- What: A ship carrying British travelers is quarantined due to a virus outbreak
- Impact: British and Dutch authorities are organizing special flights to return passengers
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 25 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Breskir farþegar Hondiusar fara í sóttkví Hugrún Hannesdóttir Diego Bresk yfirvöld stefna að því að breskir farþegar hollenska skemmtiferðaskipsins Hondíusar fari í sóttkví þegar þeir snúa aftur heim á mánudag. Bresk og bandarísk yfirvöld eru meðal þeirra sem skipulögðu sérstakar flugferðir til að koma löndum sínum sem voru um borð í skipinu heim, þegar það kemur til Tenerife á morgun. Þrír létu lífið um borð eftir að hantaveira greindist um borð um mánaðamótin. Þrír aðrir voru fluttir frá borði undan Grænhöfðaeyjum á dögunum. AP / Misper Apawu Fyrir 55 mínútumMENNING OG DÆGURMÁL Bandaríkin Jack Kirby heiðraður með götuheiti í New York Essex-stræti í New York verður að Jack Kirby-vegi. Nafnið er sótt til myndasöguhöfundarins sem kom að sköpun Iron Man, Fantastic Four, Captain America og Darkseid. Fyrir 1 tímaMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Hallfríður Helga úr Þróttheimum sigraði í Samfés Félagsmiðstöðin Þróttheimar fagnaði sigri í söngkeppni Samfés í dag eftir flutning Hallfríðar Helgu Arnórsdóttur á laginu All by myself. 25 atriði frá félagsmiðstöðvum víðs vegar um landið tóku þátt í lokakeppninni í Laugardalshöll. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Íþróttir „Krakkarnir eru afgangsstærð í íþróttunum hér í Laugardalnum“ Íþróttastjóri Ármanns segir tillögur starfshóps um úrbætur á aðstöðum félagsins taka á vandanum en enn sé langt í land. Börn og ungmenni í Laugardalnum mæti afgangi þegar kemur að íþróttum. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Skák Hilmir Íslandsmeistari í skák í fyrsta sinn Hilmir Freyr Heimisson stóð nokkuð óvænt uppi sem Íslandsmeistari í skák þegar Íslandsmótinu lauk í Garðabæ í dag. Þetta er fyrsti Íslandsmeistaratitill Hilmis. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Atvinnulíf Upplifa fordóma en oft ráðin í stjórnendastörf Fólk yfir miðjum eldri telur sig síður eiga möguleika á störfum og fái sjaldnar ráðningarviðtöl en yngra fólk. Þó er atvinnuleysi lægst í þessum aldurshópi. Sérfræðingar segja myndina ekki skýra og að bæði markaðsaðstæður og væntingar skipti máli. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Liðum fjölgað í efstu deild kvenna og breytingar gerðar á úrslitakeppni karla Fjölgað verður um tvö lið í efstu deild kvenna í handbolta frá og með næsta keppnistímabili og fá Grótta og Víkingur aukasætin tvö. Þá verða einnig breytingar á úrslitakeppni efstu deildar karla. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Farþegaþotu ekið á manneskju á flugbraut í Colorado Samgönguráðherra segir manneskju hafa klifrað yfir grindverk og hlaupið inn á flugbraut á flugvellinum í Colorado. Fjölmiðlar vestanhafs herma að hún hafi sogast að hluta til inn í annan hreyfilinn. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Rússland Rússar standa frammi fyrir árásargjörnu afli sem er stutt af NATO Rússlandsforseti segir rússneska hermenn standa frammi fyrir óvígum her Úkraínumanna sem sé vopnaður og studdur af öllu NATO-bandalaginu. Hann réttlætti stríðið í ræðu í tilefni sigurdagsins. Þriggja daga vopnahlé er milli Rússlands og Úkraínu. