Danskur ríkisborgari sem var farþegi á skemmtiferðaskipinu Hondiusi, þar sem hantaveira greindist, er í sjálfskipaðri einangrun í Kaupmannahöfn. Tveir íbúar Singapúr eru einnig í einangrun. Að sögn danskra heilbrigðisyfirvalda fór danski ríkisborgarinn frá borði 24. apríl og sýnir engin einkenni smits. Hvorki er greint frá aldri né kyni manneskjunnar, sem sneri aftur til Danmerkur í lok apríl og er ekki sögð hafa umgengist fólkið sem smitaðist. Þá greina heilbrigðisyfirvöld í Singapúr frá því að tveir íbúar þar, sem voru um borð í Hondiusi, séu í einangrun. Búið sé að skima þá fyrir hantaveiru en niðurstöður ekki enn ljósar. Í ljós hefur komið að 29 farþegar Hondiusar fóru úr skipinu á eyjunni Sankti Helenu fyrir tæpum tveimur vikum. Fyrirtækið sem rekur Hondius segir að búið sé að hafa samband við alla sem fóru frá borði á Sankti Helenu. Grun um annað smit í Hollandi Flugfreyja hollenska flugfélagsins KLM er með einkenni hantaveiru eftir að hafa verið í návígi við konu sem var um borð í skemmtiferðaskipinu Hondius. Verið er að rannsaka hvort hún sé smituð. Flugfélagið staðfesti í gær að konu hefði verið vísað frá borði vélar vegna veikinda daginn áður en hún lést. Vélin var á leiðinni til Amsterdam frá Jóhannesarborg í Suður-Afríku. Konan var um borð í Hondiusi ásamt eiginmanni sínum, hann lést á skipinu 11. apríl. Grunur er um að hjónin hafi smitast í fuglaskoðun í Argentínu en Hondius lagði úr höfn frá argentísku borginni Ushuaia 1. apríl. Hantaveira getur borist úr nagdýrum í menn og argentínska heilbrigðisráðuneytið ætlar að rannsaka sýni úr nagdýrum í borginni. Áður höfðu hjónin einnig ferðast um Úrúgvæ og Chile. Margir fóru frá borði 24. apríl Í ljós hefur komið að 29 farþegar Hondiusar fóru úr skipinu á eyjunni Sankti Helenu fyrir tæpum tveimur vikum. Fyrirtækið sem rekur Hondius segir að búið sé að hafa samband við alla sem fóru frá borði á Sankti Helenu. Alþjóðaheilbrigðisstofnunin heldur blaðamannafund um hópsýkinguna um borð í Hondiusi í dag. En skipið sjálft er nú á siglingu frá Grænhöfðaeyjum til Tenerife. Ráðgert er að skipið komi til hafnar á laugardaginn en áhöfn og farþegar verða um borð til mánudags eða þar til flugvélar sem flytja fólkið burt lenda á eyjunum.
This article describes a potential hantavirus outbreak originating from the cruise ship Hondius, with the suspected attack vector being exposure to rodents during a bird-watching excursion in Argentina. The threat is a biological virus, not a software vulnerability, so concepts like CVSS scores, affected versions, patches, and technical workarounds do not apply. The primary response involves public health measures, including the isolation of exposed individuals and contact tracing of passengers who disembarked in St. Helena.