laxey ráðgerir að slátra 5 þúsund tonnum af fiski á þessu ári. Þá er verið að ljúka framkvæmdum í Viðlagafjöru sem eiga að rúmlega tvöfalda eldisrýmið þar. Þetta mun leiða til þess að framleiðslan á næsta ári stefnir í að geta orðið 11 þúsund tonn. „Á þessu ári er gert ráð fyrir að tekjurnar af starfseminni verði um 50 milljónir evra [um 7,2 milljarðar ÍSK, innsk. blm] og á næsta ári um eða yfir 100 milljónir evra [14,4 milljarðar ÍSK] með um 11 þúsund tonna framleiðslu. Hver ný tankaeining með átta tönkum eykur framleiðslugetuna um 5-6 þúsund tonn.“ Laxey fullnýtir nú fyrstu átta eldiskerin sem hvert um sig er um 5 þúsund rúmmetrar. Búið er að reisa og verið að ganga frá tæknikerfum í næstu átta kerum. Einnig er verið að taka í notkun átta, 1 þúsund rúmmetra stórseiðatanka. Í þessum tönkum verða 100 gramma seiði alin upp í allt að 600 gramma þyngd. 100 tonnum af laxi er slátrað vikulega. Myndir/Laxey „Það er mikil spurn eftir stórseiðum innanlands sem talin eru geta eflt til muna sjóeldið. Með því að sjósetja svo stór seiði er unnt að stytta eldistíma í sjókvíum um heilan vetur. Fiskurinn kemur stærri í sjóinn og hefur meira þol gagnvart þeim aðstæðum sem bíða hans. En aðalmálið fyrir okkur er það að með þessum stórseiðahúsum getur við nýtt betur eldisrýmið og fengið meira í gegnum stöðina,“ segir Lárus. Sala á stórseiðum Hrogn til eldsins fær Laxey frá fyrirtækinu Benchmark. Í nóvember 2023 tók fyrirtækið í notkun seiðaeldisstöð í Friðarhöfn með afköst upp á 4,5 milljónir seiða. Sú stöð er komin í full afköst og skilar seiðum í háum gæðaflokki. Miðað við framleiðslu Laxeyjar þarf fyrirtækið þó ekki á öllum þessum seiðum að halda. Sala á stórseiðum er því önnur stoð undir rekstur fyrirtækisins og með þessu nýtir stöðin sér umfram afköst í seiðaframleiðslu til tekjuöflunar. Lárus segir að þau stórseiði sem hafi verið seld og farið í sjó hafi staðið sig mjög vel í eldi. Þriðji keraflekinn Samhliða þessu öllu er Laxey að leggja lokahönd á fjármögnun á næsta áfanga sem er þriðji keraflekinn með átta kerum. Alls verða því á endanum 24 ker á eldissvæðinu í Viðlagafjöru, alls 120 þúsund rúmmetrar. Í allt er þetta fjárfesting upp á í kringum 90 milljarða króna þegar allt er uppbyggt. Lárus segir þótt sótt sé um leyfi fyrir 42 þúsund tonna framleiðslu sé stefnt að því að ná framleiðslunni upp í 36 þúsund tonn á ári árið 2031. Fæstir gera sér grein fyrir því hve mikil verðmætasköpun fylgir því. Það myndi skila útflutningsverðmætum upp á 45-50 milljarða króna. Sótt til hluthafa og erlendra banka Lárus segir fjármögnunina ganga vel. Sótt verður á mið hluthafa að hluta til. Hluthafahópurinn er fjölbreyttur. Rúmlega 20% eru erlendir hluthafar, ÓS-fjölskyldan í Vestmannaeyjum á tæplega 40%, íslenskir lífeyrissjóðir um 20%, starfsmenn um 7% og aðrir fjárfestar 13%. Hrogn eru alin upp í stórseiði eða fullvaxinn 5 kg sláturfisk hjá Laxey.. Starfsmenn Laxeyjar nú eru um 100 talsins. Þeir tengjast framkvæmdunum sjálfum, eldinu og slátrun og pökkun. Einn áfanginn á síðasta ári var bygging sláturhúss í Viðlagafjöru sem sparar umtalsverða fjármuni við flutninga og pökkun afurða. Fiski er dælt beint úr kerum inn í sláturhúsið þar sem fiskinum er slátrað og fer þaðan í pökkun. Frá Vestmannaeyjum er fiskurinn fluttur aðallega sjóleiðina til kaupenda í Evrópu og Bandaríkjunum. Einnig verður hluti fjármögnunarinnar verði nýttur til að byggja nýja seiðastöð í Viðlagafjöru sem mun tvöfalda seiðaframleiðslu til eigin nota og til sölu á umfram seiðum. Stöðin mun geta framleitt um fimm milljónir af 80-100 gramma seiðum. Mögulegt verður að stækka stöðina verði mikil spurn eftir seiðum og stórseiðum. Laxeyjarmenn eiga von á því að lánsfjármögnun uppbyggingarinnar verði í höndum erlendra banka en auk þess er félagið vel stutt af núverandi eigendum. „Við eigum von á því að stór hluti af viðbótarhlutafé sem við erum að sækja núna komi frá núverandi hluthöfum,“ segir Lárus. Verð á laxi hefur lækkað vegna ástandsins í heiminum og meiri framleiðslu á heimsvísu á árinu 2025 en gert hafði verið ráð fyrir. Greinendur telja þó að verðið hækki eftir því sem líður á árið.

Share this article