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Söngkeppni Samfés í beinni Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Flóttafólk Núgildandi brottvísunarúrræði harðari Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar, segir aðstöðu fyrir fjölskyldur sem kveðið er á um í breytingartillögu við frumvarp dómsmálaráðherra skárri en úrræðið sem nýtt er í dag. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Magyar sver embættiseið Peter Magyar hefur svarið embættiseið sem forsætisráðherra Ungverjalands. 16 ára valdatíð Viktors Orbans er lokið. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Taphrinu Chelsea lauk með jafntefli gegn Liverpool Hans Steinar Bjarnason Liverpool og Chelsea gerðu 1-1 jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag og lauk þar með taphrinu Chelsea sem hafði tapað sex deildarleikjum í röð. Ryan Gravenberch kom Liverpool yfir á 6. mínútu en Enzo Fernandez jafnaði fyrir Chelsea á 35. mínútu. Úr leik Liverpool og Chelsea í dag. EPA / ASH ALLEN Liverpool er í 4. sæti með 59 stig og hefði með sigri geta gulltryggt meistaradeildarsæti en það er þó innan seilingar. Chelsea er í 9. sæti, níu stigum frá öruggu meistaradeildarsæti þegar liðið á eftir tvo leiki í deildinni. Aðrir leikir Sunderland - Man United (14:00) Brighton - Wolves (14:00) Fulham - Bournemouth (14:00) Man City - Brentford (16:30) Staðan í deildinni Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland Það verður enginn svangur á fjölmenningarhátíð á Hellu Fjölmenningarhátíðin fer fram í íþróttahúsinu á Hellu og stendur frá klukkan 14:00 til 16:00 í dag. Um 600 manns mættu á fjölmenningarhátíðina, sem haldin var á Hvolsvelli síðasta vor og er reiknað með álíka fjölda gesta. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Telur Heiðu hafa skýrt mál sitt og segir samhengi vanta í samanburð á kortanotkun Oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík lítur umfjöllun um notkun borgarstjóra á innkaupakorti borgarinnar alvarlegum augum. Heiða hafi þó svarað fyrir færslurnar með fullnægjandi hætti að hans mati. Málið hjálpi flokknum ekki í kosningabaráttunni. Fyrir 4 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Kvikmyndagagnrýni Michael og Apex: Ágætis spennuskyndibiti en telst seint toppurinn á einu eða neinu Kolbeinn Rastrick, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar á Rás 1, fjallar um kvikmyndirnar Michael og Apex. Honum þykir sú fyrrnefnda yfirborðskennd tónleikamynd en Apex ágætur skyndibiti sem nær þó aldrei hámarksspennu. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarfélagið Árborg Sveigja sett á hitaveitulögn til að styggja ekki álfa Krókur verður lagður á nýja hitaveitulögn á Eyrarbakkavegi til að skemma ekki híbýli álfa sem búa í Strokkhól. Umsjónarmaður verksins segir þetta í fyrsta sinn sem hann hafi þurft að taka tillit til álfa í störfum sínum. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR HM í fótbolta 2026 HM hefst með þremur stjörnum prýddum setningarhátíðum Heimsþekkt tónlistarfólk og stórsýningar munu marka upphaf stærsta heimsmeistaramóts sögunnar í fótbolta í júní. FIFA hefur staðfest að HM hefjist með þremur glæsilegum setningarhátíðum í Mexíkó, Kanada og Bandaríkjunum. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Fimm særðir þegar ekið var á hóp fólks í breskum bæ Bíll var ekið inn í hóp af fólki í miðbæ Arnold í Nottinghamskíri. Breska lögreglan segir að ágreiningur hafi átt sér stað í aðdraganda atviksins. Ekki sé litið á það sem hryðjuverk. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Spánn Hondíus fer til Tenerife í morgunsárið Hantaveira greindist í fólki um borð í skemmtiferðaskipinu Hondíus í vikunni. Þrír eru látnir og sex eru með staðfest smit. Skipið kemur að höfn á Kanaríeyjum á morgun. