Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Nýr fram­kvæmda­stjóri Signi­cat á Ís­landi

This article is a corporate announcement about a new country manager for Signicat in Iceland and does not describe a security vulnerability, threat, or technical incident. Consequently, no details regarding attack vectors, CVSS scores, affected versions, patches, or workarounds are present in the source material.
Read Full Article →

Ragna Klara Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Signicat á Íslandi en hún hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu og vexti starfsemi fyrirtækisins á íslenskum markaði. Signicat sérhæfir sig í stafrænum auðkenningarlausnum og traustþjónustu og gegnir lykilhlutverki í þróun öruggra stafrænna viðskipta. Ragna Klara hefur starfað sem sölustjóri hjá Signicat frá árinu 2020. Þar áður leiddi hún uppbyggingu Dokobit á Íslandi, þar til fyrirtækið var keypt af Signicat. Á þeim tíma varð Dokobit markaðsleiðandi á Íslandi í rafrænum undirskriftum og hefur Ragna síðan leitt samþættingu starfseminnar inn í alþjóðlegt umhverfi Signicat með árangursríkum hætti. Sjá einnig Seldi SmartWorks fyrir 86 milljónir Hún er kennaramenntuð og hefur unnið sem Dale Carnegie-þjálfari í yfir áratug. Hún hefur lagt áherslu á að gera flóknar tæknilausnir og reglugerðir aðgengilegar og skiljanlegar fyrir viðskiptavini. „Ragna Klara hefur sýnt í verki að hún er öflugur leiðtogi með djúpan skilning á stafrænum auðkennum og traustþjónustu. Hún sameinar sterka tæknilega innsýn og skýran skilning á þörfum íslenskra fyrirtækja þegar kemur að öryggi og skilvirkni í stafrænum viðskiptum. Við hlökkum til að sjá hana leiða áframhaldandi vöxt Signicat á Íslandi,“ segir í tilkynningu frá Signicat.

Share this article