Hantaveirur eru ólíkar kórónuveirum og almenningi stafar lítil hætta af hópsýkingunni á skemmtiferðaskipinu Hondiusi. Þetta kom fram á blaðamannafundi Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar í dag. Tedros Gebreyesus, forstjóri WHO, sagði oftar en einu sinni á fundinum að almenningi stafi lítil hætta af ástandinu. Hantaveirur séu vel þekktar og smitist aðeins eftir náið samneyti sem vari í lengri tíma. Þess vegna hafi komið upp hópsýking á skipinu. En hættan á að Hondus-hópsmitið verði að heimsfaraldri sé lítil. WHO sé meðvitað um þau tilfelli sem upp hafa komið utan þeirra átta sem tilkynnt var um í gær og vinni náið með yfirvöldum allra ríkja sem eigi hlut að máli. „Ég ætla að tala afdráttarlaust. Þetta er ekki SARS-CoV-2. Þetta er ekki upphaf covid-faraldurs. Þetta er hópsýking um borð í skipi,“ sagði Maria Van Kerkhove sérfræðingur hjá WHO.
The article describes a Hantavirus outbreak aboard the cruise ship Hondius, clarifying it is not a novel coronavirus like SARS-CoV-2. The WHO states the general public faces low risk, as Hantaviruses are well-understood and require prolonged close contact for transmission, which explains the confined shipboard cluster. The organization assesses the outbreak has a low probability of escalating into a global pandemic and is coordinating with relevant national authorities.