Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Aldrei meiri aprílsól á Akureyri

The provided article is a meteorological report from the Icelandic Meteorological Office detailing weather patterns for April and contains no information related to IT security vulnerabilities, threats, CVSS scores, affected software versions, patches, or workarounds. Therefore, a technical security summary cannot be generated from this content.
Read Full Article →

Apríl var hlýr og hiti yfir meðallagi á landinu öllu ef horft er til áranna 1991 til 2020. Sólin lék við íbúa Norðurlands. Vetrarveður, hvassviðri og úrkoma settu þó strik í reikninginn víða um land, sér í lagi fyrri hluta mánaðar. Þetta kemur fram í mánaðaryfirliti Veðurstofu Íslands þar sem greint er frá tíðarfari á landinu öllu í apríl. Þar kemur fram að hlýjast hafi verið á Norðausturlandi í aprílmánuði en kaldara á suðvesturhorninu. Í upphafi mánaðar ríkti talsvert vetrarveður; þá var kalt og snjóþyngsli og hvassviðri ollu samgöngutruflunum á landinu öllu. Á sama tíma gekk mikið eldingaveður yfir sunnanvert landið sem sló út rafmagni á stóru svæði. Fyrri hluti mánaðar var sérlega úrkomusamur en seinni hlutinn þurrari. Hiti tæplega tuttugu stig á Akureyri Í byrjun aprílmánaðar var óvenjumikill snjór í höfuðborginni miðað við árstíma. Í Reykjavík voru skráðir sex alhvítir dagar í apríl, fjórum fleiri en á meðalári. Í Stykkishólmi voru alhvítir dagar tveir, á Akureyri voru þeir sjö og á Dalatanga sex, fjórum færri en á meðalári. Þrátt fyrir vetrarhörku í upphafi mánaðar var meðalhiti á landinu hlýrri en að meðaltali undanfarinn áratug víðast hvar á landinu. Hlýjast var á Austur- og Norðausturlandi en hæsti meðalhiti mánaðarins mældist 6,5 stig á Steinum undir Eyjafjöllum. Hæsti hiti mánaðarins mældist 19,6 stig á Krossanesbraut á Akureyri 22. apríl. Lægstur mældist hitinn -23,1 stig í Svartárkoti í Þingeyjarsveit 6. apríl. Þá mældust 149,6 sólskinsstundir í Reykjavík í apríl, 15,9 stundum undir meðallagi aprílmánaða árin 1991 til 2020. Á Akureyri mældust hins vegar 197,8 stundir, eða 70,3 sólskinsstundir umfram meðallag. Frá upphafi mælinga hafa aldrei mælst eins margar sólskinsstundir á Akureyri í apríl.

Share this article