- What: A new study indicates that climate change is affecting the frequency of glacier surges in Iceland.
- Impact: These surges can endanger infrastructure, cause glacial floods and landslides, and pose a risk to tourism.
Hlýnun jarðar hefur greinileg áhrif á hversu oft jöklar hlaupa fram, samkvæmt nýrri rannsókn. Framhlaup jökla getur sett innviði í hættu, valdið jökulhlaupum og skriðum. Ívar Örn Benediktsson, rannsóknaprófessor Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands, er einn höfunda nýrrar greinar um framhlaupsjökla og áhrif loftslagshlýnunar. Samkvæmt greininni er erfiðara að spá fyrir um hegðun framhlaupsjökla vegna loftslagsbreytinga. Flestir jöklar hopa í hlýnandi loftslagi en þessir jöklar geta aftur á móti hlaupið fram. Greinin fjallar sérstaklega um hættur af framhlaupum jökla. Mesta hættan tengist ferðamennsku og jöklaferðum.