Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Síldarvinnslunnar, gerði gjaldtöku á laxeldi í sjó að umræðuefni á aðalfundi útgerðarfélagisns í dag. Hann sagði gjaldtökuna á Íslandi vera án hliðstæðu, þrátt fyrir að greinin sé enn að byggja sig upp. „Hún er 10 sinnum, ég endurtek, 10 sinnum - hærri en í Noregi! Í nýju eldisfrumvarpi ráðherra stendur til að lækka álögur en þar er jafnframt gert ráð fyrir að um leið og betur árar, þ.e. skilin milli framleiðslukostnaðar og heimsmarkaðsverð breikka þá hækki gjaldtakan.“ Síldarvinnslan er næst stærsti hluthafi norska laxeldisfyrirtækisins Arctic Fish með 35,9% hlut sem var metinn á 131,3 milljónir dala, eða um 16,4 milljarða króna í lok síðasta árs. Síldarvinnslan fjárfesti fyrst í Arctic Fish, sem rekur eldisstöðvar á Vestfjörðum, í júní 2022. Rekstrarumhverfi í laxeldisiðnaði var mjög krefjandi í fyrra en eins og Þorsteinn Már benti á lækkaði heimsmarksverð á laxi á fyrri hluta síðasta árs. Hann sagði ákvarðanir stjórnvalda um rekstrarumhverfi laxeldis einnig skapa óvissu. Síldarvinnslan gjaldfærði 9,3 milljónir dala, eða um 1,2 milljarða króna, vegna hlutdeildar í afkomu Arctic Fish í fyrra. Sjá einnig Síldarvinnslan setur 2 milljarða í Arctic Fish Síldarvinnslan lagði Arctic Fish til ríflega 2 milljarða króna í aukið hlutafé á síðasta ári. Þorsteinn Már segir að flestir hluthafar annarra stærri eldisfyrirtækja landsins hafi gert slíkt hið sama til að styðja við greinina. „Það er ekki sjálfgefið að slíkt haldi áfram án þess að annað breytist. Stjórnvöld verða að búa greininni samkeppnishæft umhverfi.“ Hann sagði rekstur Arctic Fish stefna í rétta átt eftir erfið ár, þó ytri aðstæður séu áfram háðar óvissu. Greinin eigi fullan rétt á sér Þorsteinn Már segir fiskeldisiðnaðinn eiga fullan rétt á sér. „Þó hún sé umdeild þá er óumdeilt að hún stuðlar að búsetu og atvinnumöguleikum hér á Austfjörðum sem og á Vestfjörðum. Og vegna þess að við stöndum hér í dag þá vil ég minna á þá framsýnu menn, m.a. hér í Neskaupstað, sem gáfu ekki eftir í umræðunni þrátt fyrir harðar deilur um álverið. Ég tel óumdeilt að fiskeldi til lands og sjós geti verið ein af þeim atvinnugreinum sem munu styðja við framtíðarhagvöxt á Íslandi.“