Félag fasteignasala og Signicat hafa kynnt nýja lausn þar sem hægt er að þinglýsa kaupsamningum með rafrænum hætti á örfáum mínútum en hefðbundið þinglýsingarferli getur tekið allt að nokkrar vikur á pappír. Samkvæmt tilkynningu frá Signicat hafa fasteignasalar nýtt lausnina Dokobit by Signicat við rafrænar undirritanir og auðkenningu í mörg ár með góðum árangri. „Það samstarf hefur þegar sparað ómælda fyrirhöfn og tíma og nú hefur þetta samstarf verið dýpkað enn frekar. Félag fasteignasala hefur, í samvinnu við Signicat, þróað tæknilausn sem nýtir ekki aðeins rafrænar undirritanir heldur einnig sérstaka innsiglun skjala og örugga auðkenningu notenda til að tryggja að ferlið sé jafn öruggt og það er hratt.“ Sjá einnig Vertu þinn eigin fasteignasali Húsnæðis- og mannvirkjastofnun (HMS) hefur unnið að innleiðingu rafrænna þinglýsinga um töluvert skeið en nýjustu tölur stofnunarinnar sýna að fjöldi rafrænna þinglýsinga hafi aukist verulega milli mánaða. „Þetta eru stór tímamót fyrir íslenskan fasteignamarkað. Með því að loka hringnum og gera þinglýsinguna sjálfa rafræna erum við að fækka hindrunum og auka skilvirkni fyrir alla aðila,“ segir Monika Hjálmtýsdóttir , formaður Félags fasteignasala og framkvæmdastjóri Landmarks fasteignamiðlunar.