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Loftferðasamningur Íslands og Suður-Kóreu tekur gildi Loftferðasamningur Íslands og Suður-Kóreu kveður á um gagnkvæmar heimildir til áætlunarflugs milli ríkjanna. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland „Munið, dýrin eru stjörnurnar, ekki ég“ Hinn erni David Attenborough fagnaði aldarafmæli í gær. Hann er af mörgum talinn einn áhrifamesti maður samtímans og hefur frætt og skemmt fólki í áratugi. Samferðafólk segir hann hógværan og að dýrin séu stjörnurnar, ekki hann. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vestmannaeyjabær Handtekinn með eggvopn í Eyjum Einstaklingurinn var handtekinn með eggvopn í Vestmannaeyjum í gærkvöldi. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Ungur Svíi tengdur 764-hópnum ákærður fyrir fjölda alvarlegra ofbeldisglæpa Hvatning til sjálfsvígs og tilraunir til manndrápa eru meðal tuga brota sem 18 ára gamall sænskur maður er ákærður fyrir. Hann er talinn vera hátt settur innan 764-hópsins. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Fótbolti Fótboltaleikvöngum fyrir konur fjölgar brátt – af hverju er það nauðsynlegt? Enska fótboltafélagið Brighton hefur kynnt áætlanir um að byggja sérstakan leikvang fyrir kvennalið félagsins. Einn slíkur völlur hefur þegar verið tekinn í notkun í Bandaríkjunum. Ástæðan tengist bæði leikmönnum og áhorfendum. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Magyar settur í embætti forsætisráðherra í dag Búist er við miklum hátíðarhöldum í Búdapest í dag þegar Peter Magyar verður formlega settur í embætti forsætisráðherra. Hann hefur lofað kjósendum að uppræta spillingu og snúa við umdeildum breytingum sem Viktor Orbán kom á í valdatíð sinni. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Vildi henda reiður á hvað hvað gerðist í raun: „Mamma var bara veik“ Kolbeinn Þorsteinsson segir það hafa verið erfitt að lesa skýrslur um glímu móður sinnar, Ástu Sigurðardóttur, við fíknisjúkdóm. Hún reyndi að halda börnum sínum hjá sér en þoldi ekki við og voru þau tekin af henni trekk í trekk. 9. maí 2026 kl. 7:42INNLENDAR FRÉTTIR Veður Bjartviðri á Norðaustur- og Austurlandi Veðurspá Veðurstofu Íslands gerir ráð fyrir að þurrara verði á Norðaustur- og Austurlandi í dag en á sunnan- og vestanverðu landinu. 9. maí 2026 kl. 6:28INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ógnaði lögreglu með steinhellu í sokk Tveir gistu fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, þar af einn sem ógnaði lögreglunni með heimatilbúnu vopni. 9. maí 2026 kl. 5:40ERLENDAR FRÉTTIR Búlgaría Rumen Radev settur í embætti forsætisráðherra Radev er fyrrum forseti Búlgaríu. Hann sleit þingi og boðaði til kosninga fyrr á árinu. Hans bíða mörg aðkallandi verkefni en eitt af helstu verkefnum hans verður að uppræta spillingu. 9. maí 2026 kl. 4:07ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Setja á viðskiptaþvinganir vegna stuðnings við vopnaframleiðslu Írana Brynja Dögg Friðriksdóttir Íranskur vegfarandi keyrir fram hjá Shahed-dróna sem var til sýnis á torgi í Teheran í Íran 25. september 2025. EPA / ABEDIN TAHERKENAREH Bandaríkin hafa tilkynnt um viðskiptaþvinganir á 10 manns og fyrirtæki fyrir að styðja við vopnaframleiðslu Írana. Reuters fréttaveitan segir að viðskiptaþvinganirnar nái til fólks og fyrirtækja sem eru meðal annars staðsett í Kína og Hong Kong. Bandaríska fjármálaráðuneytið se