Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Janúar í Nuuk sá hlýjasti í sögunni

  • What: January in Nuuk, Greenland, was the warmest on record in 109 years of measurements.
  • Impact: The average temperature was 7.8 degrees higher than the average for the last three decades, impacting local ski resorts.
Read Full Article →

Janúarmánuður var sá hlýjasti í Nuuk á Grænlandi síðan mælingar hófust fyrir hundrað og níu árum. Meðalhiti í Nuuk í mánuðinum var 0,1 sem er 7,8 gráðum hærra en meðalhiti í janúar síðustu þrjá áratugi. Skíðasvæði í útjaðri Nuuk, sem yfirleitt er opnað síðla hausts, er enn lokað því snjórinn er ekki nægur. DR, danska ríkisútvarpið , hefur eftir umsjónarmanni skíðasvæðisins að mögulega verði hægt að opna þar í mars. Sjálfur hefur umsjónarmaðurinn meiri áhyggjur af loftslagsbreytingum en ásælni Bandaríkjaforseta í landið. Breytingarnar eru hraðari á norðurslóðum en annars staðar í heiminum. Frá Nuuk, höfuðstað Grænlands.RÚV / Víðir Hólm Ólafsson

Share this article